Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-292/2019 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp - breyting á lögum um loftslagsmál (EES-innleiðing), nr. 70/2012

Frumvarp um breytingar á lögum um loftslagsmál. Með frumvarpinu er ætlunin að leiða í lög breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir á 4. tímabili kerfisins sem hefst 2021. Frumvarpið mun einnig veita tveimur reglugerðum ESB lagastoð (2018/841 LULUCF og 2018/842 ESR).

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á lögum um loftslagsmál. Með frumvarpinu er m.a. ætlunin að heimila setningu reglna sem varða kröfur vegna skuldbindinga Íslands samkvæmt Parísarsamningnum á tímabilinu 2021-2030. Ísland hefur ásamt Noregi náð samkomulagi við Evrópusambandið um þátttöku í sameiginlegu markmiði 30 ríkja innan Parísarsamningsins. Efnislegt samkomulag náðist að mestu í lok árs 2018, en síðan hefur farið fram skoðun á lagalegum þáttum og frágangur á texta. Samkvæmt samkomulaginu eru teknar upp tvær lykilreglugerðir ESB á sviði loftslagsmála, auk reglna um bókhald og skýrslugjöf o.fl. Samkomulagið er með fyrirvara um staðfestingu Alþingis og verður þingsályktunartillaga þar um lögð fram í desember nk. Frumvarpinu er ætlað að veita lagaheimild til að innleiða ofangreindar reglugerðir, en þær fjalla annars vegar um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt og hins vegar um „sameiginlega ábyrgð“, sem nær til losunar utan viðskiptakerfis ESB, s.s. frá samgöngum, sjávarútvegi, landbúnaði og meðferð úrgangs. Í frumvarpinu eru einnig ákvæði um breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) á fjórða tímabili viðskiptakerfisins sem varir frá 2021–2030. Lögin eins og þau eru nú taka mið af tímabilinu 2013-2020. Í frumvarpinu er lagt til að sett verði ákvæði um auknar vöktunarskyldur flugrekenda vegna hnattræns kerfis Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) sem ætlað er að taka á losun frá flugumferð frá 2021 (Carbon Offsetting and Reduction Scheme, CORSIA). Frestur til að gera athugasemdir við frumvarpið rennur út 6. desember n.k. Gerðirnar sem um ræðir eru nánar tiltekið: 1) reglugerðir ESB 2018/841 um landnotkun, breytta landnotkun og skógrækt og 2018/842 um sameiginlega ábyrgð, 2) tilskipun (ESB) 2018/410 sem breytir tilskipun 2003/87/EB. Um er að ræða breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) á fjórða tímabili viðskiptakerfisins sem varir frá 2021-2030, 3) ákvæði um auknar vöktunarskyldur vegna kerfis Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) til þess að vakta, gefa skýrslu um og fá vottun fyrir losun frá flugi, 4) að síðustu verða gerðar breytingar á VI. kafla laganna um skráningarkerfið til þess að innleiða breytingar á fjórða tímabili ETS í kjölfarið á útgáfu reglugerðar (ESB) 2019/1122 sem er sett til viðbótar við tilskipun 2003/87/EB hvað varðar virkni skráningarkerfis Evrópusambandsins.

S-292/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. nóv. 2019 – 6. des. 2019· 6 umsagnir

Frumvarp - breyting á lögum um loftslagsmál (EES-innleiðing), nr. 70/2012

Frumvarp um breytingar á lögum um loftslagsmál. Með frumvarpinu er ætlunin að leiða í lög breytingar á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir á 4. tímabili kerfisins sem hefst 2021. Frumvarpið mun einnig veita tveimur reglugerðum ESB lagastoð (2018/841 LULUCF og 2018/842 ESR).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-292/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. desember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 718)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (28. maí 2020)

Fimm umsagnir bárust um frumvarpið eftir birtingu þess í samráðsgátt. Athugasemdir lutu m.a. að mögulegri tengingu CarbFix aðferðarinnar við ETS-kerfið. Þess má geta að vinna við það er í gangi á vegum stjórnvalda. Lögð var til breyting á skilgreiningu "bindingar kolefnis úr andrúmslofti" sem tekið var tillit til í frumvarpinu. Náttúruverndarsamtök Íslands óskuðu frekari skýringa á samstarfi Íslands við ESB um sameiginlegt losunarmarkmið. Orðalagi ákvæðis í frumvarpi var breytt í kjölfarið til frekari skýringa.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Verne Global hf.
    Fyrir hönd Verne Global hf. þá geri ég athugasemd við texta í Frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, með síðari breytingum (EES-reglur). Á bls. 18 eru tiltekin sjö fyrirtæki á Íslandi sem eru þátttakendur í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fyrir staðbundinn iðnað. Nafn Verne er á listanum og tilgreint að samanlögð losun þessara sjö fyrirtækja sé 40% af heildarlosun Íslands. Við teljum að þessar upplýsingar séu verulega villandi og gefi í skyn að Verne Global hf. sé ábyrgt fyrir umtalsverðum hluta af heildarlosun landsins, sem ekki getur verið meira fja… Lesa alla

    Fyrir hönd Verne Global hf. þá geri ég athugasemd við texta í Frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012, með síðari breytingum (EES-reglur). Á bls. 18 eru tiltekin sjö fyrirtæki á Íslandi sem eru þátttakendur í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir fyrir staðbundinn iðnað. Nafn Verne er á listanum og tilgreint að samanlögð losun þessara sjö fyrirtækja sé 40% af heildarlosun Íslands. Við teljum að þessar upplýsingar séu verulega villandi og gefi í skyn að Verne Global hf. sé ábyrgt fyrir umtalsverðum hluta af heildarlosun landsins, sem ekki getur verið meira fjarri sanni. Ástæða veru  Verne Global hf. á þessum lista er að fyrirtækið er með uppsettar varaaflstöðvar til að tryggja uppitíma kerfa viðskiptavina fyrirtækisins, notkunin takmarkast við afmarkaðar prófanir og rof á afhendingu rafmagns frá Landsneti. Í raun er heildarlosun Verne Global hf. einungis 36 tonn fyrir árið 2018 sem er brotabrot af framangreindri heildarlosun eða sem mér reiknast til að sé u.þ.b. 0,0019% af 40%. Mbk, Helgi Helgason

  • #2Norðurál ehf.

    Norðurál þakkar fyrir tækifæri til að koma með umsögn varðandi breytingar á lögum um loftlagsmál (EES-innleiðing), nr. 70/2012. Sjá umsögn í viðhengi.

  • #3Orkuveita Reykjavíkur

    Góðan daginn Hjálögð er umsögn Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga við frumvarp til laga um breytingum á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012. Með kærri kveðju Íris Lind Sæmundsdóttir Lögmaður

  • #4Orkuveita Reykjavíkur

    Góðan daginn Hjálögð er umsögn Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga við frumvarp til laga um breytingum á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012. Með kærri kveðju Íris Lind Sæmundsdóttir Lögmaður

  • #5Árni Bragason

    Sendi hér inn umsögn Landgræðslunnar um breytingar á lögum nr. 70/2012.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-292/2019: Frumvarp - breyting á lögum um loftslagsmál (EES-innleiðing), nr. 70/2012 · Alviti