Áform um frumvarp til laga um mannanöfn
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um mannanöfn með það að markmiði að rýmka heimildir til skráningar nafna og kenninafna.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-297/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 13. desember 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 161)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (21. desember 2020)
Sjö umsagnir bárust um áform um frumvarp til laga um mannanöfn. Litið var til þeirra við ritun frumvarpsins. Frumvarp til laga um mannanöfn var birt á samráðsgátt 25. febrúar 2020, sjá frumvarp á máli 48/2020.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Hallur Guðmundsson
Einu úrskurðarefnin sem mannanafnanefnd á að koma að eru ef nöfnin þykja geta valdið barninu skaða auk þess að leggja til aðlögun nafna að íslensku málkerfi en ekki að hafna nöfnum á þeim forsendum að þau samrýmist ekki íslensku málkerfi.
- #2Herbert Guðmundsson
Alfarið á móti því að mannanafnanefnd verði lögð niður. Styð að nöfn skráð hér á landi verði áfram fyllilega í samræmi við íslenskan rithátt og málhefð.
- #3Pétur Snæbjörnsson
Í áformuðu frumvarpi er áætlað að afnema eða rýmka verulega þær takmarkanir sem felast í núgildandi löggjöf um mannanöfn. Það er mikilvægt að skoðað sé hvaða áhrif þetta kunni að hafa til lengri tíma litið. Það er auðvelt að kynna sér það með því að skoða hvað hefur gerst í löndum þar sem löggjöf um mannanöfn hefur verið breytt í líkingu við það sem nú virðist í bígerð. Í Hollandi var mannanafnalöggjöfinni breytt árið 1970 á þann veg að allt var gefið frjálst, þó með fáeinum undantekningum. Þannig voru öll fornöfn leyfð en eftirnöfn máttu ekki vera fornöfn. Jafnframt voru óviðeigandi nöfn ekk… Lesa alla
Í áformuðu frumvarpi er áætlað að afnema eða rýmka verulega þær takmarkanir sem felast í núgildandi löggjöf um mannanöfn. Það er mikilvægt að skoðað sé hvaða áhrif þetta kunni að hafa til lengri tíma litið. Það er auðvelt að kynna sér það með því að skoða hvað hefur gerst í löndum þar sem löggjöf um mannanöfn hefur verið breytt í líkingu við það sem nú virðist í bígerð. Í Hollandi var mannanafnalöggjöfinni breytt árið 1970 á þann veg að allt var gefið frjálst, þó með fáeinum undantekningum. Þannig voru öll fornöfn leyfð en eftirnöfn máttu ekki vera fornöfn. Jafnframt voru óviðeigandi nöfn ekki leyfð. Það var á hendi embættimanna að ákvarða hverju sinni hvað ekki væri við hæfi og eftir því sem árin hafa liðið er lítið orðið eftir af bönnum. Fram til 1970 voru leyfileg mannanöfn byggð á lista og um aldir höfðu mannanöfn í Hollandi verið svipuð. Lagabreytingin var svar við breyttum tímum. Á árunum 1950-1970 hafði nefnilega orðið hægfara breyting í mannanafnahefðum sem tengdist breyttum hugmyndum um einstaklinginn, fjölskyldu og hefðir. Breytingin var á þá leið að minna var skírt eftir afa og ömmu og fornöfn voru oftar fengin annars staðar frá. Þetta hélst í hendur við þá hugmynd að hver einstaklingur væri einstakur og þyrfti því einstakt nafn. Þannig urðu nöfn mikilvægari í huga fólks. Í kjölfar lagabreytingarinnar 1970 varð bylting í mannanafnahefð í Hollandi. Með miklum hraða fækkaði hefðbundnum nöfnum og við hafa tekið erlend nöfn. Nýju nöfnin koma úr nánasta umhverfi, fjölmiðlum, kvikmyndum, tónlist og svo framvegis. Jafnframt segja nöfnin núorðið stundum eitthvað um félagslegt umhverfi þeirra sem þau bera. Sumir samfélagshópar hafa ekki fylgt þessari þróun. Þannig fá börn af tyrkneskum og marakóskum uppruna í Hollandi yfirleitt nöfn frá heimalandinu samkvæmt hefðum eða lögum sem þar í landi gilda. Heimild: https://www.historischnieuwsblad.nl/nl/artikel/5849/voornamen-in-nederland.html Ég held að það sé óhjákvæmilegt að þeir sem vilja standa að lagabreytingum um mannanöfn geri sér grein fyrir því að breytingar á mannanafnalögum séu líklegar til að hafa meiri háttar áhrif á mannanafnahefðir. Þess vegna er mikilvægt að vandað sé mjög vel til verka, skoða reynslu annarra þjóða. Jafnframt er mikilvægt að spyrja sig að því hvaða áhrif breytingar á mannanafnalögum kunni að hafa á íslenskt tungumál til lengri tíma litið.
- #4Embla Hallfríðardóttir
Ég vildi lýsa ánægju minni um þetta frumvarp. Vildi að þetta hefði komið fyrr, og hef aldrei skilið af hverju það megi ekki taka upp ættarnöfn.
- #5Þorsteinn Kristinsson
„Viltu heita Brauðsneið? Nei, ég vil bara heita Guðrún.“ Þessi brandari verður bráðum ekkert fyndinn því ef Mannanafnanefnd verður lögð niður þá eigum við eftir að sjá mörg ný nöfn koma fram á sjónarsviðið sem við höfum ekki ímyndunarafl til að láta okkur detta til hugar í dag. Ég hef fylgst með úrskurðum Mannanafnanefndar undanfarna tvo áratugi og það má segja að það eru helst tvö ágreiningsefni sem skera sig úr og hafa valdið gremju varðandi störf nefndarinnar. Annars vegar er hvort nöfn teljist vera karlkyns eða kvenkyns og úr því hefur nú þegar verið leyst samhliða lögum um kynrænt sjál… Lesa alla
„Viltu heita Brauðsneið? Nei, ég vil bara heita Guðrún.“ Þessi brandari verður bráðum ekkert fyndinn því ef Mannanafnanefnd verður lögð niður þá eigum við eftir að sjá mörg ný nöfn koma fram á sjónarsviðið sem við höfum ekki ímyndunarafl til að láta okkur detta til hugar í dag. Ég hef fylgst með úrskurðum Mannanafnanefndar undanfarna tvo áratugi og það má segja að það eru helst tvö ágreiningsefni sem skera sig úr og hafa valdið gremju varðandi störf nefndarinnar. Annars vegar er hvort nöfn teljist vera karlkyns eða kvenkyns og úr því hefur nú þegar verið leyst samhliða lögum um kynrænt sjálfræði. Hins vegar er það hvort leyfilegt sé að nefna börn eftir ættingjum sem bera annað hvort sjaldgæf nöfn eða nöfn með óhefðbundnum rithætti. Með því að leyfa nafnagiftir og rithátt á nöfnum sem er nú þegar til staðar hjá ættingjum viðkomandi aðila án þess að það þurfi að bera slíkt undir Mannanafnanefnd þá er búið að leysa stærstan hluta ágreiningsmála á mjög einfaldan hátt. Með þessari einu breytingu er engin ástæða til að leggja niður Mannanafnanefnd enda er hlutverk hennar að mínu mati fyrst og fremst að gæta að því að ný nöfn sem rata inn á mannanafnaskrá falli að íslenskum rithætti. Það eina sem stendur þá eftir er umræðan um ættarnöfn. Á að leyfa hverjum sem er að taka upp hvaða ættarnafn sem er? Jafnvel ættarnöfn sem eru nú þegar í notkun? Má þá líka sleppa því að vera með ættarnafn/eftirnafn? Þessa umræðu þarf að taka algjörlega óháð því hvort Mannanafnanefnd verður lögð niður eða ekki.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.