Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-282/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar).

Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu tengjast bæði skattlagningu einstaklinga og lögaðila og taka til nauðsynlegra breytinga á ýmsum lögum um skatta og gjöld með það að markmiði að eyða réttaróvissu og gera löggjöf á sviði skattamála skýra.

Frumvarp þetta er samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og varðar ýmsar breytingar á skattalögum, m.a. varðandi óheimila úthlutun arðs, skilyrði frádráttarheimildar erlendra sérfræðinga, frádráttarbærni vaxtagjalda vegna blandaðra fjármálagerninga, takmörkun á frádrætti vaxtagjalda, álagningu og kærufresti lögaðila, innheimtu og ábyrgð, tvöfalda refsingu, staðgreiðslu af söluhagnaði af hlutabréfum og stofnbréfum í tilviki þeirra sem bera ótakmarkaða skattskyldu hér á landi, ráðstöfun persónuafsláttar, styrkingu á framkvæmd virðisaukaskatts o.fl.

S-282/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. nóv. 2019 – 22. nóv. 2019· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar).

Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu tengjast bæði skattlagningu einstaklinga og lögaðila og taka til nauðsynlegra breytinga á ýmsum lögum um skatta og gjöld með það að markmiði að eyða réttaróvissu og gera löggjöf á sviði skattamála skýra.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-282/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. nóvember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 450)
Niðurstöður samráðs (26. nóvember 2019)

Í umsögnum um frumvarpsdrögin koma fram margvíslegar ábendingar og athugasemdir við einstaka greinar frumvarpsins. Tekið hefur verið tillit til sumra þeirra og brugðist við öðrum í sérstöku skjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-282/2019: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar). · Alviti