Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir (EES-reglur, hringrásarhagkerfi, plastvörur)
Markmið með frumvarpinu er að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks og styðja við hringrásarhagkerfið og notkun endurnotanlegra vara. Með frumvarpinu er innleidd ný Evróputilskipun um plastvörur.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-324/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 16. janúar 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 720)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (23. apríl 2021)
Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgáttinni 20. desember 2019 og veittur frestur til 16. janúar 2020 til að skila umsögnum. . Alls bárust sex umsagnir um frumvarpið og gáfu þær ekki tilefni til að gera á því breytingar fyrir framlagningu á Alþingi. Lög nr. 90/2020 tóku gildi 7. júlí 2020.
- Drög að frumvarpi, ásamt greinargerð
- Drög að mati á áhrifum lagasetningar
- Breytingar á lögum sem felast í drögum að frumvarpi - Samanburðarskjal
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
- #1Júlíus Geir Gíslason
Snilld!
- #2Bjarni Valur Guðmundsson
Sæll ágæti viðtakandi. Þetta er gott fyrsta skref en mér finnst að það mætti ganga lengra í að banna ákveðnar plastvörur. Ég sé t.d. engan tilgang í að fyrirtæki eins og Mjólkursamsalan sé með plastdollur undir skyr, jógúrt og fleiri vörur. Mjólkurvinnslan Arna ehf. hefur sett þessar umbúðir í pappa. Eins finnst mér að það mætti banna að selja jólakúlur úr plasti á jólatré því þær eru til úr pappír. Jafnframt ætti að hætta að selja plastjólapappír og annan plastgjafapappír. Hann er illa hæfur til endurvinnslu og vill fara í pappírsgáma þegar honum er hent þar sem hann á ekki heima. Eins mæt… Lesa alla
Sæll ágæti viðtakandi. Þetta er gott fyrsta skref en mér finnst að það mætti ganga lengra í að banna ákveðnar plastvörur. Ég sé t.d. engan tilgang í að fyrirtæki eins og Mjólkursamsalan sé með plastdollur undir skyr, jógúrt og fleiri vörur. Mjólkurvinnslan Arna ehf. hefur sett þessar umbúðir í pappa. Eins finnst mér að það mætti banna að selja jólakúlur úr plasti á jólatré því þær eru til úr pappír. Jafnframt ætti að hætta að selja plastjólapappír og annan plastgjafapappír. Hann er illa hæfur til endurvinnslu og vill fara í pappírsgáma þegar honum er hent þar sem hann á ekki heima. Eins mætti banna borða á jólagjöfum og öðrum tækifærisgjöfum séu þeir úr plasti. Hægt er að nota tausnæri. Starfsmenn kirkjugarðanna hafa kvartað sáran yfir plastborðum á leiðisgreinum en þeir eru margar vikur að flokka þá frá lífrænum úrgangi. Það mætti skoða að banna að selja leiðisgreinar með slíku plasti. Þá finnst mér mjög mikilvægt að banna allt örplast í snyrtivörum. Með virðingu, Bjarni.
- #3Endurvinnslan hf
Ef að setja á stefnu þarf að gæta þess að tilgangi hennar sé náð og slíkar stefnur séu almennar og gildi um allar sambærilegar vörur hvort sem það á við innihald eða tegund. Hvetjum við því til þess að stefna sé sett um allar drykkjarumbúðir og þess gætt að ekki myndist óeðlilegt misræmi sem er í andstöðu við stefnuna í úrgangsmálum. Endurvinnslan hf telur rétt að tryggt sé að ákvæði í þessum lögum sem snúa að áföstum plast tappa eigi við allar umbúðir með lausum plast töppum og bendir í því sambandi á drykkjarumbúðir eins og tetrapack með plast tappa og skvísur með plast tappa. Hvorutveggja… Lesa alla
Ef að setja á stefnu þarf að gæta þess að tilgangi hennar sé náð og slíkar stefnur séu almennar og gildi um allar sambærilegar vörur hvort sem það á við innihald eða tegund. Hvetjum við því til þess að stefna sé sett um allar drykkjarumbúðir og þess gætt að ekki myndist óeðlilegt misræmi sem er í andstöðu við stefnuna í úrgangsmálum. Endurvinnslan hf telur rétt að tryggt sé að ákvæði í þessum lögum sem snúa að áföstum plast tappa eigi við allar umbúðir með lausum plast töppum og bendir í því sambandi á drykkjarumbúðir eins og tetrapack með plast tappa og skvísur með plast tappa. Hvorutveggja einnota drykkjarumbúðir með plast tappa. Bendir Endurvinnslan hf. á að í þessum lögum eru íþyngjandi ákvæði um að ákveðið hlutfall af innihaldi plastumbúðarinnar sé úr rPET eða endurunnu PET sem er dýrara í innkaupum en vPET (frum PET). Þó að Endurvinnnslan hf. taki fyllilega undir að slíkt sé æskilegt, þá er hér verið að íþyngja einni drykkjarumbúð án þess að slíkar kröfur séu gerðar til annarra umbúða. Sérstök ákvæði eru um merkingar á plastumbúðum og Endurvinnslan hf. telur eðlilegt að slík ákvæði eigi við fleirri drykkjarumbúðir svo að ekki komi til mismununar. Benda má á að sumar drykkjarumbúðir eru að hluta til úr plasti sem þessi lög virðast ekki eiga við. Gæta þarf þess að söfnunar- og töluleg markmið fyrir einnota plast drykkjarumbúðir séu raunhæf og ljóst hver tilgangur þeirra eigi að vera til að koma í veg fyrir mismunun. Ef að fækka á einni tegund drykkjarumbúðar má leiða líkur á því að það fjölgi í öðrum tegundum drykkjarumbúða og þá þarf að vera skýrt að þær séu umhverfisvænni og þjóni betur markmiðum laganna. Endurvinnslan hf. gerir ekki athugasemd við að þessi ákvæði séu sett um plast, einungis að með því að setja slík ákvæði á eina drykkjarumbúð umfram aðrar, þá gæti slíkt leitt til þess að framleiðendur færi sig yfir í aðrar tegundir drykkjarumbúða án þess að fyrir liggi að þær þjóni betur markmiðum laganna. Með þessum ákvæðum felist þannig hugsanlega óeðlileg mismunun.
- #4Samtök atvinnulífsins
Í viðhengi má finna umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu.
- #5Samband íslenskra sveitarfélaga
Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frv. um br. á hollustuháttalögum. F.h. sambandsins Guðjón Bragason
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.