Drög að frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands
Með frumvarpinu er lagt til að settar verði skýrari reglur en nú gilda um skráningu hagsmuna og hagsmunaárekstra æðstu handhafa framkvæmdarvalds sem starfa innan Stjórnarráðs Íslands.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-284/2019)
- Umsagnarfrestur hefst · til 2. desember 2019
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 523)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. desember 2020)
Í kjölfar samráðsins var lagt fram frumvarp á Alþingi sem var samþykkt þann 9. júní 2020 sem lög nr. 64/2020. Sjá hlekk og samráðskafla frumvarpsins.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Rögnvaldur Ragnar Símonarson
150. löggjafarþing 2019 – 2020 Þingskjal x – x mál. Stjórnarfrumvarp. Athugasemdir : 2.gr. Hagsmunaskráning og gjafir. Í e. lið er nefnd upphæðin 50.000 kr. en alltaf er óheppilegt að hafa krónutöluákvæði í lögum, betra er að einhvert hlutfall t.d. 1:10 af ákveðnum launaflokki. Annað sem ég velti fyrir hvort ekki þurfi að miða upphæðina við ársgrunndvöll? Ef starfsmaðurinn fær 100 gjafir allar undir 50.000 kr. á einu ári þá er hann búinn að þiggja 5. miljónir! 3.gr. Aukastörf. Í 3. mgr. ..... "greiðslur fyrir aukastörfin teljist innan hóflegra marka". – Mjög loðið orðalag… Lesa alla
150. löggjafarþing 2019 – 2020 Þingskjal x – x mál. Stjórnarfrumvarp. Athugasemdir : 2.gr. Hagsmunaskráning og gjafir. Í e. lið er nefnd upphæðin 50.000 kr. en alltaf er óheppilegt að hafa krónutöluákvæði í lögum, betra er að einhvert hlutfall t.d. 1:10 af ákveðnum launaflokki. Annað sem ég velti fyrir hvort ekki þurfi að miða upphæðina við ársgrunndvöll? Ef starfsmaðurinn fær 100 gjafir allar undir 50.000 kr. á einu ári þá er hann búinn að þiggja 5. miljónir! 3.gr. Aukastörf. Í 3. mgr. ..... "greiðslur fyrir aukastörfin teljist innan hóflegra marka". – Mjög loðið orðalag. Aftur er hér betra að miða við hlutfall launa viðkomandi t.d. fjórðung launa? 4.gr. Hagsmunaverðir. Í 4. mgr. er væntanlega einu “ ekki“ ofaukið. 5.gr. Starfsval að loknum opinberum störfum. Skil hreinlega ekki 4. mgr. – Er ekki í þessari málsgrein verið að tala um hvað gerist ef ráðherra synjar um undanþágu skv. 3. mgr. – Er þá síðast setningin ekki óþörf? 6.gr. Ráðgjöf og eftirlit. Samkvæmt 1.gr. þá gilda þessi lög fyrir alla ráðherrar. - Samt er tekið fram í 2. mgr. að forsetisráðherra getur að eigin frumkvæði tekið til skoðunar tilvik þar sem grunur er um brot æðstu handhafa framkvæmdavaldsins, annarra en ráðherra??? - Hver á að hafa eftirlit með ráðherrum? – Alþingi væntanleg en þarf ekki að taka það fram og með hvaða hætti hægt er hefja slíka frumkvæðisrannsókn ? Ákvæði til bráðabirgða. Má ekki takmarka undanþáguna í eitt ár, það er að segja eftir gildistöku laganna hafi menn ár til að afla sér undanþágu skv. 2. mgr 3. gr.?
- #2Samtök atvinnulífsins
Í viðhengi má finna umsögn Samtaka atvinnulífsins.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.