Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-59/2023 · Forsætisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um útlendinga

Áform um lagasetningu til þess að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga.

Í stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs kemur m.a. fram að þátttaka fólks af erlendum uppruna auki fjölbreytileika, efli íslenskt samfélag og menningu og sé ein forsenda fyrir vexti efnahagslífsins. Þá er þar kveðið á um að tryggja verði að innflytjendur sem hér vilja búa og starfa fái tækifæri til aðlögunar og geti nýtt hæfileika sína, þekkingu og reynslu. Ein af aðgerðunum í stjórnarsáttmálanum er að lög um útlendinga verði tekin til endurskoðunar með það að markmiði að rýmka ákvæði er varða útgáfu dvalarleyfa á grundvelli atvinnuþátttöku og auka skilvirkni með einföldun ferla. Áformin fela í sér breytingar sem gera þarf á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, til þess að stuðla að því sem fram kemur í stjórnarsáttmálanum og útfæra tillögur starfshóps um atvinnuréttindi útlendinga sem forsætisráðherra skipaði í nóvember sl. í því skyni. Markmiðið með áformunum er því að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga til þess að gera Ísland að eftirsóknarverðari og samkeppnishæfari kosti fyrir erlenda starfsmenn og nema, auka fjölbreytileika íslensks samfélags og um leið byggja undir áframhaldandi lífsgæði og velsæld til framtíðar. Þá er að því stefnt með breytingunum að styrkja stöðu innflytjenda á vinnumarkaði. Með hliðsjón af framangreindu er því í fyrsta lagi lagt til að tímabundið atvinnuleyfi verði bundið við störf í tiltekinni atvinnugrein en ekki við tiltekið starf hjá atvinnurekanda. Í öðru lagi er lagt til að tiltekin dvalarleyfi verði lengd. Í þriðja lagi er lagt til að fjölskyldusameiningar verði heimilaðar vegna fleiri dvalarleyfa. Í fjórða lagi er lagt til að undanþága verði frá kröfu um tímabundið atvinnuleyfi fyrir maka sérfræðinga. Í fimmta lagi er lagt til að sjálfstæðum atvinnurekendum verði gefið færi á að fá atvinnuleyfi. Í sjötta lagi er lagt til að lengri umþóttunartími verði fyrir sérfræðinga til atvinnuleitar í kjölfar atvinnumissis. Loks í sjöunda lagi eru lögð til aukin réttindi til handa erlendum háskólanemum í tengslum við atvinnuleit og framfærsluviðmið.

S-59/2023· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. mar. 2023 – 15. mar. 2023· 8 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um útlendinga

Áform um lagasetningu til þess að rýmka reglur um dvalar- og atvinnuréttindi útlendinga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-59/2023)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. mars 2023
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (153. þing, mál 944)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (31. mars 2023)

Niðurstöður samráðs kölluðu ekki á breytingar. Athugasemdum umsagnaraðila eru gerð skil í niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-59/2023: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lögum um útlendinga · Alviti