Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-278/2019 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda (samræmd móttaka flóttafólks og breyting á skipan í innflytjendaráð)

Félagsmálaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 116/2012 um málefni innflytjenda.

Nefnd um samræmda móttöku flóttafólks hefur skilað tillögum sínum til félags- og barnamálaráðherra þar sem meðal annars er lagt til aukið hlutverk Fjölmenningarseturs vegna samræmdrar móttöku flóttafólks. Meðal þeirra verkefna sem fela á Fjölmenningarsetri er að taka viðtöl við flóttafólk og para saman við hugsanlegt móttökusveitarfélag. Samkvæmt núgildandi lögum þá skortir Fjölmenningarsetri heimild til þess að vinna einstaklingsmál og er því talið nauðsynlegt að skerpa á hlutverki Fjölmenningarseturs í lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012. Þar af leiðandi er einnig talin þörf á því að lögfesta heimild til handa stofnuninni til að vinna með persónuupplýsingar að því marki sem nauðsynlegt er í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Samkvæmt 4. gr. núgildandi laga þá skal ráðherra skipa eftir hverjar alþingiskosningar sex manna innflytjendaráð. Með uppskiptingu velferðarráðuneytisins þá er ekki lengur fulltrúi ráðherra heilbrigðismála í innflytjendaráði en talið er mikilvægt að fulltrúi ráðherra heilbrigðismála hafi aðkomu að innflytjendaráði þar sem meðal hlutverka ráðsins er að stuðla að samhæfingu og samráði milli ráðuneyta, sveitarfélaga og innan stjórnsýslunnar. Samkvæmt framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda þá er markmið stjórnvalda að samræma og bæta móttöku flóttafólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd hér á landi. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að tryggja skuli samfellda þjónustu og aðstoð við þá sem fá vernd á Íslandi. Markmið með lagasetningunni er því að renna styrkari stoðum undir hlutverk Fjölmenningarseturs til þess að sinna því hlutverki að samræma móttöku flóttafólks hér á landi.

S-278/2019· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. nóv. 2019 – 18. nóv. 2019· 1 umsögn

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda (samræmd móttaka flóttafólks og breyting á skipan í innflytjendaráð)

Félagsmálaráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 116/2012 um málefni innflytjenda.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-278/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. nóvember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 457)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. september 2021)

Félags- og barnamálaráðherra lagði frumvarpið fram á 151. löggjafarþingi, sbr. 452. mál. Gerð er grein fyrir niðurstöðum samráðs í frumvarpinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-278/2019: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda (samræmd móttaka flóttafólks og breyting á skipan í innflytjendaráð) · Alviti