Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum (lenging á rétti til fæðingarorlofs).
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, sem fela í sér lengingu fæðingarorlofs.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-270/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. nóvember 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 27 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (29. nóvember 2019)
Ráðuneytið hefur við lokafrágang frumvarpsins farið yfir þær umsagnir sem bárust en telur hins vegar ekki rétt að breyta efni þess. Er það mat ráðuneytisins að sú tilhögun á skiptingu fæðingarorlofsréttar milli foreldra sem lögð er til í frumvarp¬inu sé til þess fallin að koma til móts við þau ólíku sjónarmið sem fram koma í framan¬greindum umsögnum auk þess að vera í samræmi við markmið laga um fæðingar- og foreldra¬orlof um að tryggja barni samvistir við báða foreldra og að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (27)
- #1Torfi Geir Símonarson
Ég hvet ráðherra til að halda sjálfstæðum rétti áfram í þremur mánuðum fyrir hvort foreldri og lengja frekar þann sameiginlega rétt sem foreldrar geta ráðstafað eftir eigin geðþótta. Frelsi einstaklinga til að haga töku fæðingarorlofs ætti ekki að víkja fyrir forræðishyggju. Foreldrar barna eru oft í stöðu þar sem fjárhagslegar ástæður liggja að baki því að annað foreldrið tekur frekar meira fæðingarorlof en hitt.
- #2Elín Anna Baldursdóttir
Ég hvet stjórnvöld til þess að auka frekar lengd sameiginlegs fæðingarorlofs í stað þess að eyrnamerkja það öðru foreldrinu. Auka þannig frelsi foreldra til þess að stjórna sjálfir hvernig þeir haga fæðingarorlofi. Oft eru bæði fjárhagslegar og líffræðilegar ástæður fyrir því að annað foreldrið tekur lengra fæðingarorlof. T.d. ef brjóstagjöf gengur vel kjósa fæstar mæður að hætta með börn á brjósti við 6 mánaða aldur þrátt fyrir að þær hafi í raun ekki lengra fæðingarorlof. Horfum til norðurlandanna þar sem sameiginlegur réttur foreldra er yfirleitt lengri en sá eyrnamerkti.
- #3Steinunn Fríður Jensdóttir
Ég hvet stjórnvöld til að lengja frekar sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs og halda sjálfstæðum rétti hvors foreldris áfram í þremur mánuðum. Mikilvægt er að foreldrar geti ráðstafað fæðingarorlofinu eftir því sem hentar þeim og barninu best.
- #4Ásdís Helgadóttir
Sem ólétt móðir og almennur samfélagsþegn fagna ég því að loksins eigi að lengja fæðingarorlofið. Hins vegar, betur má ef duga skal! Fjöldi rannsókna sýna að ef barn fer ekki í dagvistun fyrr en eftir 18 mánaða aldur hefur það verulega verndandi áhrif gegn astma, ofnæmi og geðsjúkdómum seinna á lífsleiðinni svo fátt eitt sé nefnt. Það er hreinlega þjóðhagslega hagkvæmt að hafa fæðingarorlofið 18 mánuði fyrir utan hvað það hefði jákvæð áhrif á andlega líðan foreldra ungra barna. Ég set einnig út á kvaðir um skiptingu milli móður og föður. Henni er ætlað að auka jafnrétti kynjanna en útfærsla he… Lesa alla
Sem ólétt móðir og almennur samfélagsþegn fagna ég því að loksins eigi að lengja fæðingarorlofið. Hins vegar, betur má ef duga skal! Fjöldi rannsókna sýna að ef barn fer ekki í dagvistun fyrr en eftir 18 mánaða aldur hefur það verulega verndandi áhrif gegn astma, ofnæmi og geðsjúkdómum seinna á lífsleiðinni svo fátt eitt sé nefnt. Það er hreinlega þjóðhagslega hagkvæmt að hafa fæðingarorlofið 18 mánuði fyrir utan hvað það hefði jákvæð áhrif á andlega líðan foreldra ungra barna. Ég set einnig út á kvaðir um skiptingu milli móður og föður. Henni er ætlað að auka jafnrétti kynjanna en útfærsla hennar hefur þveröfug áhrif vegna ástæðna tilgreinda að neðan. Það er í raun aðeins gerlegt að hafa jafna skiptingu milli móður of föður ef fæðingarorlof er lengt í 18 mánuði. Hér eru nokkrar ástæður fyrir því: 1. Á meðan Landlæknir mælir með að börn séu alfarið á brjósti til 6 mánaða aldurs er það óraunhæft að mjólkandi móðir taki minna en 6 mánaðar fæðingarorlof. Barnið þarf að vera nálægt móður eða hún að hafa aðstöðu og ráðrúm til að mjólka sig á vinnustað (sem er ekki algengt, fyrir utan að það er erfiðara að viðhalda mjólkurmyndun með mjaltavél en sjúgandi barni). Auk þess er það alþekkt að streita minnkar og jafnvel stoppar mjólkurframleiðslu, svo streitan við að byrja aftur í vinnu með ungt barn heima getur hæglega bundið enda á brjóstagjöf. Það má einnig nefna að þótt börn fari að borða fasta fæðu við 6 mánaða aldur borða þau fyrst um sinn lítið og nærast að mestu enn á brjóstamjólk. Sá tími sem börn nærast alfarið eða að mestu mjólk er því mun lengur en 6-7 mánuðir og móðirin er sú eina sem getur gefið brjóst. Fæðingarorlof móður þarf því a.m.k. dekka brjóstagjafartímabilið. 2. Sjúkraþjálfari sagði við mig að góð þumalputtaregla væri að það tæki 9 mánuði að búa til barn og aðra 9 mánuði að jafna sig líkamlega á því. Konur eru því enn að jafna sig á því að ganga og fæða barn áður en fæðingarorlofi þeirra líkur. Það mæðir hreinlega meira á konum fyrsta ár barnsins vegna líkamlegra ástæðna (ganga með barn, hafa barn á brjósti, börn vakna á nóttunni til að drekka brjóst sem aðeins móðir hefur) en seinna meir jafnast hlutverkin sem betur fer meira út. 3. Það hefur varla farið fram hjá neinum að erfitt getur reynst að fá dagvistun að loknu fæðingarorlofi. Mæður mun oftar en feður brúa oft bilið með því að dreifa fæðingarorlofi á lengra tímabil eða að taka launalaust leyfi. Oft er því fleygt fram að ástæðan fyrir að mæður frekar en feður brúi bilið sé vegna þess að konur hafi almennt lægri laun og því sé það hagstæðara fyrir heimilið að konan fari tímabundið af vinnumarkaði. Þetta er hins vegar alls ekki algilt (ekki í mínu tilfelli, ég er með mun hærri tekjur en maki og langvarandi fjarvistir í mínu starfi afskaplega óheppilegar) og tel ég að ástæðan sé að miklu leyti frekar sú að fæðingarorlof móður sé hreinlega óraunhæflega stutt (eins og rökstutt er að ofan). Konur eru því þvingaðar til að fara dreifa orlofinu á fleiri mánuði (minnka prósentu í hverjum mánuði) og/eða taka launalaust leyfi að fæðingarorlofi loknu. Þetta þýðir auðvitað tekjuskerðingu fyrir konuna (sem getur varla talist auka jafnrétti) en auk þess hefur þetta margar aðrar slæmar afleiðingar eins og skerðingu á lífeyri, orlofsréttindum, veikindarétti, fæðingarorlofsrétti með næsta barn ef stutt á milli, rétti til atvinnuleysisbóta, rétti til örorku o.s.frv.. Það að fæðingarorlof móður er of stutt leiðir til örþrifaráða sem hafa verulega neikvæð áhrif á jafnrétti kynjanna. 4. Auk þess vil ég benda á að börn einstæðra foreldra (þau börn sem ekki eru getin með sæðisgjafa en hafa samt bara eitt virkt foreldri) verða fyrir verulegu misrétti vegna þessarar skiptingar milli móður og föður. Þau enda því á að fara mun fyrr í dagvistun en önnur börn með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á framtíð þeirra. Tökum Svíþjóð til fyrirmyndar og höfum fæðingarorlof 18 mánuði! Hættum að þvinga konur í launalaust leyfi til að bæta upp fyrir of stutt orlof og aukum jafnrétti með því að gefa mæðrum tækifæri á a.m.k. 9 mánaða fæðingarorlofi. Gerum svo allt til að feður nýti sér sinn rétt að fullu. Ásdís Helgadóttir, vélaverkfræðingur, lektor í Háskóla Íslands
- #5Guðmundur Harðarson
Ég hvet stjórnvöld til að auka við sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs, frekar en einstaklings réttinn. Fyrir mitt leyti voru aðstæður þess valdandi að ég gat ekki leyft mér að nýta alla mína þrjá mánuði við síðasta barn og endaði það þannig að það var einn mánuður sem ég gat ekkert nýtt fyrir 24 mánaða aldur barnsins. Því miður grunar mig að það sé óþarflega algengt að foreldrar geti ekki nýtt sér allan þann tíma sem þeim er eyrnamerktur. Því er mikilvægt að foreldrar hafi aukið rými til að haga fæðingarorlofi eins og aðstæður leyfa.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.