Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-245/2019 · Heilbrigðisráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).

Tilefni þessa frumvarps eru ný lög nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem samþykkt voru á Alþingi 13. júní 2018, sem innleiddi persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins í íslenskan rétt. Við vinnslu frumvarpsins sem varð að framangreindum lögum var ákveðið að gera aðeins lágmarksbreytingar á ákvæðum annarra laga vegna tilvísana til þágildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000. Enn fremur var ákveðið að hvert ráðuneyti fyrir sig myndi í kjölfar gildistöku laganna taka til endurskoðunar einstök ákvæði sérlaga sem falla undir málefnasvið þeirra til að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga verði í samræmi við hin nýju lög. Frumvarpinu er ætlað að gera nauðsynlegar breytingar á ákvæðum laga sem heyra undir málefnasvið heilbrigðisráðherra, til þess að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga samkvæmt þeim lögum samræmist kröfum laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Markmið frumvarpsins er að tryggja að þeir aðilar sem vinna með persónuupplýsingar samkvæmt þeim lögum sem heyra undir málefnasvið heilbrigðisráðherra hagi vinnslunni í samræmi við kröfur nýrra laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Um er að ræða breytingar á lögum um lífsýnasöfn og söfn heilbrigðisupplýsinga nr. 110/2000, lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007, sóttvarnalögum nr. 19/1997 og lögum um brottnám líffæra nr. 16/1991.

S-245/2019· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. okt. 2019 – 18. okt. 2019· 2 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-245/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. október 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 446)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júní 2020)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 150. löggjafarþingi og mælti ráðherra fyrir því 22. janúar 2020.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Embætti landlæknis

    Í viðhengi er umsögn embættis landlæknis.

  • #2Lyfjastofnun
    Lyfjastofnun vísar til máls 245/2019 í Samráðsgátt stjórnvalda, sem birt var 4. október 2019. Í málinu er kallað eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra). Lyfjastofnun telur rétt að lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum, verði breytt til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu á lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007, með síðari breytingum o.fl. Lyfjastofnun leggur til breytingar verði gerðar á 3. gr. lyfjalaga í… Lesa alla

    Lyfjastofnun vísar til máls 245/2019 í Samráðsgátt stjórnvalda, sem birt var 4. október 2019. Í málinu er kallað eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra). Lyfjastofnun telur rétt að lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum, verði breytt til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu á lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007, með síðari breytingum o.fl. Lyfjastofnun leggur til breytingar verði gerðar á 3. gr. lyfjalaga í þessu skyni. Hér fylgir tillaga í dæmaskyni að því hvernig sú breytingatillaga gæti litið út. Lyfjastofnun er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um lyfjanotkun einstaklinga í þeim tilgangi að tryggja nægilegt framboð, gæði og öryggi lyfja og lyfjaþjónustu sem og til að sinna eftirliti með eftirlitsskyldum aðilum og öðrum lögbundnum skyldum samkvæmt lögum þessum að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þá vill Lyfjastofnun jafnframt vekja athygli á eftirfarandi. Í 3. kafla greinargerðar með frumvarpinu kemur fram að við gerð frumvarpsins hafi 8. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu verið skoðuð sérstaklega, en ákvæðið fjallar um heimildir landlæknis til reksturs gagnagrunna og heilbrigðisskráa. Í 2. mgr. ákvæðisins eru veittar heimildir til að færa persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. nöfn sjúklinga, kennitölur og önnur tiltekin persónuauðkenni án samþykkis sjúklings en unnið er með upplýsingar úr skránum á dulkóðuðu formi, sbr. 3. mgr. 8. gr. Í 18. gr. sömu laga kemur fram að um aðgang landlæknis að upplýsingum í lyfjagagnagrunni, vegna eftirlits með ávísunum lyfja, fari samkvæmt lyfjalögum, en ítarlegri ákvæði um lyfjagagnagrunn embættis landlæknis er að finna í lyfjalögum sem og ákvæði um tölfræðigagnagrunn Sjúkratrygginga Íslands sbr. 29. gr. a. og b. í lögum nr. 112/2008 um sjúkratryggingar. Niðurstaða skoðunar ráðuneytisins á 8. gr. laga nr. 41/20107 um landlækni og lýðheilsu var sú að nauðsynlegt væri að umræddar upplýsingar væru skráðar á persónugreinanlegu formi og að heimild í gildandi lögum væri nægilega skýr og nauðsynin ótvíræð. Við fyrstu skoðun telur Lyfjastofnun heimildir IX. kafla lyfjalaga um gagnagrunna nægilega skýrar og ótvíræðar en vill engu að síður vekja athygli ráðuneytisins á þessum ákvæðum.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-245/2019: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði heilbrigðisráðherra). · Alviti