Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-225/2021 · Heilbrigðisráðuneytið

Tóbaksvarnalög

Áformað er að sameiginlega EES-nefndin taki tóbaksvarnatilskipunina upp í EES-samninginn í janúar 2022. Í tilefni af því er hafin vinna við endurskoðun laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 og af því tilefni birtast hér áform um lagasetningu þess efnis, frummat á áhrifum þess sem og þýðing á tilskipuninni.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október).

Árið 2014 samþykktu Evrópuþingið og ráðið tilskipun 2014/40/ESB um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi framleiðslu, kynningu og sölu á tóbaki og tengdum vörum og um niðurfellingu á tilskipun 2001/37/EB. Lagasetning er áformuð þar sem fyrir liggur að taka tilskipun 2014/40/ESB upp í EES-samninginn í janúar 2022. Með umræddri lagabreytingu er ætlunin að innleiða í íslenskan rétt Evrópulöggjöf um tóbaksvörur og tengdar vörur. Markmið tilskipunarinnar er meðal annars að samræma lög og stjórnsýslufyrirmæli aðildarríkjanna um innhaldsefni og losun tóbaksvara og tengdar kvaðir um skýrslugjöf, þ.m.t. hámarksgildi losunar að því er varðar tjöru, nikótín og kolsýring úr vindlingum, tiltekna þætti sem varða merkingu og umbúðir tóbaksvara, þ.m.t. viðvörunarmerkingar sem eiga að vera á einingarpökkum sem innihalda tóbaksvörur og allar ytri umbúðir sem og rekjanleika og öryggisþætti sem beitt er varðandi tóbaksvörur til að tryggja að þær uppfylli kröfur tilskipunarinnar. Þá er lagt bann við að setja munntóbak á markað, veitt heimild til að banna fjarsölu á tóbaksvörum yfir landamæri og sett skylda um að leggja fram tilkynningu um nýjar tóbaksvörur sem eiga að fara á markað og aðrar vörur sem tengjast tóbaksvörum, meðal annars jurtavörur til reykinga. Til stendur að undirbúa frumvarp til nýrra heildarlaga um tóbaksvarnir því í ljós hefur komið að breytingalög myndu leiða til breytinga á nærri öllum greinum gildandi laga, þrátt fyrir að sett hafi verið sérlög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, nr. 87/2018, og um leið gera lögin aðgengilegri og skýrari.

S-225/2021· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. des. 2021 – 30. des. 2021· 3 umsagnir

Tóbaksvarnalög

Áformað er að sameiginlega EES-nefndin taki tóbaksvarnatilskipunina upp í EES-samninginn í janúar 2022. Í tilefni af því er hafin vinna við endurskoðun laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 og af því tilefni birtast hér áform um lagasetningu þess efnis, frummat á áhrifum þess sem og þýðing á tilskipuninni.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-225/2021)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. desember 2021
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 530)
Niðurstöður samráðs (4. janúar 2022)

Í ljósi þess að næsti fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar verður ekki fyrr en 4. febrúar 2022 þá er ekki nægilegt svigrúm til að setja málið í þann farveg sem þarf á 152. löggjafarþingi. Hefur því verið ákveðið að fresta málinu að svo stöddu og er áætlað að setja það á dagskrá 153. löggjafarþings.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Bindindissamtökin IOGT
    Kópavogur 22. desember 2021 Umsögn Æskunnar um áform um breytingu á lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2002 (EES-reglur) HRN21110017 í samráðsgátt.[1] Æskan fagnar tillögum að sterkari forvörnum sem og í þessari tillögu sem er til þess fallin að styðja við góðan árangur í forvörnum á Íslandi. Það er von okkar að náist að draga sem fyrst úr notkun tóbaks og nikótínvara á borð við tóbakslausa nikótínpúða sem er ný vara á markaðinum og hefur náð töluverðri útbreiðslu á skömmum tíma.[2] Nikótín er ávanabindandi efni og því óæskilegt að ungt fólk byrji að nota þessar vörur og verði háð nikótíni. Æ… Lesa alla

    Kópavogur 22. desember 2021 Umsögn Æskunnar um áform um breytingu á lögum um tóbaksvarnir nr. 6/2002 (EES-reglur) HRN21110017 í samráðsgátt.[1] Æskan fagnar tillögum að sterkari forvörnum sem og í þessari tillögu sem er til þess fallin að styðja við góðan árangur í forvörnum á Íslandi. Það er von okkar að náist að draga sem fyrst úr notkun tóbaks og nikótínvara á borð við tóbakslausa nikótínpúða sem er ný vara á markaðinum og hefur náð töluverðri útbreiðslu á skömmum tíma.[2] Nikótín er ávanabindandi efni og því óæskilegt að ungt fólk byrji að nota þessar vörur og verði háð nikótíni. Æskan hefur frá stofnun 1886 hvatt til að ekki sé verið að prufa, fikta með, nota eitthvað sem hægt er að ánetjast. Æskan hvetur ráðamenn til að standa með þeim sem vinna í forvörnum því forvarnir á Íslandi hafa verið til fyrirmyndar í áratugi og skapað kynslóðir sem hafna neyslu áfengis og annara vímuefna.[3] Æskan hvetur ráðamenn að skoða miklu betur mál er varða forvarnir og lýðheilsu. Virkja þau lög sem sannarlega standa með forvörnum gegn markaðssetningu og auglýsinga efna sem hafa neikvæð áhrif á börn á hvaða miðlum sem er. Æskan fagnar viðleitni hins opinbera gagnvart viðkomandi málaflokki og styður stefnu stjórnvalda sem kemur fram í fjármálaáætlun á málefnasviði 32. „Að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum tóbaks með því að minnka tóbaksneyslu og vernda fólk fyrir áhrifum tóbaksreyks. Jafnframt að koma í veg fyrir að ungt fólk hefji neyslu tóbaks og hjálpa þeim sem vilja hætta neyslu tóbaks.“ Stjórnvöld verða að horfa á öll ávanabindandi efni sem valda tjóni. Lýðheilsumat er mælikvarði sem ætti hiklaust að taka upp hið snarasta þegar fjallað er um mál sem þetta. Heildarstefna í forvörnum ætti að taka gildi sem skýr viðmið að draga sem mest úr neyslu tóbaks, nikótíns, áfengis og annara vímuefna. Æskan lýsir sig fúsa til að leggja lið við vinnu við að undirbúa stefnuna þar sem Æskan er hluti af stærstu forvarnasamtökum heims Movendi. Sigurbjörg Helga Sigurgeirsdóttir Formaður, Æskan Barnahreyfing Aðalsteinn Gunnarsson Framkvæmdastjóri Æskan barnahreyfing [1] https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3094 [2] https://www.gallup.is/frettir/dagleg-notkun-nikotinpudum-er-ordin-meiri-en-rafrettum/ [3] https://rannsoknir.is/

  • #2Guðlaug Birna Guðjónsdóttir
    Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins fagnar áformum um lagasetningu um tóbaksvarnir og að innleitt verði í íslenskan rétt Evrópulöggjöf um tóbaksvörur og tengdar vörur. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur alla tíð barist fyrir takmörkunum á tóbaksneyslu til að koma í veg fyrir margvíslegt heilsutjón af völdum hennar.og hefur margoft skorað á heilbrigðis¬yfirvöld að móta framtíðarstefnu í tóbaksvörnum ekki síst til að koma í veg fyrir að börn og ungmenni ánetjist nikótíni. Það er löngu tímabært að Ísland hugi að næstu stóru skrefum í tóbaksvörnum, t.d. með því að setja sér stefnu ei… Lesa alla

    Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins fagnar áformum um lagasetningu um tóbaksvarnir og að innleitt verði í íslenskan rétt Evrópulöggjöf um tóbaksvörur og tengdar vörur. Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins hefur alla tíð barist fyrir takmörkunum á tóbaksneyslu til að koma í veg fyrir margvíslegt heilsutjón af völdum hennar.og hefur margoft skorað á heilbrigðis¬yfirvöld að móta framtíðarstefnu í tóbaksvörnum ekki síst til að koma í veg fyrir að börn og ungmenni ánetjist nikótíni. Það er löngu tímabært að Ísland hugi að næstu stóru skrefum í tóbaksvörnum, t.d. með því að setja sér stefnu eins og gert hefur verið í nálægum löndum og tímasetja hvenær stefnt skuli að tóbakslausu landi og ákveða sem fyrst að taka upp „hlutlausar“ tóbaksumbúðir og banna bragðefni í tóbaki og nikótínvörum og hvers kyns auglýsingar og markaðssetningu, sem hefur fyrst og fremst þann tilgang að koma nýjum neytendum á bragðið. Ísland hefur verið að dragast aftur úr öðrum vestrænum ríkjum í tóbaks¬vörnum, þar sem við vorum lengi vel í forystu.

  • #3British American Tobacco

    Hjálagt er umsögn við mál nr. 225/2021.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-225/2021: Tóbaksvarnalög · Alviti