Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-264/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005, með síðari breytingum (rafræn afgreiðsla, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla o.fl.).

Frumvarp þetta er samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og varðar ýmsar breytingar á tollalögum, m.a. varðandi vöruval fríhafna sem selja áfengi, rafræna afgreiðslu og þyngdartakmörk fyrir innflutning ferða- og farmanna á matvælum. Tillaga frumvarpsins um að hækka mörkin fyrir það magn sem ferðamenn og farmenn mega taka með af matvælum inn í landið án þess að greiða toll er sett til þess að gæta samræmis við þyngdarmörk vegna upptöku reglugerðar (EB), nr. 206/2009, um innflutning dýraafurða til einkaneyslu. Tillaga frumvarpsins um vöruvalsreglur fyrir tollfrjálsar verslanir í opinberri eigu sem selja áfengi er lögð fram til að bregðast við áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá 28. nóvember 2018. Í frumvarpinu er að finna ákvæði um að tollafgreiðslugengi taki mið af vikugengi í stað daggengis. Vikugengi skal taka mið af opinberu viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands á mánudegi hverrar viku og mun sú skráning gilda út hverja viku fyrir sig. Upptaka vikugengis mun flýta fyrir tollafgreiðslu sendinga og koma í veg fyrir tafir á afgreiðslu sendinga þegar þær eru tilbúnar til afgreiðslu áður en kemur að greiðsludegi. Þá mun upptaka vikugengis einnig auðvelda hraðsendingarfyrirtækjum að áætla aðflutningsgjöld fyrir viðskiptavini sína. Með frumvarpinu er stefnt að því að tollafgreiðsla verði nánast alfarið rafræn en þó er einstaklingum og öðrum, sem ekki eru í atvinnurekstri, heimilað að skila allt að 12 skriflegum aðflutningsskýrslum á hverju ári. Rafræn tollafgreiðsla mun auka skilvirkni til muna. Að lokum er í frumvarpinu að finna einfalda leiðréttingu á tilvísun til móðurmjólkur í tollskrá.

S-264/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2019 – 5. nóv. 2019· 0 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005, með síðari breytingum (rafræn afgreiðsla, vöruvalsreglur, innflutningur matvæla o.fl.).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 245)
  2. Birt í Samráðsgátt (S-264/2019)
  3. Umsagnarfrestur hefst · til 5. nóvember 2019
  4. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. júní 2020)

Engar umsagnir bárust og var frumvarpið unnið áfram með það til hliðsjónar.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-264/2019: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum nr. 88/2005 · Alviti