Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-287/2019 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun

Lagðar eru til breytingar á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun vegna innleiðingar reglugerðar (ESB) 2017/1369 um setningu regluverks um orkumerkingar.

Gildissvið reglugerðar 2017/1369 er það sama og gildissvið tilskipunar nr. 2010/30/EU um orkumerkingar en með reglugerðinni eru reglurnar uppfærðar og skýrðar með hliðsjón af tæknilegum framförum í orkunýtni vara. Þá er gert skýrt að reglugerðin gildir um allar vörur sem eru boðnar fram á innri markaðinum í fyrsta sinn, að meðtöldum notuðum vörum sem eru innfluttar. Þetta ætti að lækka kostnað fyrir framleiðendur, gera það að verkum að allir starfi á sama vettvangi og eftir sömu reglum og tryggja frjálst flæði vöru á innri markaðinum. Með reglugerðinni er gert skýrt að reglugerð nr. 765/2008 um markaðseftirlit gildi einnig um orkutengdar vörur. Með reglugerðinni er skali orkumerkinga endurnýjaður, þar sem nauðsynlegt er að gera ítarlegri greinarmun á vörum vegna tækniþróunar í orkunýtni vara, og auka þannig skilvirkni orkumerkinga. Núverandi merkingar verða því endurskalaðar á einsleitum A til G skala en efsti flokkur nýrra orkumerkinga á að vera auður til að hvetja til áframhaldandi tækniframfara og framleiðni og skilvirkari vörum. Birgjar skulu afhenda bæði núgildandi og endurskalaða merkingu til söluaðila í ákveðinn tíma samkvæmt reglugerðinni en eldri merkingar á sýningareintökum og á vefsíðum skulu standa þar til dagsetning verður ákveðin sem ógildir eldri merkingar. Samkvæmt reglugerðinni halda núgildandi reglur um tilteknar vörur, sem hafa verið innleiddar með framseldum gerðum á grundvelli tilskipunarinnar, gildi sínu þangað til þær verða felldar úr gildi með nýjum reglum á grundvelli reglugerðarinnar. Frá 1. janúar 2019 þurfa framleiðendur að færa inn upplýsingar um vöru í gagnagrunn um vörur, sem settur verður á fót af hálfu framkvæmdarstjórnarinnar til að auðvelda markaðseftirlit. Framkvæmdastjórnin getur sett framseldar gerðir samkvæmt reglugerðinni, á sama hátt og með tilskipuninni, og er í reglugerðinni að finna skyldur, sambærilegar og í öðru markaðseftirliti, um tilkynningu til aðildarríkja og framkvæmdarstjórnar þegar vörur uppfylla ekki reglurnar þegar það hefur áhrif á fleiri aðildarríki. Einnig er skylt að tilkynna um þvingunarúrræði, svo sem sölubann eða innköllun. Þá er fjallað um union safeguard procedure, sem er sambærilegt ferli og í öðru markaðseftirliti.

S-287/2019· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. nóv. 2019 – 4. des. 2019· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun

Lagðar eru til breytingar á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun vegna innleiðingar reglugerðar (ESB) 2017/1369 um setningu regluverks um orkumerkingar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-287/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 4. desember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (151. þing, mál 12)
Niðurstöður samráðs (8. júlí 2020)

Engar umsagnir bárust.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-287/2019: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun · Alviti