Áform um frumvarp til sóttvarnalaga
Áform um lagasetningu og frummat á áhrifum frumvarps til sóttvarnalaga.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-226/2021)
- Umsagnarfrestur hefst · til 30. desember 2021
- Umsagnarfresti lýkur · 75 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (152. þing, mál 498)
Niðurstöður samráðs (1. febrúar 2022)
Frumvarp til laga um sóttvarnir var samið af starfshópi heilbrigðisráðherra sem skipaður var 18. júní 2021 og skilaði drögum að frumvarpi 1. febrúar 2022. Það frumvarp er nú til umsagnar á Samráðsgáttinni.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (75)
- #1Sveinlaug Sigurðardóttir
Ég tel það mjög óábyrgt að sóttvarnarlæknir verði skipaður af ráðherra, þ.e. pólitískt skipaður. Sóttvarnarlæknir og aðrir aðilar sem fara með þau mál þurfa og eiga að vera skipaðir ópólitískt til að geta gefið ráðleggingar eingöngu byggðar á fagþekkingu og án allra tenginga við ákveðna flokka í pólitík. Èg sem þjóðfélagsþegn í þessu samfélagi leggst því alfarið gegn þessum tillögum.
- #2Steingrímur Arason
Ég tel það mjög óábyrgt að sóttvarnarlæknir verði skipaður af ráðherra, þ.e. pólitískt skipaður. Sóttvarnarlæknir og aðrir aðilar sem fara með þau mál þurfa og eiga að vera skipaðir ópólitískt til að geta gefið ráðleggingar eingöngu byggðar á fagþekkingu og án allra tenginga við ákveðna flokka í pólitík. Èg sem þjóðfélagsþegn í þessu samfélagi leggst því alfarið gegn þessum tillögum
- #3Ingibjörg Þ Ólafsdóttir
Sveinlaug Sigurðardóttir, hér fyrir framan, orðar mína hugsun til þessa máls algerlega og ég fæ að gera hennar orð að mínum. "Ég tel það mjög óábyrgt að sóttvarnarlæknir verði skipaður af ráðherra, þ.e. pólitískt skipaður. Sóttvarnarlæknir og aðrir aðilar sem fara með þau mál þurfa og eiga að vera skipaðir ópólitískt til að geta gefið ráðleggingar eingöngu byggðar á fagþekkingu og án allra tenginga við ákveðna flokka í pólitík. Èg sem þjóðfélagsþegn í þessu samfélagi leggst því alfarið gegn þessum tillögum."
- #4Sigríður Jónsdóttir
b. Lagt er til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra í stað þess að hann sé ráðinn af landlækni. Áform um að hafa pólitískt skipaðan sóttvarnarlækni eru skelfileg tíðindi fyrir borgara landsins, með vísan til þess ágreinings og vanmats aðstæðna sem valdamikið fólk hefur sýnt sig hafa í opinberri umræðu. Landlæknir á að hafa valdið til að ráða sóttvarnarlækni og það að á að vera faglegt mat hans sem ræður ráðningu og byggt á faglegu trausti. c. Lagt er til að fjölskipuð farsóttarnefnd taki að hluta við tillögugerð um opinberar sóttvarnaráðstafanir sem er á hendi sóttvarnalækni… Lesa alla
b. Lagt er til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra í stað þess að hann sé ráðinn af landlækni. Áform um að hafa pólitískt skipaðan sóttvarnarlækni eru skelfileg tíðindi fyrir borgara landsins, með vísan til þess ágreinings og vanmats aðstæðna sem valdamikið fólk hefur sýnt sig hafa í opinberri umræðu. Landlæknir á að hafa valdið til að ráða sóttvarnarlækni og það að á að vera faglegt mat hans sem ræður ráðningu og byggt á faglegu trausti. c. Lagt er til að fjölskipuð farsóttarnefnd taki að hluta við tillögugerð um opinberar sóttvarnaráðstafanir sem er á hendi sóttvarnalæknis í dag. Sóttvarnarlæknir á að vera alfarið ábyrgur fyrir tillögum um opinberar sóttvarnaráðstafanir, enda er hann pólitískt hlutlaus aðili! Almenningur þarf að vita hverjar hans áhyggjur eru og hvað hann leggur til. Og þetta eru tillögur, ekki tilskipanir. Hér eru valdhafar að seilast eftir ítökum sem þeir eiga ekki að fá! Eru tillögur sóttvarnarlæknis í alvöru að setja steinvölu í skó valdhafa? Þarf valdið virkilega að eiga möguleika á að þagga niður í honum?
- #5Aðalbjörg Hrafnsdóttir
Ég er bara mjög sátt við hlutina eins og þeir eru núna. Auðvitað eiga þessi mál að vera í höndum landlæknis, með samvinnu við þingið. Alls ekki einhver pólitík ráðning. Ég er alfarið á móti því.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.