Drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti og um breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun, til innleiðingar á nýjum fjarskiptapakka ESB (BEREC-reglugerð ESB nr. 2018/1971 og EECC-tilskipun ESB nr. 2018/1972.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-304/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 9. janúar 2020
- Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 775)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. maí 2020)
Niðurstaða máls er í stuttu máli að fjórtán umsagnir bárust og við lokafrágang frumvarpsins var meðal annars tekið mið af þeim.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
- #1Neytendastofa
Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn Neytendastofu um frumvarpsdrögin
- #2Snorri Ingimarsson
Hjálögð er mín umsögn um frumvarpsdrögin
- #3Jón Guðmundur Guðmundsson
Umsögn um 'drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti' Ég vil koma með ábendingu varðandi kröfur til fjarskiptabúnaðar. Þegar kemur að búnaði til fjarskipta á millibylgju (það sem eru svokallaðar 'Gufunestalstöðvar') þá er um ansi fá tæki að ræða sem eru með innflutningsleyfi ti Evrópu (CE merki) Það þyrfti að vera möguleiki á að nota fleiri slík tæki hérlendi, en auðvitað yrðu þau að standast ákveðnar kröfur. Ástralir og Bandaríkjamenn m.m. eru með sérstaka gerðaviðurkenningar fyrir svoleiðis tæki, og það væri hentugt fyrir öryggisfjarskipti á Íslandi ef hægt væri að nota slík tæki… Lesa alla
Umsögn um 'drög að frumvarpi til nýrra laga um fjarskipti' Ég vil koma með ábendingu varðandi kröfur til fjarskiptabúnaðar. Þegar kemur að búnaði til fjarskipta á millibylgju (það sem eru svokallaðar 'Gufunestalstöðvar') þá er um ansi fá tæki að ræða sem eru með innflutningsleyfi ti Evrópu (CE merki) Það þyrfti að vera möguleiki á að nota fleiri slík tæki hérlendi, en auðvitað yrðu þau að standast ákveðnar kröfur. Ástralir og Bandaríkjamenn m.m. eru með sérstaka gerðaviðurkenningar fyrir svoleiðis tæki, og það væri hentugt fyrir öryggisfjarskipti á Íslandi ef hægt væri að nota slík tæki hérlendis svo lengi sem tækin standist áströlsk, eða bandarísk viðmið. Jafnvel mætti fara út í prófanir á tækjunum með tilliti til að athuga hvort þau trufli utan við áætlaða tíðni tækjanna, (yfir og undirsveiflur) enda tiltölulega auðvelt að prófa slíkt. Jón G. Guðmundsson Radíóðamatör og fyrrv. björgunarsveitarmaður
- #4Henry Alexander Hálfdánarson
Ég vil benda á möguleikana á milliliðalausum fjarskiptum á millibylgju og stuttbylgju í þessu samhengi. Þessi fjarskipti voru notuð í marga áratugi af viðbragðsaðilum, Lögreglu, Vegagerð, Landsímanum og bifreiðastjórum sem þurftu að ferðast við erfiðar aðstæður. Landsíminn hélt vörð vegna þessara fjarskipta á sex strandarstöðvum víðsvegar um landið en þessi fjarskipti eru ennþá megin uppistaðan í fjarskiptum flugvéla, skipa og vegna hernaðar um allan heim. Almenn notkun og notkun viðbragðsaðila ásamt þekkingu á þessum búnaði og tækni hefur með öllu lagst af á síðustu tuttugu árum, aðalleg… Lesa alla
Ég vil benda á möguleikana á milliliðalausum fjarskiptum á millibylgju og stuttbylgju í þessu samhengi. Þessi fjarskipti voru notuð í marga áratugi af viðbragðsaðilum, Lögreglu, Vegagerð, Landsímanum og bifreiðastjórum sem þurftu að ferðast við erfiðar aðstæður. Landsíminn hélt vörð vegna þessara fjarskipta á sex strandarstöðvum víðsvegar um landið en þessi fjarskipti eru ennþá megin uppistaðan í fjarskiptum flugvéla, skipa og vegna hernaðar um allan heim. Almenn notkun og notkun viðbragðsaðila ásamt þekkingu á þessum búnaði og tækni hefur með öllu lagst af á síðustu tuttugu árum, aðallega vegna einhliða markaðssetninga fjarskiptafyrirtækja á þann veg að þetta sé úrelt tækni (sem því miður er þvættingur) og að best sé, og eina leiðin, að gerast áskrifandi að þeirra lausnum gegn „vægu gjaldi“. Reyndar hafa nokkrir radíóáhugamenn og jeppamenn viðhaldið þessarri þekkingu með frábærum árangri. Má í þessu samhengi benda á áróður fjarskiptafyrirtækjanna gegn sjónvarpsloftnetum sem „úreltri tækni“ til að koma sem flestum notendum í áskrift að sjónvarpsdagskrá þó að Ríkisútvarpið hafi fjárfest í stafrænum sjónvarpssendum til að tryggja milliliðalausa dreifingu dagskrárefnis til þessara notenda. Einnig vil ég árétta mikilvægi milliliðalausra útvarpsútsendinga sem aðeins geta farið fram á langbylgju eða millibylgju (AM) en rekstur slíkra kerfa er einfaldasta og ódýrasta lausnin til að tryggja að fréttir, upplýsingar og tilkynningar geti borist til almennings í hættuástandi. Það er því ósk mín að litið verði til eftirfarandi þátta við þessa endurskoðun: 1. Stuðlað verði að því að aðgengi almennings að fjarskiptabúnaði fyrir millibylgju verði aukið en alls ekki skert og þessi fjarskipti tekin upp aftur af viðbragðsaðilum. 2. Aðgengi almennings að viðtækjum fyrir langbylgju og millibylgju (AM) verði stóraukið en þessi tæki eru óðum að hverfa af markaði í Evrópu vegna ásókna fjarskiptafyrirtækja í aðrar og gróðavænlegri dreifilausnir fyrir fjölmiðla. Þessi þróun er ekki áberandi á öðrum markaðssvæðum, sennilega vegna skorts á öðrum fjarskiptaleiðum. 3. Að tryggðar verði áframhaldandi útvarpsútsendingar á milliliðalausum langbylgju og/eða millibylgjuútsendingum til almennings með öllum ráðum. Henry A. Hálfdansson Rafeindavirkjameistari og F.V. Björgunarsveitamaður
- #5Persónuvernd
Persónuvernd hyggst veita umsögn um umrætt frumvarp en vegna anna hjá stofnuninni mun það ekki nást fyrir uppgefinn tímafrest.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.