Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-265/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um lýsingar verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1129/2017 um lýsingu sem birta skal við almenn útboð verðbréfa eða vegna töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum markaði.

Frumvarpið felur í sér innleiðingu lýsingarreglugerðarinnar í íslenskan rétt með því að setja ný heildarlög um lýsingar verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða að því að auðveldara og ódýrara verði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að afla fjármagns innan EES. Meðal annars er kveðið á um nýja tegund lýsingar, ESB-vaxtarlýsingu, sem ætlað er að einfalda kerfi og kröfur vegna smárra útgáfa verðbréfa óskráðra fyrirtækja eða útboðs verðbréfa lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem skráð eru á vaxtarmarkað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Þá er fyrirkomulag vegna síðari útgáfu einfaldað og ferli fyrir tíða útgefendur gert skjótara og einfaldara.

S-265/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2019 – 13. nóv. 2019· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um lýsingar verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði

Fjármála- og efnahagsráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1129/2017 um lýsingu sem birta skal við almenn útboð verðbréfa eða vegna töku verðbréfa til viðskipta á skipulegum markaði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-265/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. nóvember 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 451)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (27. maí 2020)

Niðurstaða málsins var sú að taka tillit til athugasemdar frá Kauphöll Íslands um að hækka þyrfti undanþágufjárhæð 3. gr. frumvarpsins úr 5.000.000 evrum í 8.000.000 evrur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-265/2019: Drög að frumvarpi til laga um lýsingar verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði · Alviti