Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 411. mál

Opinber stuðningur við vísindarannsóknir

Samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaráætlana og sjálfstæð stjórn Innviðasjóðs

LagafrumvarpSamþykktMenntamál

Hvar er málið statt?

Samþykktsíðan 6. maí 2019

Alþingi hefur samþykkt frumvarpið. Það verður að lögum þegar forseti Íslands hefur staðfest það og það hefur verið birt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Samþykkt

Skráning Alþingis: „Samþykkt sem lög frá Alþingi.“

Í stuttu máli

Að styrkja stefnumarkandi hlutverk Innviðasjóðs. Að laga reglur Rannsóknasjóðs að alþjóðlegu umhverfi vísindarannsóknum á Íslandi til framdráttar.

Lagt fram af Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra (F), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í lokaatkvæðagreiðslu 6. maí 2019 greiddu 51 atkvæði með og 0 á móti; málið var samþykkt.

Lagt fram
30. nóvember 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
3
Umræða í þingsal
7 ræður · 37 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 7. maí 2019

Markmiðið

Að styrkja stefnumarkandi hlutverk Innviðasjóðs. Að laga reglur Rannsóknasjóðs að alþjóðlegu umhverfi vísindarannsóknum á Íslandi til framdráttar.

Hvað breytist

Lagt er til að stjórnir Innviðasjóðs og Rannsóknasjóðs séu aðskildar. Gert er ráð fyrir að tenging Innviðasjóðs við stefnumörkun stjórnvalda verði styrkt. Að auki er lagt til að Rannsóknasjóði verði heimilað að taka þátt í alþjóðlegri samfjármögnun sem getur m.a. falið í sér greiðslur til aðila erlendis og að ákvörðun um styrkveitingu skuli byggð á faglegu mati aðila sem ekki heyra undir fagráð Rannsóknasjóðs. Með slíkri heimild yrði verklag Rannsóknasjóðs samræmt verklagi sambærilegra sjóða erlendis.

Lög sem breytast

Kostnaður fyrir ríkið

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Meira úr samantektinni

Innviðasjóður.

Rannsóknasjóður.

Stefna og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2017-2019. Mennta- og menningarmálaráðuneyti, júní 2017.

Uppbygging rannsóknarinnviða á Íslandi til framtíðar. Skýrsla verkefnahóps Vísinda- og tækniráðs um rannsóknarinnviði og vöktun. Vísinda- og tækniráð, apríl 2017.

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Willum Þór Þórsson

Lokaatkvæðagreiðsla
6. maí 2019
Samþykkt51 með · 0 á móti
Að samþykkja frumvarpið „Opinber stuðningur við vísindarannsóknir“ sem lög. →
Eftir þingflokkum
  • S11–0
  • 2311–0
  • M6–0
  • F8–0
  • Sf5–0
  • 436–0
  • V2–0
  • Flf2–0
Gott að vita um atkvæðin
  • Með – greiddi atkvæði með (já)
  • Á móti – greiddi atkvæði á móti (nei)
  • Sat hjá – var í salnum en tók ekki afstöðu
  • Boðaði fjarvist – tilkynnti fjarvist fyrir fram (t.d. veikindi eða erindi fyrir Alþingi)
  • Fjarverandi – greiddi ekki atkvæði og hafði ekki boðað fjarvist; ástæðan er ekki skráð

Í súlum og reitum: dökkblátt = með, rautt = á móti, grátt = sat hjá, ljóst = fjarverandi. Aðeins rafrænar atkvæðagreiðslur skrá atkvæði hvers þingmanns; Alviti ályktar ekki um ástæður hjásetu eða fjarvista.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Allsherjar- og menntamálanefnd
sendi 2 umsagnabeiðnir · frestur 19. feb. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
5 aðilar
Háskóli Íslands, Lífvísindasetur Háskóla Íslands, Sveinbjörn Gizurarson, Raunvísindastofnun Háskólans, Náttúrufræðistofnun Íslands · allar umsagnir
Umræða í þingsal
37 mín · 7 ræður
6 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Atkvæðin eru úr lokaatkvæðagreiðslunni 6. maí 2019: 51 með, 0 á móti.

Greiddu atkvæði með4 tóku til máls

47 aðrir þingmenn greiddu atkvæði með án þess að taka til máls.

Voru ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna2 tóku til máls

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-136/2018· Áform um lagasetningu· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. sep. 2018 – 7. okt. 2018· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, með síðari breytingum

Áformað er að leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003. Stefnt er að breytingum á ákvæðum laganna er varða samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaráætlana og sett verður sjálfstæð stjórn yfir Innviðasjóði.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-136/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. október 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (6. nóvember 2018)

Niðurstöður samráðs má sjá í niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Veðurstofa Íslands

    Veðurstofa Íslands styður áformaðar breytingar á lögum nr. 3/2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, þ.e. um samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaráætlana og sjálfstæði stjórnar Innviðasjóðs. Breytingar þessar eru til mikilla bóta og opna ný tækifæri til þátttöku í alþjóðlegum innviðaverkefnum.

  • #2Rannsóknamiðstöð Íslands
    Hér að neðan er fjallað um þá tvo þætti sem áform eru um að leggja fram sem breytingar á lögum 3/2003, þ.e. um alþjóðlega samfjármögnun og innviðasjóð. Rannís er umsýsluaðili Rannsóknasjóðs og Innviðasjóðs sbr. lög 3/2003. Alþjóðleg samfjármögnun Alþjóðlegt samstarf íslenskra vísindamanna er mjög mikið samanborið við aðrar þjóðir, en það kemur til af því að íslenska vísindasamfélagið er lítið og því oft nauðsynlegt fyrir vísindamenn að leita eftir samstarfi út fyrir landsteinana. Umfang alþjóðlegs samstarfs sést vel í mælingum á alþjóðlegum sambirtingum (e. international co-publications) þ… Lesa alla

    Hér að neðan er fjallað um þá tvo þætti sem áform eru um að leggja fram sem breytingar á lögum 3/2003, þ.e. um alþjóðlega samfjármögnun og innviðasjóð. Rannís er umsýsluaðili Rannsóknasjóðs og Innviðasjóðs sbr. lög 3/2003. Alþjóðleg samfjármögnun Alþjóðlegt samstarf íslenskra vísindamanna er mjög mikið samanborið við aðrar þjóðir, en það kemur til af því að íslenska vísindasamfélagið er lítið og því oft nauðsynlegt fyrir vísindamenn að leita eftir samstarfi út fyrir landsteinana. Umfang alþjóðlegs samstarfs sést vel í mælingum á alþjóðlegum sambirtingum (e. international co-publications) þar sem‚ Ísland er með mun hærra hlutfall sambirtinga en t.d. nágrannar okkar á Norðurlöndunum. Samstarf samkeppnissjóða milli landa við fjármögnum verkefna fer vaxandi. Slíkt samstarf á sér stað bæði sem „sýndar“ sameiginlegur sjóður (e. Virtual Common Pot) og sem sameiginlegur sjóður (e. Common Pot). Gera verður ráð fyrir að Rannsóknasjóður geti tekið þátt í báðum samstarfsformunum. Tillaga hér að neðan byggir á því að stjórn Rannsóknasjóðs og stjórn Innviðasjóðs, ef svo ber undir, meti og taki afstöðu til samstarfs í hverju og einu tilfelli, enda verði um kall (útboð/auglýsingu) að ræða, þar sem vísindamenn í samstarfslöndum eru hvattir til að sækja. Forsenda við val verkefna skal byggja á gæðum umsókna sem eru metnar í samkeppni byggt á auglýstum viðmiðum af fagráði. Niðurstaða fagráðs er lögð fyrir stjórn að taka ákvörðun um fjárveitingar. Það er á ábyrgð stjórnar að gera kröfu um að matsferlið uppfylli kröfur sem stjórnin hefur og lög um sjóðinn kveða á um. Hér að neðan eru lagðar til eftirfarandi breytingar á lögunum: 1. 2. gr. Rannsóknasjóður (1. málsgrein) Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn nemendur í rannsóknartengdu framhaldsnámi og skilgreind rannsóknarverkefni sem styrkja stöðu vísindastarfs á Íslandi. Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna, færni þeirra einstaklinga sem stunda rannsóknirnar og aðstöðu þeirra til að sinna verkefninu. Stjórn hefur heimild til að eiga samstarf við erlenda sjóði um samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaverkefna. Ákvörðun um styrkveitingu er bundin faglegu mati. 2. 4. gr. Stjórn Rannsóknasjóðs (2. málsgrein) Stjórnin tekur ákvarðanir um fjárveitingar úr Rannsóknasjóði að fengnum umsögnum fagráða. Stjórnin leitar ráðgjafar umfram það sem fagráð sjóðanna geta veitt ef þurfa þykir. 3. 5. gr. Fagráð Rannsóknasjóðs (1. málsgrein) Vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs skipar fagráð til tveggja ára í senn á helstu sviðum vísinda sem skulu hafa það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir stjórn við úthlutanir úr Rannsóknasjóði. Vísindanefnd skipar formenn fagráða sérstaklega. Í alþjóðlegu samstarfi Rannsóknasjóðs eru fagráð skipuð sameiginlega af samstarfssjóðum. Fagráð eru jafnframt ráðgefandi fyrir Vísinda- og tækniráð og undirnefndir þess um fagleg efni eftir því sem óskað er. Innviðasjóður Ástæða er til að fagna tillögu um að stjórn Innviðasjóðs verði sjálfstæð stjórn. Í því sambandi má sérstaklega líta til þess að mikil áhersla stjórnvalda er á að efla stefnumörkun og fjárhagslega getu sjóðsins til að takast á við brýn verkefni við uppbyggingu rannsóknarinnviða í íslensku vísindaumhverfi. Í skýrslu Vísinda- og tækniráðs um uppbyggingu rannsóknarinnviða er lögð áhersla á gerð vegvísis, sem er stefna og forgangsröðun stjórnvalda. Vegvísir þarf að liggja til grundvallar við mótun úthlutunarstefnu Innviðasjóðs. Í skýrslunni er jafnframt áhersla á möguleika íslenskra vísindamanna á þátttöku í alþjóðlegum rannsóknarinnviðum. Lagt er til að eftirfarandi atriði verði skoðuð nánar við endurskoðun laga um Innviðasjóð: 1. Ekki er skilgreint í áformunum um lagabreytingu hverjir eru ráðgefandi aðilar við tilnefningu stjórnarmanna þegar ráðherra skipar stjórn Innviðasjóðs. Ekki verður annað séð en að góð sátt sé um fyrirkomulag og samskipti við Vísinda- og tækniráð og nefndir þess varðandi skipun stjórnar Rannsóknasjóðs og t.d. fagráða. Því er hvatt til að leitað verði leiða til að tilnefningar komi úr vísinda og/eða nýsköpunarumhverfinu og ráðherra skipi stjórn Innviðasjóðs byggða á þeim tilnefningum til þriggja ára í senn. 2. Síðasta setningin í grein um skipun stjórnar verði: „Stjórn leitar ráðgjafar umfram það sem fagráð Innviðasjóðs veitir ef þurfa þykir.“ 3. Ástæða er til að vísindanefnd og tækninefnd komi að því að marka úthlutunarstefnu Innviðasjóðs í samræmi við vegvísi (stefnu og forgangsröðun stjórnvalda) um uppbyggingu rannsóknarinnviða. 4. Innviðasjóður hafi heimild til að að taka þátt í samfjármögnun rannsóknarinnviða með hliðsjón af stefnu stjórnvalda/Vísinda- og tækniráðs. Þar kunna að koma til árlegar greiðslur fyrir aðgang að innviðum jafnt og stofnframlög sem tryggja aðgang til lengri tíma að rannsóknarinnviðum. 5. Í lögunum komi fram að áhersla sé á opið aðgengi og samstarf um nýtingu. Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís

  • #3Hagstofa Íslands
    Hagstofa Íslands lýsir yfir ánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003. Stofnunin tekur undir að hlutverk Rannsóknasjóðs og Innviðasjóðs sé í eðli sínu ólíkt og að sjálfstæð stjórn fyrir Innviðasjóð sé jákvætt framfaraskref fyrir uppbyggingu rannsóknainnviða á Íslandi. Með þessum breytingum myndi opnast tækifæri fyrir langtímasýn á uppbyggingu íslenskra rannsóknainnviða og til að ná meiri árangri í markvissri forgangsröðun verkefna. Þá eru heimildir til alþjóðlegrar samfjármögnunar til þess fallnar að auka og bæta möguleika í v… Lesa alla

    Hagstofa Íslands lýsir yfir ánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003. Stofnunin tekur undir að hlutverk Rannsóknasjóðs og Innviðasjóðs sé í eðli sínu ólíkt og að sjálfstæð stjórn fyrir Innviðasjóð sé jákvætt framfaraskref fyrir uppbyggingu rannsóknainnviða á Íslandi. Með þessum breytingum myndi opnast tækifæri fyrir langtímasýn á uppbyggingu íslenskra rannsóknainnviða og til að ná meiri árangri í markvissri forgangsröðun verkefna. Þá eru heimildir til alþjóðlegrar samfjármögnunar til þess fallnar að auka og bæta möguleika í vísindasamstarfi

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-169/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2018 – 22. okt. 2018· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, með síðari breytingum (samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaráætlana og sjálfstæð stjórn Innviðasjóðs)

Mennta- og menningamálaráðuneyti leggur fram frumvarp um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-169/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. október 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. febrúar 2021)

Engin umsögn barst um frumvarp til laga um breytingar á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, með síðari breytingum (samfjármögnun alþjóðlegra rannsóknaráætlana og sjálfstæð stjórn Innviðasjóðs). Lögin voru samþykkt á Alþingi 6. maí 2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    5 ræður · 25 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 19. febrúar 2019
    2 beiðnir um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Umræða
    2. umræða
    2 ræður · 12 mín
  8. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 52 með, 0 á móti
  9. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  10. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  11. Atkvæðagreiðsla
    Samþykkt · 51 með, 0 á móti
  12. Þingskjal

Þingskjöl

3 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
552Stjórnarfrumvarp30. nóv. 2018Lilja AlfreðsdóttirLesaPDF
1297Nefndarálit8. apr. 2019Páll Magnússon, Willum Þór Þórsson +7LesaPDF
1443Lög (samhlj.)6. maí 2019—LesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

6 alls · 3 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur24. janúar 2019 kl. 12:34
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ allsherjar- og menntamálanefnd24. janúar 2019 kl. 12:34
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt3. maí 2019 kl. 12:30
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Opinber stuðningur við vísindarannsóknir“.
    1. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:7 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • Samþykkt3. maí 2019 kl. 12:30
    Að samþykkja grein eða þingskjal í málinu „Opinber stuðningur við vísindarannsóknir“.
    2.--7. gr.
    • SSjálfstæðisflokkur:13 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:9 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:7 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:6 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:6 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:5 með · 0 á móti
    • VViðreisn:3 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti
  • yfirlýsing forseta/mál gengur3. maí 2019 kl. 12:30
    Frumvarp gengur til 3. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • Samþykkt6. maí 2019 kl. 16:04
    Að samþykkja frumvarpið „Opinber stuðningur við vísindarannsóknir“ sem lög.
    • SSjálfstæðisflokkur:11 með · 0 á móti
    • 23Þingflokkur 23:11 með · 0 á móti
    • MMiðflokkurinn:6 með · 0 á móti
    • FFramsóknarflokkur:8 með · 0 á móti
    • SfSamfylkingin:5 með · 0 á móti
    • 43Þingflokkur 43:6 með · 0 á móti
    • VViðreisn:2 með · 0 á móti
    • FlfFlokkur fólksins:2 með · 0 á móti

Hverjir tóku til máls

7 ræður · 37 mín
  • 1. umræða: 5 ræður · 4 ræðumenn · 25 mín
  • 2. umræða: 2 ræður · 2 ræðumenn · 12 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Lilja AlfreðsdóttirFramsóknarflokkur210 mín
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur17 mín
Þórunn EgilsdóttirFramsóknarflokkur16 mín
Bryndís HaraldsdóttirSjálfstæðisflokkur16 mín
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn15 mín
Björn Leví GunnarssonUtan þingflokka14 mín

Umsagnir og erindi

5 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Allsherjar- og menntamálanefnd sendi 2 umsagnabeiðnir 29. jan. 2019, frestur 19. feb. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Háskóli ÍslandsumsögnOpna PDF
Lífvísindasetur Háskóla ÍslandsumsögnOpna PDF
Sveinbjörn GizurarsonumsögnOpna PDF
Raunvísindastofnun HáskólansumsögnOpna PDF
Náttúrufræðistofnun ÍslandsumsögnOpna PDF

Tengd mál

Engin tengd mál skráð.

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.