Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-143/2022 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um dómstóla (sameining héraðsdómstólanna)

Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er ætlunin að sameina héraðsdómstóla landsins í eina stofnun og auka þannig skilvirkni og hagkvæmni í rekstri héraðsdómsstigsins.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: nóvember).

Hinn 23. mars 2022 skipaði dómsmálaráðherra starfshóp um sameiningu héraðsdómstólanna, meðal annars vegna ábendinga Ríkisendurskoðunar í skýrslu sem send var dómsmálaráðuneytinu 29. apríl 2020, en þar kemur meðal annars fram að sameining héraðsdómstólanna sé skilvirkasta og árangursríkasta leiðin að aukinni samræmingu innan dómskerfisins. Starfshópurinn er leiddur af formanni stjórnar dómstólasýslunnar. Jafnframt var settur á fót samráðshópur sem í sitja fulltrúar dómstóla, lögmanna og ákæruvalds. Starfshópurinn hefur ekki lokið störfum en ráðgert er að störfum hans ljúki haustið 2022. Af hálfu dómsmálaráðuneytisins er forsenda sameiningar að sameinaður héraðsdómstóll hafi starfsstöðvar á landsbyggðinni. Horft er til þess að efla og styrkja þessar starfsstöðvar með nýjum verkefnum og byggja þar á verkefni um svonefnda réttarvörslugátt og því að koma á fót stafrænni meðferð dómsmála. Með breyttu fyrirkomulagi héraðsdómstólanna má ætla að ná megi fram einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu fyrir dómstólana og markvissu eftirliti með henni. Þá má ætla að fjárframlög og mannauður dómstólanna muni nýtast betur og aukið hagræði nást við meðferð dómsmála borgurunum til hagsbóta. Með frumvarpi til breytinga á lögum um dómstóla, auk annarra samfara breytingum á réttarfarslöggjöf, er sem fyrr segir ætlunin að sameina átta héraðstóla landsins í eina stofnun og auka þannig skilvirkni og hagkvæmni í rekstri héraðsdómsstigsins. Þar á meðal má gera ráð fyrir að í ríkara mæli verði unnt að sinna málum óháð starfsvettvangi dómara, styrkja stjórnun héraðsdómsstigsins og faglegan grundvöll fyrir starfsemi dómstigsins á landsbyggðinni.

S-143/2022· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. ágú. 2022 – 9. sep. 2022· 2 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um dómstóla (sameining héraðsdómstólanna)

Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu er ætlunin að sameina héraðsdómstóla landsins í eina stofnun og auka þannig skilvirkni og hagkvæmni í rekstri héraðsdómsstigsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-143/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. september 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 893)
Niðurstöður samráðs (16. desember 2022)

Starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði um sameiningu héraðsdómstólanna skilaði 12. desember 2022 af sér skýrslu þar sem meðal annars er lagt til að átta héraðsdómstólar landsins verði sameinaðir í einn. Skýrslan var birt í Samráðsgátt 16. desember 2022.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Skagafjörður
    Á 9. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 17. ágúst 2022 var gerð eftirfarandi bókun um mál 143/2022 til samráðs. Byggðarráð Skagafjarðar er sammála mörgu af því sem er að finna í drögunum, m.a. um að starfsstöðvar héraðsdómstóla sé hægt að efla og styrkja með nýjum verkefnum. Byggðarráð geldur hins vegar varhug við að héraðsdómstólum verði fækkað en sporin hræða í þeim efnum að þegar stjórnsýslueiningar missa ákveðið sjálfstæði hefur slíkt oftar en ekki leitt til þess að umfang starfsstöðva þeirra hefur minnkað í kjölfarið eða þeim verið lokað með tilheyrandi skerðingu á nærþ… Lesa alla

    Á 9. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 17. ágúst 2022 var gerð eftirfarandi bókun um mál 143/2022 til samráðs. Byggðarráð Skagafjarðar er sammála mörgu af því sem er að finna í drögunum, m.a. um að starfsstöðvar héraðsdómstóla sé hægt að efla og styrkja með nýjum verkefnum. Byggðarráð geldur hins vegar varhug við að héraðsdómstólum verði fækkað en sporin hræða í þeim efnum að þegar stjórnsýslueiningar missa ákveðið sjálfstæði hefur slíkt oftar en ekki leitt til þess að umfang starfsstöðva þeirra hefur minnkað í kjölfarið eða þeim verið lokað með tilheyrandi skerðingu á nærþjónustu. Nægir þar að nefna starfsemi svæðisstöðva Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni, starfsemi Vegagerðarinnar, Rarik o.fl. Athyglisvert er í því sambandi að sjá að í skjali um mat á áhrifum frumvarpsins er talið að frumvarpið leiði ekki til neinna áhrifa á byggðalög. Byggðarráð leggur áherslu á að frumvarp þetta verði ekki lögfest án þess að samhliða verði fest í lög þau verkefni og umsvif sem starfsstöðvum héraðsdómstóls á hverjum og einum stað er ætlað að sinna. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra

    Góðan daginn, meðfylgjandi er umsögn stjórnar SSNE um áform um breytingu á lögum um dómstóla.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-143/2022: Áform um breytingu á lögum um dómstóla (sameining héraðsdómstólanna) · Alviti