Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-46/2023 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sjálfstæðs raforkueftirlits

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi að breytingu á ýmsum lögum vegna sjálfstæðis raforkueftirlits.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: mars).

Frumvarpið var unnið í kjölfar samskipta íslenskra stjórnvalda og Eftirlitsstofnunar EFTA í tengslum við innleiðingu raforkutilskipunar ESB. Með frumvarpinu er lagt til að aðgreina með skýrari hætti á milli Orkustofnunar og raforkueftirlits stofnunarinnar. Sérstaklega er tilgreint að innan Orkustofnunar skuli starfa sérstök eining sem beri heitið Raforkueftirlitið. Hlutverk þess verði að sinna raforkueftirliti en gert er ráð fyrir því að orkumálastjóri geti einnig falið eftirlitinu önnur verkefni. Í sjálfstæði Raforkueftirlitsins felst meðal annars að ákvarðanir þess við framkvæmd raforkueftirlits eru án áhrifa frá orkumálastjóra eða annarra utanaðkomandi afskipta. Lagt er til að Raforkueftirlitinu verði stýrt af embættismanni sem orkumálastjóri skipi til fimm ára í senn. Þá verði sérstaklega mælt fyrir um aðskildar fjárúthlutanir til Orkustofnunar og Raforkueftirlitsins. Frestur til veitingu umsagna er til 13. mars nk.

S-46/2023· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. feb. 2023 – 13. mar. 2023· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sjálfstæðs raforkueftirlits

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi að breytingu á ýmsum lögum vegna sjálfstæðis raforkueftirlits.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-46/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. mars 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 983)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. nóvember 2025)

Samþykkt á Alþingi sem lög nr. 22/2024

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-46/2023: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sjálfstæðs raforkueftirlits · Alviti