Drög að frumvarpi um breytingu á lögreglulögum nr. 90/1996 (afbrotvarnir og vopnaburður)
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögreglulögum til að að skýra og efla heimildir lögreglu til aðgerða í þágu afbrotavarna, einkum hvað varðar skipulagða brotastarfsemi og öryggi ríkisins.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-57/2022)
- Umsagnarfrestur hefst · til 22. mars 2022
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 535)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Indriði Ingi Stefánsson
Umsögn um frumvarp “um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum (afbrotavarnir og vopnaburður)” Í ljósi nýlegs dæmis þar sem lögregla reyndi á afar hæpnum forsendum að veita blaðamönnum réttarstöðu sakbornings, með þvi að nýta mikilvæga réttabót fyrir þolendur rafræns kynferðisofbeldis, án þess að efnið hafi verið birt og nær engin hafi vitað um tilvist þess fyrr en rannsókn lögreglu hófst. Þetta var síðan varið af yfirmönnum í lögreglunni, ráðherrum án þess að nokkur merki séu um að neinn hyggist taka ábyrgð á framkvæmdinni þegar hún er dæmd óheimil. Þá verður að… Lesa alla
Umsögn um frumvarp “um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum (afbrotavarnir og vopnaburður)” Í ljósi nýlegs dæmis þar sem lögregla reyndi á afar hæpnum forsendum að veita blaðamönnum réttarstöðu sakbornings, með þvi að nýta mikilvæga réttabót fyrir þolendur rafræns kynferðisofbeldis, án þess að efnið hafi verið birt og nær engin hafi vitað um tilvist þess fyrr en rannsókn lögreglu hófst. Þetta var síðan varið af yfirmönnum í lögreglunni, ráðherrum án þess að nokkur merki séu um að neinn hyggist taka ábyrgð á framkvæmdinni þegar hún er dæmd óheimil. Þá verður að horfa til þess að þessar heimildir eru margar ansi matskenndar. Þegar lögreglan fer út fyrir valdsvið sitt þegar það er skýrt afmarkað þá verður erfitt að samþykkja það að gefa henni matskenndar heimildir sem ganga á grundvallarrétt borgara landsins til friðhelgi einkalífsins. Eins er óljóst hvaða þörf er fyrir auka vopnavæðingu eða hver tilgangur ákvæðisins er. Greinargerð segir að vopnbeiting lögreglu sé heimil en breytingin sé til að veita skýra stoð til heimildar. Ef vopnbeiting er heimil er á það sér vonandi skýra stoð í lögum og því ákvæðið óþarfi hér væri ennfremur rétt sé vopnbeiting heimil að því fylgi vísanir í hvað segi til að um að vopnbeitingin sé heimil. Þá er Mikið umhugsunarefni búa eigi til freistnivanda fyrir lögreglu að finna afbrot til að réttlæta vöktunina. Sem opinberar hversu gölluð þessi lagasetning er. Betur færi að auka aðgang lögreglu að dómara svo hægt sé að viðhalda stjórnarskrárvöldum réttindum almnennings til friðhelgi einkalífs. Virðingarfyllst Indriði Ingi Stefánsson Varaþingmaður Pírata.
- #2Íslandsdeild Amnesty International
Íslandsdeild Amnesty International vísar til frumvarps til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum (afbrotavarnir og vopnaburður) sem birt var á samráðsgátt stjórnvalda hinn 8. mars sl. Íslandsdeild Amnesty International hvetur stjórnvöld til að gæta þess að notkun stafrænnar tækni til að hafa eftirlit með einstaklingum og íbúum sé í samræmi við alþjóðalög um mannréttindi. Tæknin getur og ætti að gegna mikilvægu hlutverki í aðgerðum ríkja til að bjarga mannslífum og hlúa að öryggi borgara. Aukin heimild á eftirliti ríkisins getur þó ógnað friðhelgi einka… Lesa alla
Íslandsdeild Amnesty International vísar til frumvarps til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996, með síðari breytingum (afbrotavarnir og vopnaburður) sem birt var á samráðsgátt stjórnvalda hinn 8. mars sl. Íslandsdeild Amnesty International hvetur stjórnvöld til að gæta þess að notkun stafrænnar tækni til að hafa eftirlit með einstaklingum og íbúum sé í samræmi við alþjóðalög um mannréttindi. Tæknin getur og ætti að gegna mikilvægu hlutverki í aðgerðum ríkja til að bjarga mannslífum og hlúa að öryggi borgara. Aukin heimild á eftirliti ríkisins getur þó ógnað friðhelgi einkalífs, tjáningarfrelsi og félagafrelsi á þann hátt að það getur brotið á mannréttindum og rýrt traust til yfirvalda og þannig jafnvel grafið undan áhrifum viðbragða af hálfu yfirvalda er varða öryggi almennings. Slíkar ráðstafanir hafa einnig í för með sér hættu á mismunun og geta skaðað jaðarsetta hópa umfram aðra hópa. Þó að við lifum á ógnvekjandi tímum, þá eiga lög um mannréttindi alltaf við. Reyndar er það svo að mannréttindakerfið er hannað í því augnamiði að tryggja til jafns mismunandi réttindi til verndar einstaklingum og samfélögum. Ríki geta ekki litið framhjá réttindum eins og friðhelgi einkalífs og tjáningarfrelsinu í nafni afbrotavarna. Þvert á móti, verndun mannréttinda stuðlar einnig að öryggi almennings. Nú meira en nokkru sinni fyrr verða stjórnvöld að gæta þess til hins ítrasta að allar takmarkanir á þessum réttindum séu í samræmi við viðurkennda og rótgróna vernd mannréttinda. Amnesty International bendir á að ekki skuli veita löggæslu heimildir fyrir auknu eftirliti nema að eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt: 1. Eftirlitsráðstafanir sem gripið er til verða að vera löglegar, nauðsynlegar og hóflegar. Fyrir þeim skal vera heimild í lögum og skulu þær vera samkvæmar lögmætum markmiðum. Ráðstafanir sem löggæslan grípur til verða að vera gagnsæjar svo hægt sé að grandskoða þær og, ef tilefni er til, breyta, afturkalla eða snúa ákvörðunum við. Afbrotavarnir mega ekki þjóna sem afsökun fyrir handahófskenndu eftirliti með fjöldanum. 2. Ef stjórnvöld ákveða að útvíkka eftirlits- og vöktunarheimildir sínar verða slíkar heimildir að vera tímabundnar og aðeins standa yfir eins lengi og nauðsyn krefur. Afbrotavarnir mega ekki þjóna sem afsökun fyrir ótímabundnu fjöldaeftirliti. 3. Ríki verða að tryggja að gagnaöflun, varðveisla og uppsöfnun persónuupplýsinga, séu aðeins notaðar í lögmætum tilgangi. Gögnum sem er aflað, eru varðveitt og samtengd í tilgangi afbrotavarna verður að vera sett takmarkanir um umfang, og aðgengi. Þau má ekki nota í atvinnuskyni eða í öðrum tilgangi. Afbrotavarnir mega ekki þjóna sem afsökun til að brjóta á rétti einstaklinga til friðhelgi einkalífs. 4. Ríkisstjórnir skulu kappkosta að vernda gögn fólks, þar með talið að tryggja að öryggi persónuupplýsinga hvers og eins sé gætt, sem og að öryggi hvers konar tækja, forrita, nets eða þjónustu sem fela í sér í söfnun, sendingu, vinnslu og geymslu gagna sé tryggt. Allar fullyrðingar um að gögn séu nafnlaus verða að vera byggðar á áreiðanlegum heimildum og studdar með nægilegum upplýsingum um hvernig þau hafa verið gerð nafnlaus. Afbrotavarnir mega ekki þjóna sem réttlæting á skertu stafrænu öryggi fólks. 5. Hvers konar notkun á stafrænni eftirlitstækni verður að fela í sér umræðu um að slík tæki geti auðveldað mismunun og falið í sér önnur brot á réttindum minnihlutahópa, fólki sem býr við fátækt og öðrum jaðarhópum, þar sem þarfir og raunveruleiki þessara hópa endurspeglast ekki endilega í stórum gagnagrunnsupplýsingum. Hætta er á að afbrotavarnir auki enn á bilið milli ólíkra hópa samfélagsins, þeirra sem njóta fullra réttinda og hinna sem gera það síður. 6. Samningar stjórnvalda um samnýtingu gagna við einka- eða opinbera aðila verða að vera lögmætir og opinberir svo hægt sé að meta áhrif þeirra á friðhelgi einkalífs og mannréttindi. Samningarnir skulu vera skriflegir, með sólarlagsákvæði, gerðir undir opinberu eftirliti og innihalda aðrar varúðarráðstafanir. Afbrotavarnir mega ekki þjóna sem afsökun til að fela fyrir almenningi hvaða upplýsingum er safnað af stjórnvöldum og deilt með þriðja aðila. 7. Öll viðbrögð verða að fela í sér öryggisráðstafanir þannig að ábyrgð sé tryggð og að komið sé í veg fyrir misbeitingu. Einstaklingar skulu eiga tækifæri á að vita um og hafa skoðun á viðbrögðum vegna afbrotavarna sem fela í sér öflun, varðveislu og notkun gagna. Einstaklingar sem hafa verið undir eftirliti verða einnig að hafa aðgang að raunhæfum úrræðum til að leita réttar síns. Í frumvarpsdrögum sem eru til umræðu er lögreglu veittar víðtækar heimildir til að fylgjast með einstaklingum sem ekki eru grunaðir um afbrot. Þrátt fyrir að tillagðar heimildir hafi það að markmiði að koma í veg fyrir glæpi er hættan á misnotkun svo víðtækra rannsóknarheimilda sem hér um ræðir mikil. Íslandsdeild Amnesty International minnir á að íslenskum stjórnvöldum ber að tryggja að lög séu í samræmi við alþjóðlega mannréttindasamninga, svo sem mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, samning Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg félagsleg og menningarleg réttindi, sem Ísland hefur fullgilt, auk Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu sem báðir hafa verið lögfestir hér á landi. Ofantalin skilyrði eru ekki uppfyllt í frumvarpsdrögunum. Hvetur Íslandsdeild Amnesty International stjórnvöld til að gera nauðsynlegar breytingar á þeim í samræmi við ofangreinda mannréttindasamninga. Að lokum áskilur deildin sér rétt til að koma að fleiri athugasemdum við frumvarpið á síðari stigum verði það lagt fyrir Alþingi.
- #3Persónuvernd
Vegna mikilla anna og manneklu hjá Persónuvernd er stofnuninni ekki fært að skila inn umsögn innan gefins frests. Persónuvernd mun senda dómsmálaráðuneytinu umsögn stofnunarinnar á næstu dögum og birta hana á vefsíðu stofnunarinnar.
- #4Hólmsteinn Gauti Sigurðsson
Umsögn Landssambands lögreglumanna fylgir í pdf viðhengi
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.