Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, plastvörur)
Í áformuðu frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til innleiðingar á tilskipun ESB um minnkun umhverfisáhrifa af tilteknum vörum úr plasti.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-269/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. nóvember 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 720)
Niðurstöður samráðs (19. nóvember 2019)
Tvær umsagnir bárust um áformin í gegnum Samráðsgátt. Í þeim fólust gagnlegar ábendingar sem hafðar verða til hliðsjónar við vinnslu frumvarpsins og við endanlegt mat á áhrifum lagasetningarinnar. Í greinargerð með frumvarpinu verður gerð nánari grein fyrir umsögnum og verða drög að frumvarpinu kynnt í Samráðsgáttinni.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Ísleifur Gíslason
Það er óþolandi þegar á að kaupa kjötvörur að finna þær allar innpakkaðar í plast. 1. Í fyrsta lagi eru skammtarnir yðulega óhentugir, annað hvort of litlir eða of stórir, en hvort tveggja stuðlar að matarsóun. 2. Það ætti ekki að vera vandamál að selja kjötvöru í þeim skömtum sem neytandin óskar og nota ílát úr náttúrulega niðurbrjótanlegum efnum, til dæmis pappa gerðum úr hampi eða hálmi sem síðan má henda í tunnnuna sem ætluð er fyrir lífrænt, til moltugerðar. Eða þá ílát sem neytandinn kemur sjálfur með í búðina. 3. Enn eru nokkrar verslanir sem bjóða kjötvörur sem eru afgreiddar kjötbo… Lesa alla
Það er óþolandi þegar á að kaupa kjötvörur að finna þær allar innpakkaðar í plast. 1. Í fyrsta lagi eru skammtarnir yðulega óhentugir, annað hvort of litlir eða of stórir, en hvort tveggja stuðlar að matarsóun. 2. Það ætti ekki að vera vandamál að selja kjötvöru í þeim skömtum sem neytandin óskar og nota ílát úr náttúrulega niðurbrjótanlegum efnum, til dæmis pappa gerðum úr hampi eða hálmi sem síðan má henda í tunnnuna sem ætluð er fyrir lífrænt, til moltugerðar. Eða þá ílát sem neytandinn kemur sjálfur með í búðina. 3. Enn eru nokkrar verslanir sem bjóða kjötvörur sem eru afgreiddar kjötborði og virðast ekki tapa á því sbr. Fjarðarkaup í Hafnarfirði. Þetta er til fyrirmyndar og ætti að skylda aðra stórmarkaði til að gera slíkt hið sama.
- #2Sigurður Örn Guðleifsson
Fyrir hönd ráðgjafarnefndar um eftirlit á vegum hins opinbera, sem starfar á grundvelli laga um opinberar eftirlitsreglur, nr. 27/1999. Sigurður Örn Guðleifsson, formaður.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.