Beint í efni
Alviti
Þingmál150. þing · 720. mál

Hollustuhættir og mengunarvarnir

EES-reglur, plastvörur

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 29. jún. 2020

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að innleiða tilskipun ESB nr. 2019/904 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Með innleiðingunni er stefnt að því að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks, og vekja neytendur til umhugsunar um neyslu og umhverfisáhrif plasts, draga úr notkun einnota plastvara og styðja við notkun fjölnota vara.

Lagt fram af Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 29. jún. 2020 greiddu 48 atkvæði með og 6 á móti, 1 sátu hjá; málið var samþykkt.

Lagt fram
16. apríl 2020
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
5
Umræða í þingsal
26 ræður · 1 klst. 44 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 3. júl. 2020

Markmiðið

Að innleiða tilskipun ESB nr. 2019/904 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Með innleiðingunni er stefnt að því að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks, og vekja neytendur til umhugsunar um neyslu og umhverfisáhrif plasts, draga úr notkun einnota plastvara og styðja við notkun fjölnota vara.

Hvað breytist

Með frumvarpinu verður innleidd tilskipun (ESB) 2019/904 um minnkun umhverfisáhrifa af tilteknum vörum úr plasti. Gert er ráð fyrir að bannað verði að setja á markað tilteknar einnota plastvörur og vörur úr plasti, sem er niðurbrjótanlegt með oxun. Lagt er til að óheimilt verði að afhenda einnota matarílát og bolla úr plasti án endurgjalds, og að gjaldið verði sýnilegt á kassakvittun. Einnig eru lagðar til kröfur um gerð og samsetningu tiltekinna einnota drykkjaríláta. Þá er lagt til að Umhverfisstofnun hafi umsjón með reglubundnu, opinberu eftirliti til þess að tryggja að farið sé eftir lagaákvæðum um plastvörur. Gert er ráð fyrir að stofnuninni verði heimilt að stöðva markaðssetningu vöru þar til bætt hefur verið úr ágöllum og að stjórnvaldinu verði heimilt að leggja stjórnvaldssektir á einstakling eða lögaðila, sem brýtur gegn lagaákvæðum um plastvörur. Enn fremur er lagt til að gildissviði laganna verði breytt þannig að lögin taki til þeirrar atvinnustarfsemi þar sem afhending plastvara fer jafnan fram og efnisákvæði frumvarpsins beinast að. Þá er gert ráð fyrir að í stefnu ráðherra um úrgangsforvarnir og í svæðisáætlunum sveitarstjórna um meðhöndlun úrgangs, að því er varðar umfjöllun þeirra um úrgangsforvarnir, verði fjallað að því marki sem við á um ráðstafanir sem lúta að plastvörum og kveðið er á um í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Þá er lagt til að í lög um meðhöndlun úrgangs verði bætt við fyrirmælum um að beina skuli upplýsingagjöf og fræðslu, sem ráðist er í á grundvelli laganna, sérstaklega að plastvörum, með vísan til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Lög sem breytast

Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Lög um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að kostnaður hljótist af auknum verkefnum Umhverfisstofnunar vegna markaðseftirlits með plastvörum en ekki kemur fram í greinargerð með frumvarpinu hversu hár sá kostnaður gæti orðið.

Meira úr samantektinni

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið.

Sáttmáli Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis.

Saman gegn sóun – Almenn stefna um úrgangsforvarnir 2016 - 2027. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið.

Tillaga að aðgerðaáætlun í plastmálefnum. Samráðsvettvangur um aðgerðaáætlun í plastmálefnum, 29. október 2018.

Sameiginleg yfirlýsing umhverfisráðherra Norðurlandanna um að vera leiðandi við að draga úr umhverfisáhrifum vegna plasts (10. apríl 2019).

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Ari Trausti Guðmundsson

Lokaatkvæðagreiðsla
29. jún. 2020
Samþykkt48 með · 6 á móti · 1 sátu hjá
Að samþykkja frumvarpið „Hollustuhættir og mengunarvarnir“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S15–0
  • 239–0
  • M0–6
  • F7–0
  • Sf7–0
  • 435–0
  • V3–0
  • Flf1–0 · 1 hjá
  • U1–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Umhverfis- og samgöngunefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 20. maí 2020
Sendu inn umsögn eða erindi
7 aðilar
Pure north recycling, Landvernd, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, Samtök iðnaðarins, SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu og Samtök atvinnulífsins o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
1 klst. 44 mín · 26 ræður
7 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að kostnaður hljótist af auknum verkefnum Umhverfisstofnunar vegna markaðseftirlits með plastvörum en ekki kemur fram í greinargerð með frumvarpinu hversu hár sá kostnaður gæti orðið.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 29. júní 2020: 48 með, 6 á móti, 1 sátu hjá.

Greiddu atkvæði með2 tóku til máls

46 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Greiddu atkvæði á móti4 tóku til máls

2 aðrir þingmenn greiddu atkvæði á móti án þess að taka til máls.

Sátu hjá0 tóku til máls

1 annar sat hjá án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna1 tók til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-269/2019· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. okt. 2019 – 12. nóv. 2019· 2 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, plastvörur)

Í áformuðu frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til innleiðingar á tilskipun ESB um minnkun umhverfisáhrifa af tilteknum vörum úr plasti.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-269/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. nóvember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (19. nóvember 2019)

Tvær umsagnir bárust um áformin í gegnum Samráðsgátt. Í þeim fólust gagnlegar ábendingar sem hafðar verða til hliðsjónar við vinnslu frumvarpsins og við endanlegt mat á áhrifum lagasetningarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu verður gerð nánari grein fyrir umsögnum og verða drög að frumvarpinu kynnt í Samráðsgáttinni.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Ísleifur Gíslason
    Það er óþolandi þegar á að kaupa kjötvörur að finna þær allar innpakkaðar í plast. 1. Í fyrsta lagi eru skammtarnir yðulega óhentugir, annað hvort of litlir eða of stórir, en hvort tveggja stuðlar að matarsóun. 2. Það ætti ekki að vera vandamál að selja kjötvöru í þeim skömtum sem neytandin óskar og nota ílát úr náttúrulega niðurbrjótanlegum efnum, til dæmis pappa gerðum úr hampi eða hálmi sem síðan má henda í tunnnuna sem ætluð er fyrir lífrænt, til moltugerðar. Eða þá ílát sem neytandinn kemur sjálfur með í búðina. 3. Enn eru nokkrar verslanir sem bjóða kjötvörur sem eru afgreiddar kjötbo… Lesa alla

    Það er óþolandi þegar á að kaupa kjötvörur að finna þær allar innpakkaðar í plast. 1. Í fyrsta lagi eru skammtarnir yðulega óhentugir, annað hvort of litlir eða of stórir, en hvort tveggja stuðlar að matarsóun. 2. Það ætti ekki að vera vandamál að selja kjötvöru í þeim skömtum sem neytandin óskar og nota ílát úr náttúrulega niðurbrjótanlegum efnum, til dæmis pappa gerðum úr hampi eða hálmi sem síðan má henda í tunnnuna sem ætluð er fyrir lífrænt, til moltugerðar. Eða þá ílát sem neytandinn kemur sjálfur með í búðina. 3. Enn eru nokkrar verslanir sem bjóða kjötvörur sem eru afgreiddar kjötborði og virðast ekki tapa á því sbr. Fjarðarkaup í Hafnarfirði. Þetta er til fyrirmyndar og ætti að skylda aðra stórmarkaði til að gera slíkt hið sama.

  • #2Sigurður Örn Guðleifsson

    Fyrir hönd ráðgjafarnefndar um eftirlit á vegum hins opinbera, sem starfar á grundvelli laga um opinberar eftirlitsreglur, nr. 27/1999. Sigurður Örn Guðleifsson, formaður.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-324/2019· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 16. jan. 2020· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, hringrásarhagkerfi, plastvörur)

Markmið með frumvarpinu er að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks og styðja við hringrásarhagkerfið og notkun endurnotanlegra vara. Með frumvarpinu er innleidd ný Evróputilskipun um plastvörur.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-324/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. apríl 2021)

Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgáttinni 20. desember 2019 og veittur frestur til 16. janúar 2020 til að skila umsögnum. . Alls bárust sex umsagnir um frumvarpið og gáfu þær ekki tilefni til að gera á því breytingar fyrir framlagningu á Alþingi. Lög nr. 90/2020 tóku gildi 7. júlí 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Júlíus Geir Gíslason

    Snilld!

  • #2Bjarni Valur Guðmundsson
    Sæll ágæti viðtakandi. Þetta er gott fyrsta skref en mér finnst að það mætti ganga lengra í að banna ákveðnar plastvörur. Ég sé t.d. engan tilgang í að fyrirtæki eins og Mjólkursamsalan sé með plastdollur undir skyr, jógúrt og fleiri vörur. Mjólkurvinnslan Arna ehf. hefur sett þessar umbúðir í pappa. Eins finnst mér að það mætti banna að selja jólakúlur úr plasti á jólatré því þær eru til úr pappír. Jafnframt ætti að hætta að selja plastjólapappír og annan plastgjafapappír. Hann er illa hæfur til endurvinnslu og vill fara í pappírsgáma þegar honum er hent þar sem hann á ekki heima. Eins mæt… Lesa alla

    Sæll ágæti viðtakandi. Þetta er gott fyrsta skref en mér finnst að það mætti ganga lengra í að banna ákveðnar plastvörur. Ég sé t.d. engan tilgang í að fyrirtæki eins og Mjólkursamsalan sé með plastdollur undir skyr, jógúrt og fleiri vörur. Mjólkurvinnslan Arna ehf. hefur sett þessar umbúðir í pappa. Eins finnst mér að það mætti banna að selja jólakúlur úr plasti á jólatré því þær eru til úr pappír. Jafnframt ætti að hætta að selja plastjólapappír og annan plastgjafapappír. Hann er illa hæfur til endurvinnslu og vill fara í pappírsgáma þegar honum er hent þar sem hann á ekki heima. Eins mætti banna borða á jólagjöfum og öðrum tækifærisgjöfum séu þeir úr plasti. Hægt er að nota tausnæri. Starfsmenn kirkjugarðanna hafa kvartað sáran yfir plastborðum á leiðisgreinum en þeir eru margar vikur að flokka þá frá lífrænum úrgangi. Það mætti skoða að banna að selja leiðisgreinar með slíku plasti. Þá finnst mér mjög mikilvægt að banna allt örplast í snyrtivörum. Með virðingu, Bjarni.

  • #3Endurvinnslan hf
    Ef að setja á stefnu þarf að gæta þess að tilgangi hennar sé náð og slíkar stefnur séu almennar og gildi um allar sambærilegar vörur hvort sem það á við innihald eða tegund. Hvetjum við því til þess að stefna sé sett um allar drykkjarumbúðir og þess gætt að ekki myndist óeðlilegt misræmi sem er í andstöðu við stefnuna í úrgangsmálum.  Endurvinnslan hf telur rétt að tryggt sé að ákvæði í þessum lögum sem snúa að áföstum plast tappa eigi við allar umbúðir með lausum plast töppum og bendir í því sambandi á drykkjarumbúðir eins og tetrapack með plast tappa og skvísur með plast tappa. Hvorutveggja… Lesa alla

    Ef að setja á stefnu þarf að gæta þess að tilgangi hennar sé náð og slíkar stefnur séu almennar og gildi um allar sambærilegar vörur hvort sem það á við innihald eða tegund. Hvetjum við því til þess að stefna sé sett um allar drykkjarumbúðir og þess gætt að ekki myndist óeðlilegt misræmi sem er í andstöðu við stefnuna í úrgangsmálum.  Endurvinnslan hf telur rétt að tryggt sé að ákvæði í þessum lögum sem snúa að áföstum plast tappa eigi við allar umbúðir með lausum plast töppum og bendir í því sambandi á drykkjarumbúðir eins og tetrapack með plast tappa og skvísur með plast tappa. Hvorutveggja einnota drykkjarumbúðir með plast tappa. Bendir Endurvinnslan hf. á að í þessum lögum eru íþyngjandi ákvæði um að ákveðið hlutfall af innihaldi plastumbúðarinnar sé úr rPET eða endurunnu PET sem er dýrara í innkaupum en vPET (frum PET). Þó að Endurvinnnslan hf. taki fyllilega undir að slíkt sé æskilegt, þá er hér verið að íþyngja einni drykkjarumbúð án þess að slíkar kröfur séu gerðar til annarra umbúða. Sérstök ákvæði eru um merkingar á plastumbúðum og Endurvinnslan hf. telur eðlilegt að slík ákvæði eigi við fleirri drykkjarumbúðir svo að ekki komi til mismununar. Benda má á að sumar drykkjarumbúðir eru að hluta til úr plasti sem þessi lög virðast ekki eiga við. Gæta þarf þess að söfnunar- og töluleg markmið fyrir einnota plast drykkjarumbúðir séu raunhæf og ljóst hver tilgangur þeirra eigi að vera til að koma í veg fyrir mismunun. Ef að fækka á einni tegund drykkjarumbúðar má leiða líkur á því að það fjölgi í öðrum tegundum drykkjarumbúða og þá þarf að vera skýrt að þær séu umhverfisvænni og þjóni betur markmiðum laganna. Endurvinnslan hf. gerir ekki athugasemd við að þessi ákvæði séu sett um plast, einungis að með því að setja slík ákvæði á eina drykkjarumbúð umfram aðrar, þá gæti slíkt leitt til þess að framleiðendur færi sig yfir í aðrar tegundir drykkjarumbúða án þess að fyrir liggi að þær þjóni betur markmiðum laganna. Með þessum ákvæðum felist þannig hugsanlega óeðlileg mismunun.

  • #4Samtök atvinnulífsins

    Í viðhengi má finna umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu.

  • #5Samband íslenskra sveitarfélaga

    Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frv. um br. á hollustuháttalögum. F.h. sambandsins Guðjón Bragason

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    22 ræður · 1 klst. 16 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 20. maí 2020
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Umræða
    2. umræða
    3 ræður · 27 mín
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 6 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 6 á móti
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 6 á móti
  12. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 50 með, 6 á móti
  13. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  14. Umræða
    3. umræða
    1 ræða · 1 mín
  15. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 48 með, 6 á móti
  16. Þingskjal
  17. Þingskjal

Þingskjöl

5 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
1238Stjórnarfrumvarp16. apr. 2020Guðmundur Ingi GuðbrandssonLesaPDF
1756Nál. með brtt.20. jún. 2020Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir +5LesaPDF
1757Nefndarálit20. jún. 2020Bergþór Ólason, Karl Gauti HjaltasonLesaPDF
1938Frumvarp eftir 2. umræðu17. ágú. 2020—LesaPDF
1960Lög (samhlj.)29. jún. 2020—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

8 alls · 5 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur4. maí 2020 kl. 19:08
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ umhverfis- og samgöngunefnd4. maí 2020 kl. 19:08
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:42
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Hollustuhættir og mengunarvarnir“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:42
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Hollustuhættir og mengunarvarnir“.
    2.--4. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:42
    Að samþykkja breytingartillögu í málinu „Hollustuhættir og mengunarvarnir“.
    1--6
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 20:43
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Hollustuhættir og mengunarvarnir“.
    5.--12. gr. (verða 5.--11. gr.), svo breyttar,
    • SSjálfstæðisflokkur:16 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur29. júní 2020 kl. 20:43
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt29. júní 2020 kl. 21:44
    Að samþykkja frumvarpið „Hollustuhættir og mengunarvarnir“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:15 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:0 með · 6 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:7 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:1 með · 0 á móti · 1 sat hjá
    • UUtan þingflokka:1 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

26 ræður · 1 klst. 44 mín
  • 1. umræða: 22 ræður · 5 ræðumenn · 1 klst. 16 mín
  • 2. umræða: 3 ræður · 3 ræðumenn · 27 mín
  • 3. umræða: 1 ræða · 1 ræðumaður · 1 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Guðmundur Ingi GuðbrandssonUtan þingflokka823 mín
Bergþór ÓlasonMiðflokkurinn420 mín
Sigmundur Davíð GunnlaugssonMiðflokkurinn113 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins512 mín
Gunnar Bragi SveinssonMiðflokkurinn512 mín
Ari Trausti GuðmundssonUtan þingflokka112 mín
Karl Gauti HjaltasonMiðflokkurinn211 mín

Umsagnir og erindi

8 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Umhverfis- og samgöngunefnd sendi 1 umsagnabeiðni 6. maí 2020, frestur 20. maí 2020.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Pure north recyclingupplýsingarOpna PDF
Pure north recyclingumsögnOpna PDF
LandverndumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækjaumsögnOpna PDF
Samtök iðnaðarins, SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu og Samtök atvinnulífsinsumsögnOpna PDF
Endurvinnslan hf.umsögnOpna PDF
NeytendasamtökinumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.