Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-319/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (byggingastarfsemi, almenningssamgöngur o.fl.)

Áformaðar breytingar á lögum um virðisaukaskatt sem fela í sér breytingar á ákvæðum laganna er varða byggingastarfsemi, almenningssamgöngur, fjármálastarfsemi og skýrleika skattframkvæmdar og bætt skattskil.

Í fyrsta lagi er áformað að taka til endurskoðunar ákvæði laganna er varða byggingarstarfsemi, frjálsa og sérstaka skráningu og endurgreiðslu virðisaukaskatts til byggingaraðila. Í öðru lagi er áformað að leggja til að ákvæði laganna er varðar undanþágu verktaka frá innheimtu virðisaukaskatts í almenningssamgöngum verði endurskoðað. Í þriðja lagi er áformað að leggja til breytingar á ákvæði laganna er varðar undanþágu fjármálastarfsemi frá virðisaukaskatti. Eftir atvikum mun samhliða fara fram skoðun á þeim ákvæðum laganna er varða kaup og sölu á fjármálaþjónustu milli landa. Í fjórða og síðasta lagi eru lagðar til breytingar og lagfæringar á tilteknum ákvæðum laganna til styrkingar á skattframkvæmd og málsmeðferð ríkisskattstjóra í skattamálum, sbr. IX. kafli laganna, með það að markmið að leiðarljósi að vinna gegn skattundanskotum.

S-319/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. des. 2019 – 15. jan. 2020· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (byggingastarfsemi, almenningssamgöngur o.fl.)

Áformaðar breytingar á lögum um virðisaukaskatt sem fela í sér breytingar á ákvæðum laganna er varða byggingastarfsemi, almenningssamgöngur, fjármálastarfsemi og skýrleika skattframkvæmdar og bætt skattskil.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-319/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. janúar 2020
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 372)
Niðurstöður samráðs (2. júlí 2020)

Hætt var við framlagningu frumvarpsins á Alþingi. Nýtt frumvarp er í vinnslu og er gert ráð fyrir að það verði lagt fram á haustþingi 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-319/2019: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (byggingastarfsemi, almenningssamgöngur o.fl.) · Alviti