Áður en mál kemur til Alþingis
Frumvörp og þingsályktunartillögur sem ráðuneyti hafa kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda: hvað er til umsagnar, hverjir sendu umsagnir, og hvað hefur komið til Alþingis og hvað ekki.
819 mál · sótt 28. október 2026
- Komið til AlþingisS-20/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 18. jan. 2019 – 5. feb. 2019· 9 umsagnir
Áformuð lagasetning um vandaða starfshætti í vísindum
Markmiðið er að tryggja eftir megni að siðferðileg viðmið í vísindum séu í heiðri höfð og að góðir vísindalegir starfshættir séu iðkaðir. Það er nauðsynlegt til að hægt sé meta niðurstöður og áreiðanleika rannsókna og til að skapa traust almennings á gildi þeirra.
- Komið til AlþingisS-19/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. jan. 2019 – 1. feb. 2019· 2 umsagnir
Sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins
Áform um frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands og frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.
- Komið til AlþingisS-16/2019· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. jan. 2019 – 5. feb. 2019· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/751 um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur þegar hún hefur verið tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
- Komið til AlþingisS-10/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2019 – 25. jan. 2019· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum (gjald vegna þinglýsingar með rafrænni færslu).
Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum, nr. 88/1991 (gjald vegna þinglýsingar með rafrænni færslu).
- Komið til AlþingisS-9/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2019 – 25. jan. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil)
Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil).
- Komið til AlþingisS-8/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2019 – 25. jan. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/1998, um bindandi álit í skattamálum
Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/1998, um bindandi álit í skattamálum.
- Komið til AlþingisS-3/2019· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. jan. 2019 – 27. jan. 2019· 4 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými)
Áformað er að leggja fram á vorþingi 2019 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, í því skyni að bæta við ákvæði sem heimilar rekstur og starfsemi neyslurýma að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
- Komið til AlþingisS-2/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. jan. 2019 – 29. jan. 2019· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi og lögum nr. 60/2017, um vátryggingasamstæður.
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæðum til að setja lagastoðir fyrir tilteknum reglum Fjármálaeftirlitsins auk þess að gera tilteknar lagastoðir skýrari.
- Komið til AlþingisS-1/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. jan. 2019 – 29. jan. 2019· 1 umsögn
Áform um frumvarp til laga um dreifingu vátrygginga ásamt breytingum á lögum um vátryggingarsamninga.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um dreifingu vátrygginga og breytingar á lögum um vátryggingarsamninga til að innleiða tilskipun 2016/97/ESB um dreifingu vátrygginga.
- Komið til AlþingisS-256/2018· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. jan. 2019 – 5. feb. 2019· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta
Um er að ræða drög að frumvarpi til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta til innleiðingar á ákvæðum tilskipunar ESB 2014/61 sama efnis, auk breytinga á lögum um fjarskipti og lögum um Póst- og fjarskiptastofnun.
- Komið til AlþingisS-246/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. nóv. 2018 – 14. des. 2018· 2 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um samtök um evrópska rannsóknarinnviði (ERIC)
Um er að ræða drög að nýju lagafrumvarpi sem innleiðir reglugerð EB nr. 723/2009 og henni var breytt með reglugerð ESB nr. 1261/2013. Reglugerðin fjallar um ERIC samtök en ERIC stendur fyrir European Research Infrastructure Consortium eða samtök um evrópska rannsóknainnviði.
- Komið til AlþingisS-240/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. nóv. 2018 – 28. nóv. 2018· 1 umsögn
Drög að frumvarpi til laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi
Dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs dög að frumvarpi til laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi. Óskað er eftir umsögnum til 28. nóvember nk.
- Komið til AlþingisS-236/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2018 – 25. nóv. 2018· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (gildisdagsetningar, virðisaukaskattsskylda alþjóðaflugvalla o.fl.).
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (gildisdagsetningar, virðisaukaskattsskylda alþjóðaflugvalla o.fl.).
- Komið til AlþingisS-229/2018· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. nóv. 2018 – 29. nóv. 2018· 11 umsagnir
Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs (stjórnvaldssektir o.fl.)
Lagt til að stjórnvöld hafi heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um meðhöndlun úrgangs. Með frumvarpinu verða einnig gerðar ýmsar breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
- Komið til AlþingisS-225/2018· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. nóv. 2018 – 27. nóv. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um ófrjósemisaðgerðir
Frumvarp til nýrra heildarlaga um ófrjósemisaðgerðir í stað ákvæðis gildandi laga nr. 25/1975 um ófrjósemisaðgerðir.
- Komið til AlþingisS-224/2018· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. nóv. 2018 – 21. nóv. 2018· 1 umsögn
Drög að frumvarpi um gildistöku alþjóðasamnings um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði (Höfðaborgarsamningurinn) og bókunar um búnað loftfara.
Um er að ræða drög að nýrri heildarlöggjöf til innleiðingar á alþjóðasamningi um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði (Höfðaborgarsamningur) og bókunar um búnað loftfara.
- Komið til AlþingisS-182/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2018 – 27. nóv. 2018· 12 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um sviðslistir
Í drögum frumvarpsins er lögð til rammalöggjöf um sviðlistastarfsemi, þar með talið Þjóðleikhúsið og Íslenska dansflokkinn, auk ákvæða um sviðslistaráð, sviðslistasjóð og kynningarmál.
- Komið til AlþingisS-172/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. okt. 2018 – 29. okt. 2018· 6 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Með frumvarpinu er lagt til að stofnað verði tímabundið til starfs samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Einnig er lagt til ákvæði um að óheimilt verði að ráða einstaklinga til starfa hjá íþróttafélögum eða þiggja framlag þeirra sem sjálfboðaliða hafi þeir hlotið refsidóm, m.a. fyrir kynferðisbrot.
- Komið til AlþingisS-170/2018· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. okt. 2018 – 24. okt. 2018· 12 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007
Ferðamálaráðherra leggur til breytingar á lagaákvæðum sem varða heimagistingu og eftirlit með henni.
- Komið til AlþingisS-169/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2018 – 22. okt. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, með síðari breytingum (samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaráætlana og sjálfstæð stjórn Innviðasjóðs)
Mennta- og menningamálaráðuneyti leggur fram frumvarp um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003.
- Komið til AlþingisS-165/2018· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2018 – 12. nóv. 2018· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, með síðari breytingum (tjáningarfrelsi og þagnarskylda)
Með frumvarpinu er lagt til að settar verði skýrar reglur um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu opinberra starfsmanna í sérstökum kafla sem bætist við stjórnsýslulög nr. 37/1993.
- Komið til AlþingisS-164/2018· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2018 – 12. nóv. 2018· 3 umsagnir
Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (þrenging ákvæðis um hatursorðræðu)
Í frumvarpinu felst tillaga að rýmkun tjáningarfrelsis með því að gera kröfu um nánar tiltekinn grófleika eða alvarleika til þess að tjáning varði refsingu sem hatursorðræða.
- Komið til AlþingisS-163/2018· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2018 – 12. nóv. 2018· 0 umsagnir
Frumvarp til laga um bætur vegna ærumeiðinga
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný stofnlög um ærumeiðingar þar sem mælt verði fyrir um einkaréttarleg úrræði til að bregðast við ærumeiðingum.
- Komið til AlþingisS-162/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. okt. 2018 – 13. nóv. 2018· 3 umsagnir
Þjóðarsjóður, frumvarpsdrög
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um að komið verði á fót varúðarsjóði til að mæta hugsanlegum fátíðum efnahagslegum skakkaföllum s.s. vegna vistkerfisbrests eða náttúruhamfara.
- Komið til AlþingisS-157/2018· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. okt. 2018 – 25. okt. 2018· 6 umsagnir
Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs (stjórnvaldssektir o.fl.
Lagt til að stjórnvöld hafi heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum um meðhöndlun úrgangs. Með frumvarpinu verða einnig gerðar ýmsar breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
- Komið til AlþingisS-155/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. okt. 2018 – 16. okt. 2018· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (Flutningur fjármuna, VRA-vottun).
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á tveimur efnisatriðum ákvæða tollalaga, þ.e. um skyldu til að veita upplýsingar um flutning fjármuna milli landa og um veitingu og afturköllun VRA-vottunar.
- Komið til AlþingisS-154/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. okt. 2018 – 19. okt. 2018· 1 umsögn
Áform um frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016.
- Komið til AlþingisS-153/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. okt. 2018 – 19. okt. 2018· 3 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu).
Í frumvarpsdrögunum er lagt til að innheimta opinberra gjalda, sem tollstjóri annast nú, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2019.
- Komið til AlþingisS-152/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. okt. 2018 – 12. okt. 2018· 0 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum (skattleysi uppbóta á lífeyri).
Áformuð er lagabreyting sem feli það í sér að uppbætur á lífeyri verði skattfrjálsar og skerði ekki lífeyrisgreiðslur almannatrygginga.
- Komið til AlþingisS-142/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 27. sep. 2018 – 11. okt. 2018· 6 umsagnir
Áform um frumvarp til laga um sviðslistir
Frumvarpið felur í sér rammalöggjöf um sviðlistastarfsemi, þar með talið Þjóðleikhúsið og Íslenska dansflokkinn, auk ákvæða um sviðslistaráð, sviðslistasjóð og kynningarmál.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi. Hlekkur getur vantað þegar heiti málsins breyttist mikið á leiðinni; ritstjóri getur staðfest eða hafnað tengingu.
Hér eru frumvörp, áform um lagasetningu og drög að þingsályktunartillögum. Drög að reglugerðum og önnur mál fara ekki til Alþingis og eru á vef gáttarinnar. Alviti hefur þingmál Alþingis frá 8. september 2015; um eldri samráðsmál sem ekki finnast þar er sagt „óvíst“.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda (island.is) · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)