Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-123/2022 · Innviðaráðuneytið

Áform um breytingar á umferðarlögum nr. 77/2019

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingar á umferðarlögum nr. 77/2019.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: október).

Með áformuðu frumvarpi til breytinga á umferðarlögum nr. 77/2019 er ætlunin að tryggja þeim EES-gerðum sem til stendur að taka upp í EES-samninginn nauðsynlega lagastoð, samhliða því að fella brott ósamrýmanleg ákvæði í gildandi löggjöf og tryggja að gildandi löggjöf falli að þjóðréttarlegum skuldbindingum okkar. Til skoðunar kemur að gera smávægilegar breytingar á gildandi lögum, til að mynda í ljósi fyrirliggjandi tillagna starfshóps um smáfarartæki, ásamt því sem mat verður lagt á það hvort færa eigi ökuskírteinaskrá til Samgöngustofu.

S-123/2022· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. júl. 2022 – 29. júl. 2022· 0 umsagnir

Áform um breytingar á umferðarlögum nr. 77/2019

Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingar á umferðarlögum nr. 77/2019.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-123/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. júlí 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 589)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júlí 2023)

Niðurstaðan er í stuttu máli sú að samið var frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 sem birtust í Samráðsgátt þann 22.09.2022. Engar umsagnir bárust vegna áformanna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-123/2022: Áform um breytingar á umferðarlögum nr. 77/2019 · Alviti