Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (svæðaskipting strandveiða)
Með frumvarpinu er lagt til að tekin verði upp að nýju svæðaskipting aflaheimilda við strandveiðar og einnig eru þar ákvæði um flutning aflaheimilda milli tímabila og fiskveiðiára.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-22/2023)
- Umsagnarfrestur hefst · til 15. febrúar 2023
- Umsagnarfresti lýkur · 131 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 861)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (131)
- #1Bjarni Reykjalín Magnússon
Þetta myndi koma mér og mínum á Norðurlandi rosalega vel og mér lýst vel á þetta
- #2Emil Andrés Sigurðsson
48 dagar á hvern bát, burt með allar takmarkanir og skiptingar, það er sanngjarnt! Veður og aflabrögð stjórna sjósókn.
- #3Haraldur Arnfjörð Árnason
Hræðileg afturför ef þetta frumvarp fer í gegn ,þetta kallast kapphlaup við tímann,síðast dó einn maður í þessu kapphlaupi sem er verið að boða núna.Ég man vel hvernig þetta var menn fóru út á sjó í hvað veðri sem var.Málið er auðleyst 48 daga fyrir alla þetta er svo augljóst öllum nema Ráðherranum
- #4Alexander Gabríel Hafþórsson
Góðan dag Ég heiti Alexander og hef verið í strandveiðikerfinu öll ár síðan það hófst, ég harma það að það sé ásettningur að færa kerfið aftur í þá mynd sem var fyrst. Ég man eftir ótal sjóferðum þar sem menn voru að fara út í vitlausum veðrum bara til þess að fá eitthvað, því annars myndi potturinn klárast fljótt. þeir sem þekktu sögðu það ekki færaveður en samt fóru menn. Engin bót fékst á þetta fyrirkomulag fyrr en að árið 2017-2018 þegar að ungur maður fórst sem gerði út frá sömu höfn og ég. Hann óð af stað í vitlausu veðri og skilaði sér ekki heim. Síðan 2019 þá fæst besta breytin… Lesa alla
Góðan dag Ég heiti Alexander og hef verið í strandveiðikerfinu öll ár síðan það hófst, ég harma það að það sé ásettningur að færa kerfið aftur í þá mynd sem var fyrst. Ég man eftir ótal sjóferðum þar sem menn voru að fara út í vitlausum veðrum bara til þess að fá eitthvað, því annars myndi potturinn klárast fljótt. þeir sem þekktu sögðu það ekki færaveður en samt fóru menn. Engin bót fékst á þetta fyrirkomulag fyrr en að árið 2017-2018 þegar að ungur maður fórst sem gerði út frá sömu höfn og ég. Hann óð af stað í vitlausu veðri og skilaði sér ekki heim. Síðan 2019 þá fæst besta breyting sem gerð hefur verið á kerfið - það er að menn fái sína 12 daga í mánuði og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að kvóti sé að klárast fyrr en um miðjan Júlí og geta því valið sér þá daga sem þeim list á veðrið. Mikil ró færðist í þessar veiðar eftir þetta hjá okkur. Það eitt að skipta upp landinu í svæði og að hafa síðan pottinn líka skiptann upp mun bara auka sundrung innan strandveiði kerfisins, enn maður spyr sig í alvöruni hvort það sé tilgangurinn stundum. Ég er ungur maður sem var komið inní stéttina af afa gamla, sem átti engan kvóta en hefur þjónað íslenskum sjávarútvegi í meira en 65 ár. Minn draumur er að geta stundað handfæraveiðar sem atvinnu og geta lifað á því . það er öllum ljóst að núverandi kerfi býður ekki uppá neitt annað enn hobbí veiðar og sökum þess er áhættusamt að fjárfesta í sjálfum sér í þessu því þetta liggur alltaf í lausu lofti hvert ár. Ég furða mig einnig á því að nokkri atvinnustétt sé boðið uppá slíkt, ég hugsa til leigubílstjórana sem hafa notið þess að Uber komi ekki til landsins því þá gæti greinin þeirra dáið út, það virðist hinsvegar flestum sama um að halda í eins sterkar íslenskar hefðir og handfæraveiðar eru. Veiðiheimildir á að skipta niður jafnt á þá sem vilja og geta sótt og handfæraveiðar ættu að gefa frjálsar.
- #5Ásgeir Jónsson
Þessi breiting kemur sér afar vel fyrir svæði C. Í maí og júní erum við uppí fjöru að veiða smáfisk og mikill hluti þess undirmál. Hér fyrir austan byrjar ekki að fiskast af einhverju raði fyrr en í júlí, en þá er kvótinn bara svo gott sem búin þannig við fáum ekki mikið útúr þessum strandveiðum. Ef ekki verður af þessari svæðaskiptingu er ljóst að ekki verður hægt að gera út strandveiðibát nema á svæði A.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.