Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (orkuskipti)
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, er varða leyfilega stærð krókaaflamarksbáta sem nýta sér vistvæna orkugjafa.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-199/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. nóvember 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 537)
Niðurstöður samráðs (19. nóvember 2022)
Í umsögnum kom m.a. fram að stækkun krókaaflamarksbáta gæti leitt til fækkunar þeirra og samþjöppunar aflaheimilda og áhyggjur að farið yrði á svig við reglur um slíkra orkugjafa. Nauðsynlegt væri að gagnsæi væri um setningu regluverks, um kröfur til hönnunar skipa og búnaðar. Frumvarpið nær til stærri skipa með lægra kolefnisspor, ekki um auknar veiðiheimildir. Eftirlit með skilyðum veiðileyfa verður hjá Fiskistofu. Bætt hefur verið í frumvarpið nánari upptalning á vistvænum orkugjöfum skv. greininni. Einnig er heimild fyrir ráðherra að heimila aðra vistvæna orkugjafa með lágu kolefnisspori.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
- #1Kári Borgar Ásgrímsson
Ég verð að lýsa mig andvígan öllum hugmyndum um stækkun krókaaflamarksbáta. Það hefur þegar orðið allt of mikil samþjöppun veiðiheimilda, og stærri bátar taka alltaf meiri afla til sín. Og bendi á að minni bátar eiða auðvita minni orku...
- #2Samtök iðnaðarins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (orkuskipti).
- #3Guðlaugur Birgisson
Fyrir hönd Fèlags smàbàtaeigenda à Austurlandi Fèlag smàbàtaeigenda à Austurlandi mòtmælir harđlega fyrirhugađri stækkun kròkabàta, Fèlagiđ telur 45brt skip ekki hafa neitt erindi inn ì kròkakerfiđ, kerfi sem ì dag er ekki svipur af sjòn eftir uppkaup stòrùtgerđarinnar à kròkaflamarksheimildum. Stækkun kròkabàta mun skekkja ennfrekar samkepnisstöđu smærri ùtgerđa um aflaheimildir. Guđlaugur Birgisson Formađur FSA
- #4Axel Helgason
Þessi breyting á lögum sem hér er boðuð er algjörlega ótímabær að mínu mati. Engin vistvænn orkugjafi fyrir báta hefur verið í boði og mun ekki vera í boði á næstu árum nema í mjög takmörkuðu magni. Það læðist að manni grunur um að þarna verði fundin KRÓKALEIÐ til að stækka báta með þessari helminga leið vistvæns eldsneytis, sem síðan verður ekki nýtt vegna þess að eldneytið verður ekki í boði eða mun dýrara og ekki aðgengilegt nema í fáum höfnum. Það má líkja þessu við methan bílana, sem fá afslátt af innflutningsgjöldum vegna þess að þeir nota vistvænt eldsneyti, en sárafáir fylla bílana no… Lesa alla
Þessi breyting á lögum sem hér er boðuð er algjörlega ótímabær að mínu mati. Engin vistvænn orkugjafi fyrir báta hefur verið í boði og mun ekki vera í boði á næstu árum nema í mjög takmörkuðu magni. Það læðist að manni grunur um að þarna verði fundin KRÓKALEIÐ til að stækka báta með þessari helminga leið vistvæns eldsneytis, sem síðan verður ekki nýtt vegna þess að eldneytið verður ekki í boði eða mun dýrara og ekki aðgengilegt nema í fáum höfnum. Það má líkja þessu við methan bílana, sem fá afslátt af innflutningsgjöldum vegna þess að þeir nota vistvænt eldsneyti, en sárafáir fylla bílana nokkurn tíman með methan. Undirritaður er plastbátasmiður og útgerðaraðili smábáts. Axel Helgason
- #5Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.