Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
108 mál · sótt 27. október 2026
- Komið til AlþingisS-324/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 16. jan. 2020· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, hringrásarhagkerfi, plastvörur)
Markmið með frumvarpinu er að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks og styðja við hringrásarhagkerfið og notkun endurnotanlegra vara. Með frumvarpinu er innleidd ný Evróputilskipun um plastvörur.
- Komið til AlþingisS-327/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 10. jan. 2020· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um lækningatæki
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um lækningatæki. Umsagnarfrestur er til og með 10. janúar 2020.
- Komið til AlþingisS-322/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 10. jan. 2020· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt (milliverðlagning)
Í frumvarpi þessu er lagt til að lögfestar verði reglur um sektarheimild ríkisskattstjóra þegar skjölunarskyldir lögaðilar fara ekki að ákvæðum 5. mgr. 57. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, í milliverðlagningarmálum.
- Komið til AlþingisS-319/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 15. jan. 2020· 3 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (byggingastarfsemi, almenningssamgöngur o.fl.)
Áformaðar breytingar á lögum um virðisaukaskatt sem fela í sér breytingar á ákvæðum laganna er varða byggingastarfsemi, almenningssamgöngur, fjármálastarfsemi og skýrleika skattframkvæmdar og bætt skattskil.
- Komið til AlþingisS-317/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. des. 2019 – 20. jan. 2020· 72 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um Hálendisþjóðgarð
Með frumvarpinu er lagt til að stofnaður verði þjóðgarður á miðhálendinu í samræmi við sáttmála ríkisstjórnar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis frá 30. nóvember 2017.
- Komið til AlþingisS-311/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. des. 2019 – 31. des. 2019· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013 (gjaldstofn og skilyrði helmings afsláttar af stimpilgjaldi)
Áformaðar breytingar á lögum um stimpilgjald sem fela í sér breytingar til skýringarauka á annars vegar einstaka ákvæðum laganna um gjaldstofn og hins vegar skilyrðum varðandi helmings afslátt vegna fyrstu íbúðarkaupa.
- Komið til AlþingisS-305/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 10. des. 2019 – 2. jan. 2020· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 40/2013 um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi
Í frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 40/2013 um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi vegna innleiðingar tilskipunar (ESB) 2015/1513 sem gerir breytingu á tilskipunum 98/70/EB og 2009/28/EB.
- Komið til AlþingisS-304/2019· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. des. 2019 – 9. jan. 2020· 14 umsagnir
Drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti og um breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, til innleiðingar á nýjum fjarskiptapakka ESB (BEREC-reglugerð ESB nr. 2018/1971 og EECC-tilskipun ESB nr. 2018/1972.
- Komið til AlþingisS-301/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. des. 2019 – 2. jan. 2020· 7 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Í áformuðu frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögum 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
- Komið til AlþingisS-297/2019· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. nóv. 2019 – 13. des. 2019· 7 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um mannanöfn
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um mannanöfn með það að markmiði að rýmka heimildir til skráningar nafna og kenninafna.
- Komið til AlþingisS-294/2019· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. nóv. 2019 – 13. des. 2019· 0 umsagnir
Áform um lagasetningu - Lög um skip
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um skip. Um er að ræða ný heildarlög sem endurskoða og sameina ýmis lög á þessu sviði og fella brott lög sem eru úrelt. Markmið lagasetningar er að útbúa aðgengilega og heilsteypta löggjöf með því að einfalda, uppfæra og samræma íslenska löggjöf um skip og umsýslu hennar.
- Komið til AlþingisS-292/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. nóv. 2019 – 6. des. 2019· 6 umsagnir
Frumvarp - breyting á lögum um loftslagsmál (EES-innleiðing), nr. 70/2012
Frumvarp um breytingar á lögum um loftslagsmál. Með frumvarpinu er ætlunin að leiða í lög breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir á 4. tímabili kerfisins sem hefst 2021. Frumvarpið mun einnig veita tveimur reglugerðum ESB lagastoð (2018/841 LULUCF og 2018/842 ESR).
- Komið til AlþingisS-290/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. nóv. 2019 – 9. des. 2019· 29 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð
Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um þjóðgarð á miðhálendi Íslands. Þverpólitísk nefnd um undirbúning að stofnun þjóðgarðsins hefur unnið að áherslum sem frumvarpið mun byggja á.
- Komið til AlþingisS-288/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2019 – 3. des. 2019· 0 umsagnir
Brottfall úreltra laga
Með frumvarpsdrögunum er ætlunin að fella á brott lög á málefnasviðum fjármála- og efnahagsráðuneytis sem ekki hafa þýðingu lengur.
- Komið til AlþingisS-287/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. nóv. 2019 – 4. des. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun
Lagðar eru til breytingar á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun vegna innleiðingar reglugerðar (ESB) 2017/1369 um setningu regluverks um orkumerkingar.
- Komið til AlþingisS-286/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2019 – 26. nóv. 2019· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, með síðari breytingum (skil ársreikninga)
Frumvarpinu er ætlað að skýra nánar þau tilvik þegar ársreikningaskrá krefur um skipti á félagi á grundvelli 121. gr. laganna, í þeim tilvikum þegar ársreikningi hefur ekki verið skilað innan réttra fresta eða skilað með ófullnægjandi hætti.
- Komið til AlþingisS-284/2019· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. nóv. 2019 – 2. des. 2019· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands
Með frumvarpinu er lagt til að settar verði skýrari reglur en nú gilda um skráningu hagsmuna og hagsmunaárekstra æðstu handhafa framkvæmdarvalds sem starfa innan Stjórnarráðs Íslands.
- Komið til AlþingisS-282/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. nóv. 2019 – 22. nóv. 2019· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar).
Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu tengjast bæði skattlagningu einstaklinga og lögaðila og taka til nauðsynlegra breytinga á ýmsum lögum um skatta og gjöld með það að markmiði að eyða réttaróvissu og gera löggjöf á sviði skattamála skýra.
- Komið til AlþingisS-278/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. nóv. 2019 – 18. nóv. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda (samræmd móttaka flóttafólks og breyting á skipan í innflytjendaráð)
Félagsmálaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 116/2012 um málefni innflytjenda.
- Komið til AlþingisS-265/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2019 – 13. nóv. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um lýsingar verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði
Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1129/2017 um lýsingu sem birta skal við almenn útboð verðbréfa eða vegna töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum markaði.
- Komið til AlþingisS-270/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. okt. 2019 – 12. nóv. 2019· 27 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum (lenging á rétti til fæðingarorlofs).
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, sem fela í sér lengingu fæðingarorlofs.
- Komið til AlþingisS-269/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. okt. 2019 – 12. nóv. 2019· 2 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, plastvörur)
Í áformuðu frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til innleiðingar á tilskipun ESB um minnkun umhverfisáhrifa af tilteknum vörum úr plasti.
- Komið til AlþingisS-264/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2019 – 5. nóv. 2019· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005, með síðari breytingum (rafræn afgreiðsla, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla o.fl.).
- Komið til AlþingisS-263/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. okt. 2019 – 4. nóv. 2019· 5 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða
Drög að frumvarpi um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða. Kveðið er á um greiðslu viðbótarstuðnings til aldraðra einstaklinga eldri en 67 ára sem búa og dvelja varanlega á Íslandi en sem hafa áunnið sér lítil sem engin lífeyrisréttindi og hafa heildartekjur undir tilteknu viðmiði.
- Komið til AlþingisS-262/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. okt. 2019 – 4. nóv. 2019· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar (hálfur lífeyrir)
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir breytingum á lögum um almannatryggingar að því er varðar hálfan ellilífeyri.
- Komið til AlþingisS-258/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. okt. 2019 – 7. nóv. 2019· 0 umsagnir
Brottfall úreltra laga á málefnasviði FJR
Áformað er að fella brott lög á málefnasviðum fjármála- og efnahagsráðuneytis sem ekki hafa þýðingu lengur.
- Komið til AlþingisS-255/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. okt. 2019 – 23. okt. 2019· 10 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til einföldunar regluverks
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum til einföldunar regluverks á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
- Komið til AlþingisS-249/2019· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. okt. 2019 – 18. okt. 2019· 3 umsagnir
Drög að frumvörpum til laga vegna samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd.
Með frumvörpunum er lagt til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/2394 frá 12. desember 2017 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004.
- Komið til AlþingisS-248/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. okt. 2019 – 14. okt. 2019· 5 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, (afnám stimpilgjaldskyldu á skjölum vegna eignayfirfærslu skipa)
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stimpilgjald, nr. 138/2013, sem fela í sér afnám stimpilgjalds af skjölum er varða eignayfirfærslu skipa.
- Komið til AlþingisS-245/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. okt. 2019 – 18. okt. 2019· 2 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)