Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-327/2019 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um lækningatæki

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um lækningatæki. Umsagnarfrestur er til og með 10. janúar 2020.

Núgildandi lög um lækningatæki eru frá árinu 2001 og hafa ekki tekið miklum breytingum frá þeim tíma þrátt fyrir öra tækniþróun. Frumvarp til nýrra laga um lækningatæki sem hér er til kynningar og samráðs er samið í heilbrigðisráðuneytinu. Markmið frumvarpsins er að tryggja gæði og öryggi lækningatækja með öryggi almennings og sjúklinga að leiðarljósi og tryggja að framleiðsla, viðhald og notkun lækningatækja sé í samræmi við bestu fagþekkingu á hverjum tíma. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tveimur reglugerðum. Annars vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/745 frá 5. apríl 2017 um lækningatæki, um breytingu á tilskipun 2001/83/EB, reglugerð (EB) nr. 178/2002, reglugerð (EB) nr. 1223/2009 og um niðurfellingu á tilskipunum ráðsins 90/385/EBE og 93/42/EBE og hins vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/746 frá 5. apríl 2017 um lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi og um niðurfellingu á tilskipun 98/79/EB og ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2010/227/ESB. Í reglugerðunum tveimur eru sett aukin skilyrði og kröfur um gæði og öryggi lækningatækja til að auka öryggi notenda lækningatækja í ljósi reynslu og lærdóms frá gildistöku þeirra tilskipana sem reglugerðirnar fella brott. Reglugerðunum er ætlað að samræma löggjöf á Evrópska efnahagssvæðinu og tryggja eftirfylgni við þær reglur sem gilda um lækningatæki. Gildissvið reglnanna er útvíkkað að hluta. Undir reglugerðirnar falla nú einnig annars vegar tæki sem hafa tiltekna eiginleika sem lækningatæki, en eru ekki markaðssett sem slík og hins vegar tæki án ætlaðs læknisfræðilegs tilgangs og eru upptalin í viðauka 16 við reglugerðirnar. Auknar kröfur eru gerðar til framleiðenda lækningatækja varðandi eftirlit og eftirfylgni með lækningatækjum á markaði. Auknar kröfur eru gerðar til klínískra rannsókna á lækningatækjum, þ.m.t. um gæði gagna og aðgang að gögnum. Þá eru gerðar breytingar á umsóknarferli klínískra rannsókna. Evrópska gagnabankanum um lækningatæki er gefið meira vægi í reglugerðunum en hann gegnir lykilhlutverki í því að uppfylla markmið þessa frumvarps og reglugerðanna. Tilteknu auðkenniskerfi er komið á fót með reglugerðunum í þeim tilgangi að tryggja rekjanleika lækningatækja frá framleiðendum. Þetta er gert meðal annars til að koma í veg fyrir fölsuð tæki en ekki síður til að tryggja rekjanleika tækja og tryggja að hægt verði að innkalla gölluð tæki hratt og örugglega. Framleiðanda er skylt að útbúa svokölluð ígræðiskort með ígræðanlegum tækjum. Ígræðiskort eru afhent heilbrigðisstofnun sem bera ábyrgð á að afhenda sjúklingum kortin. Ígræðiskortin innihalda ítarlegar upplýsingar fyrir sjúklinga, svo sem upplýsingar sem sanngreina tæki, viðvaranir, upplýsingar um endingartíma, eftirfylgni o.fl. Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra setji reglugerð um endurvinnslu og frekari notkun einnota tækja. Til að gæta að öryggi notenda og sjúklinga er jafnframt lagt til í frumvarpinu að ráðherra sé heimilt að setja reglugerð sem kveður á um að eingöngu heilbrigðisstarfsfólk með ákveðna menntun og reynslu sé heimilt að nota tiltekin lækningatæki. Þá er lagt til í frumvarpinu að heilbrigðisstofnanir og starfsstöðvar heilbrigðisstarfsmanna haldi rafræna skrá um ígræðanleg lækningatæki sem stofnun eða starfsstöð hefur afhent eða fengið afhent. Lagt er til að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um nánari útfærslu á þessu. Loks er í frumvarpinu lagt til að eftirlits- og valdheimildir Lyfjastofnunar verði skýrari og þær auknar í samræmi við markmið og tilgang frumvarpsins og reglugerðanna. Það athugast að um er að ræða drög að frumvarpi og sumir kaflar frumvarpsins eru í vinnslu.

S-327/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 10. jan. 2020· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um lækningatæki

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um lækningatæki. Umsagnarfrestur er til og með 10. janúar 2020.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-327/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 635)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júní 2020)

Ráðherra mælti fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um lækningatæki í mars 2020

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)
  • #1Florealis ehf.
    Lagt er til að bætt verði inn í 10gr. um auglýsingar eftirfarandi: ”Heimilt er að auglýsa og kynna lækningatæki undir heitinu lækningavara.” Orðið lækningatæki getur verið villandi fyrir form eins og til dæmis krem, gel, froðu og stíla. Meira lýsandi væri að nota orðið lækningavara. Orðið lækningavara lýsir þessum formum betur, sérstaklega fyrir neytendur en einnig fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Á ensku er hugtakið ”medical devices” og sem dæmi um skandinavískt tungumál þá er hugtakið ”medicintekniska produkter” notað í sænsku. Orðið lækningavara er góð þýðing á þessum hugtökum en til þess… Lesa alla

    Lagt er til að bætt verði inn í 10gr. um auglýsingar eftirfarandi: ”Heimilt er að auglýsa og kynna lækningatæki undir heitinu lækningavara.” Orðið lækningatæki getur verið villandi fyrir form eins og til dæmis krem, gel, froðu og stíla. Meira lýsandi væri að nota orðið lækningavara. Orðið lækningavara lýsir þessum formum betur, sérstaklega fyrir neytendur en einnig fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Á ensku er hugtakið ”medical devices” og sem dæmi um skandinavískt tungumál þá er hugtakið ”medicintekniska produkter” notað í sænsku. Orðið lækningavara er góð þýðing á þessum hugtökum en til þess að ekki þurfi að breyta orðalagi alls staðar í íslenskum lögum og reglugerðum tengdum lækningatækjum, þá er lagt til að einungis verði breytt orðalaginu í 10.gr. um auglýsingar. Einnig hefði verið æskilegt ef lengri frestur hefði verið gerður til umsagna við þessum drögum að frumvarpi til laga um lækningatæki.

  • #2Samtök iðnaðarins

    Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Samtaka iðnaðarins og Samtaka líf- og heilbrigðistæknifyrirtækja um drög að frumvarpi til laga um lækningatæki.

  • #3Benedikt Sveinbj. Benediktsson

    Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu um drög að frumvarpi til laga um lækningatæki.

  • #4Gunnlaugur Hjörtur Gunnlaugsson

    Meðfylgjandi er umsögn Icepharma hf. um drög að frumvarpi til laga um lækningatæki

  • #5Embætti landlæknis

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-327/2019: Drög að frumvarpi til laga um lækningatæki · Alviti