Drög að frumvörpum til laga vegna samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd.
Með frumvörpunum er lagt til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/2394 frá 12. desember 2017 um samvinnu milli landsyfirvalda sem bera ábyrgð á að framfylgja lögum um neytendavernd og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 2006/2004.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-249/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. október 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 331)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (10. ágúst 2020)
Frumvörpin voru lögð fram á 150. löggjafarþingi Alþingis þann 1. nóvember 2019, sbr. þskj. 375 (331. mál) og þskj. 374 (330. mál). Frumvörpin voru samþykkt með breytingum allsherjar og menntamálanefndar sem lög frá Alþingi þann 5. mars 2020. Lög nr. 20/2020 og lög nr. 21/2020.
- Frumvarp til laga um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd.
- Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd, ofl.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Neytendasamtökin
Meðfylgjandi er umsögn Neytendasamtakanna
- #2Samtök atvinnulífsins
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins um málið. Virðingarfyllst, Heiðrún Björk Gísladóttir
- #3Hagsmunasamtök heimilanna
Sjá viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.