Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-212/2022 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um lagasetningu - breyting á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (svæðaskipting strandveiða)

Áformað er að breyta 6. gr. a í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, sem fjallar um strandveiðar á þann veg að strandveiðar verði aftur svæðaskiptar líkt og var fyrir gildistöku laga nr. 22/2019.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 153. þing (áætlað: febrúar).

Með lögum nr. 22/2019 var gerð breyting á 6. gr. a. í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, en sú grein fjallar um strandveiðar. Ákvæði 2. mgr. 6. gr. a. var breytt með þeim hætti að ákvæði um skyldu ráðherra til að kveða á um skiptingu landsvæða og aflaheimilda á tímabil og landsvæði var fellt brott. Þar með var aflaheimildum við strandveiðar ekki lengur skipt á landsvæði heldur miðað við að öll landsvæði veiddu úr sama „pottinum“ þ.e. þeim leyfilega heildarafla sem ráðstafað er til strandveiða. Afnám svæðaskiptingar strandveiðar hefur verið í gildi sl. 4 ár.

S-212/2022· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. nóv. 2022 – 8. des. 2022· 37 umsagnir

Áform um lagasetningu - breyting á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (svæðaskipting strandveiða)

Áformað er að breyta 6. gr. a í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, sem fjallar um strandveiðar á þann veg að strandveiðar verði aftur svæðaskiptar líkt og var fyrir gildistöku laga nr. 22/2019.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-212/2022)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. desember 2022
  3. Umsagnarfresti lýkur · 37 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 861)
Niðurstöður samráðs (1. febrúar 2023)

Umsagnir bárust frá 36 aðilum og voru sjónarmið mismunandi. Sumir telja breytingarnar vera neikvætt skref aftur í tímann og að þær muni skapa aukna slysahættu og hafa önnur neikvæð áhrif á aðstæður til strandveiða. Aðrir telja breytingarnar vera til bóta og að þær muni bæta skilyrði til strandveiða. Ráðuneytið lagði mat á umsagnirnar og hafði hliðsjón af þeim við samningu nýs frumvarps. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (svæðaskipting strandveiða) hafa verið birt á samráðsgátt en með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 6. gr. a laganna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (37)
  • #1Magnús Jónsson
    Efni: Umsögn Drangeyjar-smábátafélags Skagafjarðar um áform um breytingu á lögum nr. 116/2006 (svæða- og pottaskipting strandveiða) Með þeim áformum sem hér er um að ræða eru stjórnvöld að gera enn eina atlöguna að strandveiðum (til viðbótar skerðingar sl. þrjú ár). Það er því nauðsynlegt að rifja upp aðdraganda þess að þetta veiðikerfi var sett á laggirnar sem og stjórnunarlegt eðli þess. Strandveiðikerfinu var komið á með lögum sem tóku gildi í árslok 2008. Voru þau lög sett til að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem og dómi Hæstaréttar Íslands sem höfðu úrsku… Lesa alla

    Efni: Umsögn Drangeyjar-smábátafélags Skagafjarðar um áform um breytingu á lögum nr. 116/2006 (svæða- og pottaskipting strandveiða) Með þeim áformum sem hér er um að ræða eru stjórnvöld að gera enn eina atlöguna að strandveiðum (til viðbótar skerðingar sl. þrjú ár). Það er því nauðsynlegt að rifja upp aðdraganda þess að þetta veiðikerfi var sett á laggirnar sem og stjórnunarlegt eðli þess. Strandveiðikerfinu var komið á með lögum sem tóku gildi í árslok 2008. Voru þau lög sett til að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem og dómi Hæstaréttar Íslands sem höfðu úrskurðað að aflamarkskerfið í þeirri mynd sem það hafði verið útfært stríddi gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar um jafnræði og atvinnufrelsi. Með strandveiðilögunum var því verið að opna á rétt hins almenna borgara hér á landi til að stunda fiskveiðar í sjó. Réttur sem hafði verið til staðar allt frá upphafi byggðar í landinu. Handfæraveiðar eru í senn umhverfisvænar og sjálfbærar, þær eru hluti af menningu okkar og sögu og geta aldrei ofveitt eða ógnað viðkomu þeirra fiskistofna sem úr er veitt. Strandveiðarnar voru áreiðanlega ekki hugsaðar sem hluti af hinu ólögmæta kvótakerfi, enda eru þær í eðli sínu í sóknarmarki en ekki aflamarki. Takmarkanir innan kerfisins eru fyrst og fremst miðaðar við fjölda og tímalengd róðra, árstíma og tilltekna vikudaga sem og fjölda færarúlla, allt sóknartakmarkandi þættir, þótt afli í einstökum róðrum væri takmarkaður. Þá var í upphafi gert ráð fyrir að afli á þessum veiðum drægist ekki frá úthlutuðum kvóta til þeirra báta sem einnig stunduðu strandveiðar. Það var því augljóslega í mótsögn við tilgang þessa veiðifyrirkomulags að setja heildarkvóta á strandveiðiafla. Því síður var rökrétt að taka þann heildarafla úr aflamarkskerfinu enda eiga þessi kerfi að verða aðskilin og óháð hvort öðru. Á aðalfundi Drangeyjar-smábátafélags Skagafjarðar sem haldinn var 11. september 2022 var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: Aðalfundur Drangeyjar - smábátafélags Skagafjarðar mótmælir harðlega stöðvun strandveiða 21. júlí 2022. Skorar félagið á stjórnvöld að tryggja með lögum að þessar veiðar verði undanbragðalaust leyfðar í 12 veiðidaga á mánuði í fjóra valkvæða mánuði á tímabilinu frá apríl til september. Á 38. aðalfundi Landssambands smábátaeiganda sem haldinn var 20.- 21. október sl. voru eftirfarandi ályktanir samþykktar: a) Landssamband smábáteiganda krefst þess að fest verði í lög að strandveiðileyfi hafi að lágmarki 48 róðradaga. b) Landssamband smábátaeiganda hafnar alfarið svæðaskiptingu strandveiðipottsins. Með vísan til þess sem að ofan er rakið lýsir Drangey–smábátafélag Skagafjarðar yfir eindreginni andstöðu við þá fyrirætlan matvælaráðherra að hverfa til þeirrar fortíðar að fara að svæðaskipta aflaheimildum til strandveiða. Það mun einungis leiða til þess að svokallaðar „ólympiskar veiðar“ hefjast á ný, bæði innan svæða og milli svæða. Veiðar sem eru bæði hættulegar og óhagkvæmar fyrir sjómenn auk þess sem slíkt fyrirkomulag getur skaðað markaði fyrir fisk bæði innanlands og utan. Með því að festa í sessi 48 veiðidaga strandveiða að sumarlagi, án svæðaskipts aflamarks og óháð aflamarkskerfinu, verður sköpuð sátt um strandveiðikerfið óháð því hvar gert er út á landinu. F.h. Drangeyjar-smábátafélags Skagafjarðar Magnús Jónsson formaður

  • #2Hjörtur Sævar Steinason
    Nú stefnir í að Svandís setji ein lögin enn til höfuðs STRANDVEIÐI kerfisins. Kerfis sem í mörg ár hefur verið talað um að gera sem réttlátast fyrir Strandveiði Sjómenn Íslands. Svo réttlátt þar sem allir myndu sitja að sama borði. Sem sagt 48 daga á 6 mánaðar tímabili án STÖÐVUNAR HEIMILDA !!! Þegar það kerfi væri komið á myndu menn ekki hætta sér út í válind veður !! Austfirðingar gætu beðið slakir eftir þeim tíma að fiskurinn gangi inn í firði fyrir austan. Menn myndu hittast á kæjanum spjalla og vera slakir, fara með börnin í Ísbúðina og enda svo daginn á að lesa fyrir þau !! Menn væru ba… Lesa alla

    Nú stefnir í að Svandís setji ein lögin enn til höfuðs STRANDVEIÐI kerfisins. Kerfis sem í mörg ár hefur verið talað um að gera sem réttlátast fyrir Strandveiði Sjómenn Íslands. Svo réttlátt þar sem allir myndu sitja að sama borði. Sem sagt 48 daga á 6 mánaðar tímabili án STÖÐVUNAR HEIMILDA !!! Þegar það kerfi væri komið á myndu menn ekki hætta sér út í válind veður !! Austfirðingar gætu beðið slakir eftir þeim tíma að fiskurinn gangi inn í firði fyrir austan. Menn myndu hittast á kæjanum spjalla og vera slakir, fara með börnin í Ísbúðina og enda svo daginn á að lesa fyrir þau !! Menn væru bara rólegir í landi !! Allir slakir !! Nei Nei þá hefur Ráðherra Sjávar Svandís Svavarsdóttir ákveðið að hunsa allar rök færslur og staðreyndir og etja mönnum saman frekar en hitt !!! Menn hafa farið að munnhöggvast. Sem leiðir bara til sundrungar og leiðinda eins og til var ætlast. Nú skal breita fiskveiðistjórnuninni í strandveiðunum. Nú skal taka upp gamalt og úrelt kerfi. Kerfi sem hvetur menn til að róa stíft svo stíft að menn setja sig jafnvel í stórhættu og róa þegar betur væri heima setið. Nú skal svæðis skipta !! En nei Engar breytingar !! Höldum okkur við sanngjarna 48 DAGA á 6 mánaðar tímabili án STÖÐVUNAR HEIMILDA !!!

  • #3Gísli Páll Guðjónsson
    Ef verður farið til baka í svæðaskiptinu mun aðalega tvennt gerast. 1. Strandveiði mönnum og konum verður att útí mjög óheilbrygða og stórhættulega sammkeppni til að ná sem flestum dögum. Kerfinu var breitt úr svæðaskiptingu meðal annars til að auka öryggi strandveiðifólks. Gamla kerfið sem stjórnvöld vilja fara aftur í kostaði mannslíf. Ég vona að ykkur sé ekki sama um öryggi okkar sem stunda þessar veiðar. 2. Gæði hráefnis mun minnka mikið vegna þess að strandveiðifólk mun fara nær landi að veiða þegar veður leyfir ekki að sé farið á djúpmið. Þetta mun strandveiðifólk gera til að ná dögum… Lesa alla

    Ef verður farið til baka í svæðaskiptinu mun aðalega tvennt gerast. 1. Strandveiði mönnum og konum verður att útí mjög óheilbrygða og stórhættulega sammkeppni til að ná sem flestum dögum. Kerfinu var breitt úr svæðaskiptingu meðal annars til að auka öryggi strandveiðifólks. Gamla kerfið sem stjórnvöld vilja fara aftur í kostaði mannslíf. Ég vona að ykkur sé ekki sama um öryggi okkar sem stunda þessar veiðar. 2. Gæði hráefnis mun minnka mikið vegna þess að strandveiðifólk mun fara nær landi að veiða þegar veður leyfir ekki að sé farið á djúpmið. Þetta mun strandveiðifólk gera til að ná dögum í kapphlaupi við næsta mann. ÞAð hefur verið mjög lítill munur á strandveiðisvæðum undafarin ár þess vegna er óskiljanlegt að ráðherra hendi þessu frumvarpi fram. Þegar VG tók við sjávaútvegsráðuneytinu vakna von í brjóstum margra strandveiðisjómanna. en sú von er að dofna mikið og er að breytast í vonbrigði. Þess vegna vill ég skora á ráðherra að hætta að egna fólki saman og vinna að lausnum. Það gagnast engum að flytja vandamálin milli landshluta, það mundi gagnast öllum ef þið sem vinnið í ráðuneytinu mundu hlusta á ráðleggingar þeirra sem vinna í greininni og festa 48 daga kerfið í sessi. Gísli Páll Guðjónsson Gjaldkeri Stranveiðifélagsins og tryllusjómaður

  • #4Oddur Vilhelm Jóhannsson
    Nú líður senn að jólum, þá er náungakærleikurinn hvað mestur skulum við halda. 48 daga strandveiðikerfi hefur verið baráttumál okkar strandveiðimanna en það hefur ekki gengið upp, alltaf vantað einhverja daga stundum ekki marga. En í sumar tók steinin úr 21 júlí stöðvun strandveiða, svæði c sem fyrst og fremst treystir á júlí og ágúst verður illa úti, áþeim tíma gengur stór og góður fiskur inn á það veiðisvæði, ekki í maí og júní þá er bara smá fisk að hafa og afar trekt,öfugt er aftur farið á svæði A, þar er maí og júní bestir. Það er því ekkert óeðlilegt að meðan ekki næst að tryggja… Lesa alla

    Nú líður senn að jólum, þá er náungakærleikurinn hvað mestur skulum við halda. 48 daga strandveiðikerfi hefur verið baráttumál okkar strandveiðimanna en það hefur ekki gengið upp, alltaf vantað einhverja daga stundum ekki marga. En í sumar tók steinin úr 21 júlí stöðvun strandveiða, svæði c sem fyrst og fremst treystir á júlí og ágúst verður illa úti, áþeim tíma gengur stór og góður fiskur inn á það veiðisvæði, ekki í maí og júní þá er bara smá fisk að hafa og afar trekt,öfugt er aftur farið á svæði A, þar er maí og júní bestir. Það er því ekkert óeðlilegt að meðan ekki næst að tryggja 48 daga að svæðum verði skipt upp, hvert með sinn pott. Svo ekki sé talað um byggðastefnu, hafi stjórnvöld einhvern áhuga á henni og tryggja hinum brothættu byggðum líf þá ættu þau að setja mestu úthlutunina í svæði c, það hefði það í för með sér að fólk mundi frekar flytja á svæðið sem væri þá orðið eftirsóknarvert. Það er mín skoðun að þetta þarf að íhuga vel Bestu kveðjur formaður Fonts Oddur Vilhelm jóhannsson

  • #5Strandveiðifélagið Krókur

    Meðfylgjandi er umsögn Strandveiðifélagsins Króks þar sem við hörmum og mótmælum áformum þessum um lagasetningu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-212/2022: Áform um lagasetningu - breyting á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (svæðaskipting strandveiða) · Alviti