Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-17/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Breyting á lögum í tengslum við raforkueftirlit Orkustofnunar

Með lagasetningunni er áformað að bregðast við athugsemdum ESA sem varða kröfur raforkutilskipunar um sjálfstætt og óháð raforkueftirlit.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: mars).

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur haft til skoðunar lög og reglur sem varða kröfur tilskipunar ESB nr. 2009/72/EB um sjálfstæði raforkueftirlits. Að mati ESA tryggja raforkulög nr. 65/2003 og lög um Orkustofnun nr. 87/2003 ekki fyllilega sjálfstæði raforkueftirlits eins og gerð er krafa um í tilskipun ESB. Í núgildandi raforkulögum og lögum um Orkustofnun kemur fram að stofnunin sé sjálfstæð í ákvörðunum sínum þegar hún sinnir raforkueftirliti samkvæmt raforkulögum. Helstu athugasemdir ESA gagnvart löggjöfinni eru að: • Skortur sé á skýrri aðgreiningu raforkueftirlitsins og Orkustofnunar • Ekki sé gerð krafa um að raforkueftirlitið setji sér eigin starfsreglur • Sjálfstæði raforkueftirlits gagnvart Orkumálastjóra sé ekki fullnægjandi • Fjárveiting Orkustofnunar og raforkueftirlitsins sé ekki aðskilin. Áform um lagasetninguna eru opin til samráðs til 7. febrúar nk.

S-17/2023· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. jan. 2023 – 7. feb. 2023· 3 umsagnir

Breyting á lögum í tengslum við raforkueftirlit Orkustofnunar

Með lagasetningunni er áformað að bregðast við athugsemdum ESA sem varða kröfur raforkutilskipunar um sjálfstætt og óháð raforkueftirlit.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-17/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. febrúar 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 983)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2025)

Frumvarp birt til samráðs, mál S-46/2023. Samþykkt á Alþingi sem lög nr. 22/2024

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-17/2023: Breyting á lögum í tengslum við raforkueftirlit Orkustofnunar · Alviti