Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
819 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-150/2023· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. ágú. 2023 – 30. ágú. 2023· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands (um leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði)
Frumvarpið mun fjalla um heimild matvælaráðherra til að veita veiðileyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði sem settur hefur verið í skip hér á landi.
- Komið til AlþingisS-148/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. ágú. 2023 – 30. ágú. 2023· 5 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um högun í upplýsingatækni í rekstri ríkisins
Til stendur að skilgreina ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins á stefnumótun og fyrirkomulagi upplýsingatæknimála ríkisins og kveða á um heimildir til að mæla fyrir um samræmd viðmið.
- Komið til AlþingisS-143/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. júl. 2023 – 8. ágú. 2023· 3 umsagnir
Áform um lagasetningu - Frumvarp til breytinga á lyfjalögum nr. 100/2020 (Viðbrögð við lyfjaskorti, lyfjaávísanir o.fl.)
Heilbrigðisráðherra kynnir áform um breytingu á lyfjalögum nr. 100/2020.
- Komið til AlþingisS-140/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 19. júl. 2023 – 21. ágú. 2023· 18 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (tillögur starfshóps um endurskoðun húsaleigulaga)
Innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar tillögur starfshóps innviðaráðherra um breytingar á húsaleigulögum til að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst.
- Komið til AlþingisS-129/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 5 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum (tímabundnar uppbyggingarheimildir)
Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum varðandi heimildir sveitarfélaga til að tímabinda uppbyggingarheimildir á grundvelli skipulags.
- Komið til AlþingisS-141/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 3 umsagnir
Áform um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun
Markmið lagabreytingarinnar er að auka styrkveitingar til minni framleiðenda.
- Komið til AlþingisS-138/2023· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 0 umsagnir
Áform um breytingar á lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög og lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá (aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka)
Áformað er að breyta tilteknum ákvæðum laga nr. 108/1999 og 19/1988 til þess að bregðast við ábendingum í áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.
- Komið til AlþingisS-137/2023· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 17. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 4 umsagnir
Áform um breytingar á lögum um söfnunarkassa og lögum um Happdrætti Háskóla Íslands (aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka)
Áformað er að breyta tilteknum ákvæðum laga nr. 73/1994 og 13/1973 til þess að bregðast við ábendingum í áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.
- Komið til AlþingisS-136/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. júl. 2023 – 7. ágú. 2023· 0 umsagnir
Breyting á lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000
Heilbrigðisráðherra áformar að gera breytingar á lögum um sjúklingatryggingu nr. 111/2000.
- Komið til AlþingisS-135/2023· Drög að stefnu· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 6 umsagnir
Drög að þingsályktunartillögu um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028
Utanríkisráðuneytið óskar eftir athugasemdum eða hugmyndum almennings og annarra hagaðila um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028.
- Komið til AlþingisS-133/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 13. júl. 2023 – 21. ágú. 2023· 4 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda)
Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (leiguskrá, forgangsréttur og fyrirsjáanleiki leiguverðs).
- Komið til AlþingisS-132/2023· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. júl. 2023 – 18. ágú. 2023· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða (skipan svæðisráða o.fl.)
Innviðaráðherra áformar að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, með síðari breytingum (skipan svæðisráða o.fl.)
- Komið til AlþingisS-125/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. jún. 2023 – 15. ágú. 2023· 0 umsagnir
Verðbréfun (STS)
Áformuð er lagasetning um verðbréfun, til innleiðingar á STS-reglugerð (ESB) 2017/2402, með áorðnum breytingum, ásamt tilheyrandi breytingum á CRR-reglugerðinni.
- Komið til AlþingisS-120/2023· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jún. 2023 – 4. sep. 2023· 0 umsagnir
Stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar (DORA)
Áformuð er lagasetning um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar, til innleiðingar á DORA-reglugerð ESB 2022/2554 hér á landi, ásamt tilheyrandi breytingatilskipun.
- Komið til AlþingisS-118/2023· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. jún. 2023 – 21. júl. 2023· 2 umsagnir
Breytingar á lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
Lagt er til að bæta við lög nr. 38/2018 reglugerðarheimildum svo ráðherra sé heimilt að kveða með nánari hætti á um ýmis atriði laganna.
- Komið til AlþingisS-110/2023· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. jún. 2023 – 21. júl. 2023· 12 umsagnir
Frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands
Frumvarpið felur í sér að Mannréttindastofnun Íslands verði komið á fót. Stofnunin mun sinna hlutverki sjálfstæðrar innlendrar mannréttindastofnunar hér á landi.
- Komið til AlþingisS-103/2023· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. maí 2023 – 13. jún. 2023· 20 umsagnir
Sameining stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins
Áformað er að vinna frumvörp til laga um Loftslagsstofnun, Náttúruverndar- og minjastofnun og Náttúruvísindastofnun í tilefni af sameiningaráformum sem varða 10 stofnanir ráðuneytisins.
- Komið til AlþingisS-85/2023· Annað· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. apr. 2023 – 8. maí 2023· 4 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023-2027
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir drög að tillögu til þingsályktunar um nýja framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar fyrir árin 2023-2027.
- Komið til AlþingisS-83/2023· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. apr. 2023 – 3. maí 2023· 4 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997
Heilbrigðisráðuneytið hefur gert breytingar á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997, sem birt var í samráðsgátt 24. janúar sl. (mál nr. 18/2023).
- Komið til AlþingisS-76/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 24. mar. 2023 – 3. apr. 2023· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003, o.fl
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá og fl. v. ákvæða í tilskipunum og reglugerðum framkvæmdastjórnar ESB um samtengingarkerfi skráa skv. 22. gr. tilskipunar 2017/1132.
- Komið til AlþingisS-73/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 16. mar. 2023 – 27. mar. 2023· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um endurskoðendur og endurskoðun og lögum um ársreikninga (endurskoðunarnefndir, siðareglur endurskoðenda, sektarákvæði o.fl.)
Í frumvarpinu er að finna breytingar á lögum um endurskoðendur nr. 94/2019 og breytingar á lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Hluti frumvarpsins var birtur í samráðsgáttinni 11. nóvember sl.
- Komið til AlþingisS-71/2023· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. mar. 2023 – 22. mar. 2023· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og lögum um tekjuskatt
Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og lögum um tekjuskatt.
- Komið til AlþingisS-67/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. mar. 2023 – 20. mar. 2023· 44 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu)
Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða ásamt mati á áhrifum lagasetningarinnar.
- Komið til AlþingisS-62/2023· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. mar. 2023 – 24. mar. 2023· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði (hnúðlax)
Með frumvarpinu er áformað að lögfesta tímabundið ákvæði til bráðabirgða til að bregðast við hnúðlaxi sem kann að koma í íslenskar ár og vötn á gildistíma ákvæðisins.
- Komið til AlþingisS-64/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. mar. 2023 – 30. mar. 2023· 38 umsagnir
Endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Markmið með endurskoðuninni er að bæta gæði jöfnunar, einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og að Jöfnunarsjóður fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar.
- Komið til AlþingisS-59/2023· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2023 – 15. mar. 2023· 8 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um útlendinga
Áform um lagasetningu til þess að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga.
- Komið til AlþingisS-54/2023· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2023 – 10. mar. 2023· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna
Frumvarpið felur í sér að tvenn lög, sem eru nátengd, og sem varða framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, verða sameinuð í ein lög til að stuðla að samræmingu í löggjöf.
- Komið til AlþingisS-53/2023· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2023 – 13. mar. 2023· 3 umsagnir
Breyting á lögum um handiðnað (útgáfa sveinsbréfa)
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til breytinga á lögum um handiðnað, nr. 42/1978. Með frumvarpinu er útgáfa sveinsbréfa færð frá áðurnefndu ráðuneyti til sýslumanna.
- Komið til AlþingisS-52/2023· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. mar. 2023 – 15. mar. 2023· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003
Innviðaráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003. Með frumvarpinu eru m.a. lögð til ákvæði er varða tilkynningarskyldu og stjórnvaldssektir.
- Komið til AlþingisS-50/2023· Drög að stefnu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 1. mar. 2023 – 20. mar. 2023· 45 umsagnir
Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra boðar til samráðs um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélags á Íslandi til ársins 2025
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)