Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Í áformuðu frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögum 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-301/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. janúar 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. september 2021)
Niðurstaða málsins i stuttu máli; Alls bárust 7 umsagnir um áformin þar sem m.a. voru reifuð ýmis sjónarmið um málið. Frumvarp var í kjölfarið unnið í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, m.a. á grundvelli tillagna í skýrslu nefndar um lagalega og stjórnsýslulega stöðu villtra fugla og villtra spendýra sem skilað var til ráðherra hinn 3. apríl 2013. Frumvarp um mál þetta var auglýst til umsagnar í Samráðsgáttinni þann 8. júlí 2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Fuglaverndarfélag Íslands
Fuglavernd fagnar því að til standi að endurskoða lög nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og tekur undir þörfina fyrir slíka heildarendurskoðun og jafnframt vill Fuglavernd ítreka nauðsyn þess að farið verði að fullu eftir tillögum nefndar fyrrverandi ráðherra um lagalega stöðu villtra fugla og spendýra sem settar voru fram í skýrslunni „Vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra - Lagaleg og stjórnsýsluleg staða og tillögur um úrbætur“ Sjá: https://www.stjornarradid.is/gogn/rit-og-skyrslur/stakt-rit/?NewsId=88bdd52f-e34e-11e6-9c23-e4a47104df… Lesa alla
Fuglavernd fagnar því að til standi að endurskoða lög nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og tekur undir þörfina fyrir slíka heildarendurskoðun og jafnframt vill Fuglavernd ítreka nauðsyn þess að farið verði að fullu eftir tillögum nefndar fyrrverandi ráðherra um lagalega stöðu villtra fugla og spendýra sem settar voru fram í skýrslunni „Vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra - Lagaleg og stjórnsýsluleg staða og tillögur um úrbætur“ Sjá: https://www.stjornarradid.is/gogn/rit-og-skyrslur/stakt-rit/?NewsId=88bdd52f-e34e-11e6-9c23-e4a47104df25 eða link á heimasíðu Fuglaverndar www.fuglavernd.is. Umsögn Fuglaverndar er í viðhengi.
- #2Þórhallur Pálsson
Ég vil leggja það til að íslenski refurinn verði alfriðaður. Bændur og aðrir sem telja sig verða fyrir tjóni af völdum refa og geti lagt fram sönnun fyrir því sæki bætur í tryggingasjóð á vegum ríkisins, en greiði ekki iðgjöld til hans.
- #3Kári Gunnarsson
Mikilvægt er að hafa í huga breytingar á háttum fugla, t.d. hafa ernir síðasta ár haft fasta viðveru í Skagafirði, sem ekki hefur verið um aldir. Fyrirséð er að þeir gætu átt eftir að valda tjóni á æðarvörpum, sem eru í Skagafirði. Sama má segja um álftir, sem hefur fjölgað mikið á síðustu áratugum, frekari fjölgun mun valda auknu tjóni á kornrækt og nýræktum á næstu árum. Þessi tvö dæmi eru mikilvæg, því fylgjast þarf með fjölgun og búsvæðabreytingum svo sem best vitneskja fáist um hverja tegund, nýliðun og tjón af völdum þeirra, ef eitthvað er. Mín skoðun er að þetta verði best gert með vök… Lesa alla
Mikilvægt er að hafa í huga breytingar á háttum fugla, t.d. hafa ernir síðasta ár haft fasta viðveru í Skagafirði, sem ekki hefur verið um aldir. Fyrirséð er að þeir gætu átt eftir að valda tjóni á æðarvörpum, sem eru í Skagafirði. Sama má segja um álftir, sem hefur fjölgað mikið á síðustu áratugum, frekari fjölgun mun valda auknu tjóni á kornrækt og nýræktum á næstu árum. Þessi tvö dæmi eru mikilvæg, því fylgjast þarf með fjölgun og búsvæðabreytingum svo sem best vitneskja fáist um hverja tegund, nýliðun og tjón af völdum þeirra, ef eitthvað er. Mín skoðun er að þetta verði best gert með vöktun allra friðaðra fuglastofna, svo sem best þekking fáist um viðkomu og möguleika hverrar tegundar. Gæta verður að því að regluverk um vernd og veiðar sé með þeim hætti að gerlegt sé að framfylgja þeim. T.d. hafa refir fært bústaði sína mun nær byggð en áður var, því munu margskonar framkvæmdir manna hafa áhrif á búsvæði þeirra,þar sem engir refir voru fyrir fáum áratugum síðan. Við lagasetningu þarf að hafa þetta allt í huga. Kv, Kári.
- #4Sveinbjörn Guðmundsson
Sjá viðhengi
- #5Sveinbjörn Guðmundsson
Ég vill gjarnanvekja athygli og eiga kost á því að stunda hreindýraveiðar í nóvember. Kosturinn við nóvemberveiðar er sá að kálfar fá lengri tíma með mæðrum sínum. Álag á veiðislóð er minna og færri ferðamenn á ferli. Aðgengi að gistingu er betra og dýrin færa sig neðar þegar vetrar. Oftar en ekki er farið að frysta og jörð verður síður fyrir raski. Í það minnsta tel ég að veiðimenn eigi að hafa val um það hvort kýr séu feldar í nóvember. Svo má benda á að meðferð á kjöti verður betri í kulda og hægara með fluttning á skrokkum. Það er stór hluti af veiðum að koma heim með góða bráð og njóta m… Lesa alla
Ég vill gjarnanvekja athygli og eiga kost á því að stunda hreindýraveiðar í nóvember. Kosturinn við nóvemberveiðar er sá að kálfar fá lengri tíma með mæðrum sínum. Álag á veiðislóð er minna og færri ferðamenn á ferli. Aðgengi að gistingu er betra og dýrin færa sig neðar þegar vetrar. Oftar en ekki er farið að frysta og jörð verður síður fyrir raski. Í það minnsta tel ég að veiðimenn eigi að hafa val um það hvort kýr séu feldar í nóvember. Svo má benda á að meðferð á kjöti verður betri í kulda og hægara með fluttning á skrokkum. Það er stór hluti af veiðum að koma heim með góða bráð og njóta með fjölskyldu og vinum. Ég tala hér af reynslu og hef stundað hreindýraveiðar í nóvember á svæðum í nágrenni Hornafjarðar. Ég tel ástæðulaust að hafa nóvemberveiðar á takmörkuðum fjölda veiðisvæða. Í dag eru ökutæki betri, vegir betri, leiðsögumenn með veiðimönnum og því aum rök að benda á hættu á því að veiðimenn fari sér að voða í nóvember. Jafnframt tel ég að leyfa eigi tarfaveiðar í nóvember kjósi veiðimenn að gera svo. Fyrir 2 árum voru nóvemberveiðar styttar á svæði 8 og voru rökin þau að tímafrekt væri að reikna út felligjöld. Þessu þarf að breyta og starfsmenn UST mættu gjarnan finna sér annað verklag og veiðar þurfa að vera í það minnsta til nóvemberloka. Varðandi veiðar á öðrum dýrum tel ég að dýr eigi að hafa grið við got og uppeldið og upp í hugann kemur svo kölluð grenjavinnsla. Vissulega er þetta snúið viðfangsefni og þarf að huga að hagsmunum æðarræktenda og sauðfjárbænda. Varðandi veiðar á fuglum er tímabært að gera kröfur um lágmarks hittni (skotpróf) Bestu kveðjur Sveinbjörn Guðmundsson Kt. 220262 5889 Hlíðarhjalla 67. 200 Kópavogur GSM 898 7411
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.