Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-322/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt (milliverðlagning)

Í frumvarpi þessu er lagt til að lögfestar verði reglur um sektarheimild ríkisskattstjóra þegar skjölunarskyldir lögaðilar fara ekki að ákvæðum 5. mgr. 57. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, í milliverðlagningarmálum.

Með frumvarpinu er lagt til að skýra orðalag 5. mgr. 57. gr. laganna með þeim hætti að ljóst sé að skjölunarskylda taki einnig til viðskipta lögaðila við fasta starfsstöð sína. Þá er lagt til að fá ríkisskattstjóra heimild til að leggja stjórnvaldssektir á lögaðila sem brýtur gegn skjölunarskyldu lögaðila skv. 5. mgr. 57. gr. tekjuskattslaga. Í milliverðlagningarreglum í 3.‒6. mgr. 57. gr. er fjallað um verðlagningu í viðskiptum milli tengdra lögaðila. Skort hefur á að lögaðilar sinni skjölunarskyldu sinni skv. 5. mgr. 57. gr. laganna og hefur skjölunarskyldan þar með ekki virkað sem skyldi. Þykir því ríkt tilefni til að leggja til sektarheimild ríkisskattstjóra í þeim tilvikum sem lögaðili brýtur gegn skjölunarskyldu sinni skv. 5. mgr. 57. gr. tekjuskattslaga.

S-322/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 10. jan. 2020· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt (milliverðlagning)

Í frumvarpi þessu er lagt til að lögfestar verði reglur um sektarheimild ríkisskattstjóra þegar skjölunarskyldir lögaðilar fara ekki að ákvæðum 5. mgr. 57. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, í milliverðlagningarmálum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-322/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 594)
Niðurstöður samráðs (30. janúar 2020)

Niðurstaða í stuttu máli er sú að ráðuneytið tók tillit til umsagna þeirra sem bárust að mörgu leyti.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-322/2019: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt (milliverðlagning) · Alviti