Beint í efni
Alviti
Þingmál149. þing · 434. mál

Þjóðarsjóður

LagafrumvarpDagaði uppiEfnahagsmálFjárreiður ríkisins

Hvar er málið statt?

Dagaði uppisíðan 12. des. 2018

Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.

Allur ferillinn
  1. Lagt fram
  2. 1. umræða
  3. Í nefnd
  4. 2. umræða
  5. 3. umræða
  6. Dagaði uppi

Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 149. þingi. Beið 2. umræðu“

Í stuttu máli

Að treysta fjárhagslegan styrk ríkissjóðs til að mæta afleiðingum af meiri háttar ófyrirséðum áföllum sem þjóðarbúið verður fyrir.

Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.

Lagt fram
5. desember 2018
Tegund
Stjórnarmál
Atkvæðagreiðslur með skrá
0
Umræða í þingsal
23 ræður · 2 klst. 14 mín

Málið á mannamáli

Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.

Samantekt Alþingis
uppfærð 16. okt. 2019

Markmiðið

Að treysta fjárhagslegan styrk ríkissjóðs til að mæta afleiðingum af meiri háttar ófyrirséðum áföllum sem þjóðarbúið verður fyrir.

Hvað breytist

Lagt er til að komið verði á fót svokölluðum Þjóðarsjóði sem gert er ráð fyrir að yrði eins konar áfallavörn fyrir þjóðina þegar ríkissjóður verður fyrir fjárhagslegri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyrirséð áföll á þjóðarhag, annaðhvort vegna afkomubrests eða vegna kostnaðar við viðbragðsráðstafanir sem stjórnvöld hafa talið óhjákvæmilegt að grípa til í kjölfar áfalls eða til að varna því. Þjóðarsjóðurinn yrði eign íslenska ríkisins og lagt er til að sérstök stjórn verði sett yfir hann og fari með yfirstjórn hans. Gert er ráð fyrir að auknar tekjur ríkissjóðs á komandi árum af arðgreiðslum og auðlindaafnotagjöldum frá orkuvinnslufyrirtækjum verði nýttar til að fjármagna framlög í sjóðinn og að hann fjárfesti þá fjármuni eingöngu í erlendum verðbréfum samkvæmt fjárfestingarstefnu sem stjórn sjóðsins setur með samþykki ráðherra. Að auki er gert ráð fyrir að allar tekjur og hagnaður af fjármunaeign sjóðsins renni til hans. Ef til ófyrirséðs áfalls kemur, og að uppfylltum tilteknum skilyrðum og mati nefndar á fjárhagsáhrifum áfallsins, er lagt til að ráðherra geti gert tillögu um að Alþingi samþykki þingsályktun um að stjórn Þjóðarsjóðs úthluti til ríkissjóðs framlagi sem nemi allt að helmingi eigna sjóðsins vegna eins atburðar en veiti síðan lagaheimild í næstu fjárlögum. Gert er ráð fyrir að fyrirkomulagið á ráðstöfun úr Þjóðarsjóði feli í sér það skilyrði að fjárhagstjón ríkissjóðs nemi a.m.k. 5% af meðaltekjum síðustu þriggja rekstrarára.

Lög sem breytast

Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.

Kostnaður fyrir ríkið

Gert er ráð fyrir að daglegur rekstur sjóðsins verði hóflegur að umfangi og að kostnaður vegna sjóðsins greiðist af tekjum hans eða eigin fé þannig að hann hafi ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Þar sem nokkur kostnaður getur myndast við rekstur áður en fyrstu greiðslur renna til sjóðsins er gert ráð fyrir að rekstrarfé sem sjóðurinn þarf á að halda fyrst í stað við undirbúning starfseminnar verði fjármagnað tímabundið úr ríkissjóði. Gert er ráð fyrir að á næstu misserum marki stjórnvöld eigenda- og arðgreiðslustefnu gagnvart orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkisins sem feli í sér auknar tekjur ríkissjóðs af nýtingu þeirra á orkuauðlindum, einkum frá Landsvirkjun. Þar sem þessar ákvarðanir liggja ekki fyrir strax er nokkur óvissa um hve miklar þessar nýju tekjur verða en á opinberum vettvangi hefur verið rætt um 10–20 milljarða kr. á ári. Til bráðabirgða er miðað við að tekjur ríkissjóðs aukist árlega um 10 milljarða kr. að lágmarki og að jafnháu framlagi verði veitt til Þjóðarsjóðs. Í þessu sambandi má benda á að þetta verða að teljast vera fremur óvenjulegar tekjur þar sem þær eru upprunnar í auðlindarentu sem óvíst er að verði viðvarandi um alla framtíð sökum þess að ýmislegt getur haft áhrif á þær, svo sem breytingar í orkubúskapnum, sviptingar á alþjóðlegum orkumörkuðum og tæknibreytingar, t.d. aukin hagnýting vind- eða sólarorku. Ef slíkar forsendur verða hagstæðari en nú er gert ráð fyrir gæti uppbygging sjóðsins orðið hraðari en á hinn bóginn hægari ef þær reynast óhagstæðari.

Meira úr samantektinni

Þjóðarauðssjóðir í öðrum löndum

Ástralía

Future Fund

Bandaríkin (Alaska)

Alaska Permanent Fund

Chile

Fondo de Estabilización Económica y Social

Fondo de Reserva de Pensiones

Noregur

Statens pensjonsfond utland (norska) (enska)

--Lög um norska þjóðarauðssjóðinn (lov om Statens pensjonsfond) LOV-2005-12-21-123.

--Reglur fjármálaráðherra um umboð Seðlabanka Noregs til að hafa umsjón með þjóðarauðssjóðnum (Mandat for forvaltning av Statens pensjonsfond utland) FOR-2010-11-08-1414.

--Skýrsla og tillögur nefndar um breytingar á lögum um seðlabanka Noregs (NOU 2017:13) (norska) (enska).

Nýja-Sjáland

New Zealand Superannuation Fund

Afstaða þingflokkanna

Lagt fram af

Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason

Síðasta atkvæðagreiðsla með skrá

Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.

„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.

Af hverju skiptir þetta máli?

Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.

Nefndin sem fjallar um málið
Efnahags- og viðskiptanefnd
sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 31. jan. 2019
Sendu inn umsögn eða erindi
15 aðilar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Guðmundur Hörður Guðmundsson, Ásgeir Brynjar Torfason, Fjármálaráð, Samband íslenskra sveitarfélaga o.fl. · allar umsagnir
Umræða í þingsal
2 klst. 14 mín · 23 ræður
11 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
Kostnaður fyrir ríkissjóð
Gert er ráð fyrir að daglegur rekstur sjóðsins verði hóflegur að umfangi og að kostnaður vegna sjóðsins greiðist af tekjum hans eða eigin fé þannig að hann hafi ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Þar sem nokkur kostnaður getur myndast við rekstur áður en fyrstu greiðslur renna til sjóðsins er gert ráð fyrir að rekstrarfé sem sjóðurinn þarf á að halda fyrst í stað við undirbúning starfseminnar verði fjármagnað tímabundið úr ríkissjóði. Gert er ráð fyrir að á næstu misserum marki stjórnvöld eigenda- og arðgreiðslustefnu gagnvart orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkisins sem feli í sér auknar tekjur ríkissjóðs af nýtingu þeirra á orkuauðlindum, einkum frá Landsvirkjun. Þar sem þessar ákvarðanir liggja ekki fyrir strax er nokkur óvissa um hve miklar þessar nýju tekjur verða en á opinberum vettvangi hefur verið rætt um 10–20 milljarða kr. á ári. Til bráðabirgða er miðað við að tekjur ríkissjóðs aukist árlega um 10 milljarða kr. að lágmarki og að jafnháu framlagi verði veitt til Þjóðarsjóðs. Í þessu sambandi má benda á að þetta verða að teljast vera fremur óvenjulegar tekjur þar sem þær eru upprunnar í auðlindarentu sem óvíst er að verði viðvarandi um alla framtíð sökum þess að ýmislegt getur haft áhrif á þær, svo sem breytingar í orkubúskapnum, sviptingar á alþjóðlegum orkumörkuðum og tæknibreytingar, t.d. aukin hagnýting vind- eða sólarorku. Ef slíkar forsendur verða hagstæðari en nú er gert ráð fyrir gæti uppbygging sjóðsins orðið hraðari en á hinn bóginn hægari ef þær reynast óhagstæðari.
úr samantekt Alþingis

Orð og atkvæði

Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.

Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.

Sýna 5 í viðbót

Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.

Allt um málið

Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.

Áður en málið kom til Alþingis

2 samráðsmál

Ráðuneytið kynnti málið í Samráðsgátt stjórnvalda og almenningi gafst kostur á að senda umsögn, áður en það var lagt fram á Alþingi.

S-131/2018· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. sep. 2018 – 25. sep. 2018· 8 umsagnir

Þjóðarsjóður

Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um að komið verði á fót varúðarsjóði til að mæta hugsanlegum fátíðum efnahagslegum skakkaföllum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-131/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. september 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. október 2018)

Alls bárust sjö umsagnir í opnu samráðsferli um áformin. Í þeim voru efnislegar ábendingar um mikilvægi þess að sjóðnum væri tryggt sjálfstæði, gætt væri að kynjahlutföllum í stjórn hans, horft yrði til Noregs varðandi fyrirmyndir og skýr mörk væru á milli hlutverks Náttúruhamfaratryggingar Íslands og Þjóðarsjóðs. Þessar ábendingar eru allar í samræmi við það sem lagt var upp með frá upphafi af hálfu ráðuneytisins sem og sérfræðingahópsins. Í umsögn Samorku (samtök orku- og veitufyrirtækja) var bent á mikilvægi þess að ekki yrðu um nýja og íþyngjandi gjaldtöku af orkufyrirtækjum að ræða. Engin gjaldtaka er fyrirhuguð í frumvarpinu, heldur einungis gert ráð fyrir auknum tekjum sem leiða beint af eignarhaldi á fyrirtækjum og auðlindum. Einnig er af hálfu samtakanna bent á að of rík arðsemiskrafa geti skert samkeppnishæfni. Undir þetta tekur ráðuneytið, enda hluti af almennri eigendastefnu ríkisins að ríkissjóður skuli einungis fá „eðlilegan arð af eigin fé í samræmi við áhættu rekstrar“. Gert er ráð fyrir að auknar tekjur af eignarhaldi orkufyrirtækja og auðlinda komi til vegna aukinnar arðsemi fyrirtækjanna og eðlilegs gjalds vegna nýtingar auðlinda. Þá er kallað eftir því af hálfu Samtaka iðnaðarins að fjárfestingarstefna sjóðsins liggi fyrir þegar málið er tekið til afgreiðslu á Alþingi, sem og skilyrði útgreiðslu. Sú ábending á rétt á sér upp að vissu marki, enda er ætlunin með samningu frumvarpsins að meginlínur fjárfestingarstefnu verði lögákveðnar og skilyrði útgreiðslu lögbundin. Gagnrýnt er í sömu umsögn að hluti af fjárveitingum til sjóðsins fari fyrst um sinn í önnur verkefni og því lýst að þar með hafi freistnivandi vegna fjármunanna þegar raungerst. Tilhögunin, sem er tímabundin, byggir á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og því er ekki staldrað frekar við athugasemdina. Í umsögnum Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins er vikið að stöðu lífeyrisskuldbindinga ríkisins og því velt upp hvort fjármunum væri betur varið til uppgreiðslu þeirra. Jafnframt er bent á möguleg ruðningsáhrif sjóðsins á gjaldeyrismarkaði. Af hálfu síðarnefnda hagsmunaaðilans er auk þess lagt til að fremur verði ráðist í lækkun skatta vegna þess svigrúms sem aukinn arður af orkuauðlindum kann að skapa. Þessu er til að svara, í fyrsta lagi, að ríkisábyrgð á skuldbindingum A-deildar LSR var aflétt eftir uppgjör á deildinni árið 2016 og að með ráðstöfunum af hálfu ríkissjóðs sem þegar eru hafnar og m.a. er gerð grein fyrir í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að B-deild LSR geti staðið skil á skuldbindingum sínum að fullu. Í öðru lagi, varðandi áhrif á gjaldeyrismarkað ber að líta til þess að þær auknu tekjur sem um ræðir hefðu að öðrum kosti mögulega verið varið í að greiða skuldir orkuvinnslufyrirtækja, sem eru að stóru leyti í erlendri mynt. Þá mætti skoða þann möguleika við arðgreiðslur að þær verði að hluta til í erlendri mynt og renni þannig inn á innstæðureikning ríkissjóðs í stað þess að fara í gegnum gjaldeyrisjöfnuð þótt þetta fjárstreymi verði varla í þeim mæli að það hafi teljandi áhrif. Loks, að því er varðar hugmyndir um skattalækkanir, þá er til þess að líta að ekki er fullvissa um hinar auknu tekjur af orkufyrirtækjum til langs tíma litið og því ekki æskilegt að nýta þær eins og hefðbundna tekjustofna til að standa undir auknum ríkisútgjöldum eða sem forsendu fyrir lækkun skatttekna, auk þess sem fjárhagslegur viðbúnaður til að mæta stóráföllum yrði lakari fyrir vikið.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
  • #1Kristín Vala Ragnarsdóttir
    Mikilvægt er að sjóðurinn hafi stjórn sem er algjörlega óháð stjórmálamönnum á hverjum tíma. Einnig þarf sjóðurinn að hafa jöfn kynjahlutföll, allavega einn siðfræðing, og einn erlendan aðila. Þar sem ég hef reynslu af því að stjórnarmönnum ríkisfyrirtækja sé skipt út við hverjar kosningar, legg ég til að allir sjóðsnefndarmenn verði kosnir í 3-4 ár, megi etv sitja í 2 tímabil, aldrei lengur og skuli ekki vera skipt út við hverja kosningu til alþingis. Sjóðurinn sé þannig óháður pólitík á hverjum tíma. Ég bið hér með um að leitað verði til Norðmanna um aðstoð við að setja upp, reka sj… Lesa alla

    Mikilvægt er að sjóðurinn hafi stjórn sem er algjörlega óháð stjórmálamönnum á hverjum tíma. Einnig þarf sjóðurinn að hafa jöfn kynjahlutföll, allavega einn siðfræðing, og einn erlendan aðila. Þar sem ég hef reynslu af því að stjórnarmönnum ríkisfyrirtækja sé skipt út við hverjar kosningar, legg ég til að allir sjóðsnefndarmenn verði kosnir í 3-4 ár, megi etv sitja í 2 tímabil, aldrei lengur og skuli ekki vera skipt út við hverja kosningu til alþingis. Sjóðurinn sé þannig óháður pólitík á hverjum tíma. Ég bið hér með um að leitað verði til Norðmanna um aðstoð við að setja upp, reka sjóðinn og siðfræðiviðmið þeirra við fjárfestingaval - til að læra af þeirra 25 ára reynslu í að reka sinn olíusjóð.

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um áform um setningu laga um stofnun Þjóðarsjóðs. gerð er alvarleg athugasemd við stuttan umsagnartíma um málið. F.h. sambandsins Guðjón Bragason

  • #3Baldur Dýrfjörð

    Fjármála og efnahagsráðuneytið Umsögn um áform um lagasetingu - Þjóðarsjóður Samráðsgátt mál - S-131/2018 Hjálögð er umsögn Samorku um málið ásamt fylgiskjali. Kveðja, Baldur Dýrfjörð

  • #4Baldur Dýrfjörð

    Fylgiskjal með umsögn Samorku.

  • #5Náttúruhamfaratrygging Íslands
    Fram kemur að sjóðnum verði ætlað að gegna því meginhlutverki að verða eins konar áfallavörn fyrir þjóðina þegar ríkissjóður verður fyrir fjárhagslegri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyrirséð áföll á þjóðarhag. Er hér átt við stórfelldar náttúruhamfarir, sjúkdóma og önnur áföll, sem valda stórfelldu efnahagslegu tjóni umfram þann skaða sem tryggður er með öðrum hætti s.s. með náttúruhamfaratryggingum hjá NTÍ. Með lagasetningunni er áformað að komið verði á fót varúðarsjóði með sérstakri stjórn, sem hafi yfirumsjón með rekstri og fjárfestingum hans. Í áformum um lagasetninguna koma fram h… Lesa alla

    Fram kemur að sjóðnum verði ætlað að gegna því meginhlutverki að verða eins konar áfallavörn fyrir þjóðina þegar ríkissjóður verður fyrir fjárhagslegri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyrirséð áföll á þjóðarhag. Er hér átt við stórfelldar náttúruhamfarir, sjúkdóma og önnur áföll, sem valda stórfelldu efnahagslegu tjóni umfram þann skaða sem tryggður er með öðrum hætti s.s. með náttúruhamfaratryggingum hjá NTÍ. Með lagasetningunni er áformað að komið verði á fót varúðarsjóði með sérstakri stjórn, sem hafi yfirumsjón með rekstri og fjárfestingum hans. Í áformum um lagasetninguna koma fram hugmyndir um að greiðslur úr Þjóðarsjóði komi til í stóráföllum þar sem tjón væri a.m.k. 50 milljarðar umfram það sem kynni að verða borið af öðrum tryggingum. NTÍ leggur áherslu á að tryggt verði að gerður verði skýr greinarmunur á hlutverki Þjóðarsjóðs og NTÍ og að ljóst verði hvar mörkin milli þeirra liggja. Heildargreiðslugeta NTÍ í einstökum stóratburði er um 73 milljarðar króna miðað við núverandi endurtryggingavernd. Ríkið hefur val um að tryggja hagsmuni með sjóðsmyndun til að mæta ófyrirséðum tjónum eða vátryggja þá. Ekki er augljóst hvort Þjóðarsjóði sé ætlað það hlutverk að taka við þegar eignir og endurtryggingar NTÍ þrýtur, en ástæða væri til að leggjast í umfangsmikla útreikninga á því hvar skurðpunkturinn er á hagkvæmni þess að vátryggja og endurtryggja áhættuna, samanborið við að safna sjóðum til að standa straum af framtíðaráföllum. Það er ávallt mikilvægt að vega og meta hvort mæta eigi tjónum með vátryggingum eða bótum úr sjóðum þegar ekki er ætlunin að eigendur beri tjón sitt sjálfir. Ef miðað er við 50 milljarða þröskuld á útborgunum úr Þjóðarsjóði eru hverfandi líkur á að komi til greiðslna úr Þjóðarsjóði þó að stórfellt tjón yrði á samgöngumannvirkjum. Dæmi um slík tilvik væri eyðilegging á jarðgöngum, sem NTÍ er nú óheimilt að vátryggja. Benda má á að möguleikar eru fyrir hendi til að leggja mat á hvort eðlilegra væri að einhver mannvirki, eignir og hagsmunir sem nú standa utan vátryggingar, yrðu vátryggð gegn náttúruhamförum hjá NTÍ í stað þess að þau falli utan vátrygginga og verði í allra versta falli greidd úr Þjóðarsjóði. Ríkisstjórnin áformaði árið 2016 að setja á stofn Hamfarasjóð þar sem hugmyndir voru uppi um að eitt af hlutverkum hans yrði að greiða bætur í meiri háttar náttúruhamförum. Ekki kemur skýrt fram í gögnum hvort þau áform séu enn til staðar. Við vinnslu málsins er rétt að vekja athygli á þessu. NTÍ vill að lokum benda á að í skjalinu „Áform um lagasetningu“ kemur fram að samráð hafi farið fram við NTÍ í undirbúningi málsins, en það er misskilningur. Ekki hefur verið haft samráð við NTÍ vegna málsins. fh. stjórnar NTÍ, Hulda Ragnheiður Árnadóttir, frkv.stjóri

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

S-162/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. okt. 2018 – 13. nóv. 2018· 3 umsagnir

Þjóðarsjóður, frumvarpsdrög

Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til laga um að komið verði á fót varúðarsjóði til að mæta hugsanlegum fátíðum efnahagslegum skakkaföllum s.s. vegna vistkerfisbrests eða náttúruhamfara.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-162/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. nóvember 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. nóvember 2018)

Þær umsagnir sem bárust voru ekki þess eðlis að breyting á texta frumvarpsins kæmi til skoðunar. Í umsögn Samorku var vísað til orðalags í greinargerð um „umtalsverðar nýjar tekjur af arðgreiðslum eða auðlindaafnotagjöldum frá orkuvinnslufyrirtækjum vegna nýtingar á orkuauðlindum á forræði ríkisins“ og „auknar tekjur ríkissjóðs af nýtingu þeirra á orkuauðlindum“. Sú ályktun er dregin í umsögninni að með þessu sé gert ráð fyrir „innheimtu auðlindagjalda af orkufyrirtækjum“. Hið rétta er að í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að taka upp auðlindagjöld, þ.e. skattlagningu vegna auðlindanýtingar, heldur er vísað til leigutekna og sambærilegra tekna sem gert er ráð fyrir að kunni að aukast við endurskoðun á því hvernig endurgjaldi vegna nýtingar (afnota) á auðlindum í eigu ríkisins og í þjóðlendum er háttað. Með öðrum orðum er í frumvarpinu tekið tillit til þess að í framtíðinni kunni tekjur ríkissjóðs af orkuvinnslu að færast í aðra mynd þannig að vinnslufyrirtækin fari að greiða afnotagjöld, sem mun hafa áhrif á arðgreiðslur til lækkunar.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Valdimar Össurarson
    Sá þjóðarsjóður sem hér eru lögð drög að á lítið skylt við loforð núverandi ríkisstjórnar. Í stjórnarsáttmálanum stendur skýrum stöfum: "Þjóðarsjóður verður stofnaður utan um arð af auðlindum landsins og byrjað á orkuauðlindinni. Hlutverk sjóðsins verður að byggja upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum. Afmarkaður hluti ráðstöfunarfjár sjóðsins verður notaður til að efla nýsköpun og ráðast í átak í uppbyggingu hjúkrunarrýma". Fyrir liggur því loforð ríkisstjórnarinnar um að þjóðarsjóði verði m.a. ætlað að styðja nýsköpun. Ekkert slíkt er að finna í frumvarpsdrögunum. Óviðunandi… Lesa alla

    Sá þjóðarsjóður sem hér eru lögð drög að á lítið skylt við loforð núverandi ríkisstjórnar. Í stjórnarsáttmálanum stendur skýrum stöfum: "Þjóðarsjóður verður stofnaður utan um arð af auðlindum landsins og byrjað á orkuauðlindinni. Hlutverk sjóðsins verður að byggja upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum. Afmarkaður hluti ráðstöfunarfjár sjóðsins verður notaður til að efla nýsköpun og ráðast í átak í uppbyggingu hjúkrunarrýma". Fyrir liggur því loforð ríkisstjórnarinnar um að þjóðarsjóði verði m.a. ætlað að styðja nýsköpun. Ekkert slíkt er að finna í frumvarpsdrögunum. Óviðunandi er að ríkisstjórnin heykist þannig á loforðum sínum nánast um leið og þau eru gefin. Stjórnarsáttmáli á að vera trúverðugt plagg en ekki ryk sem þyrlað er í augu kjósenda Hér virðist enn og aftur eiga að þjarma að nýsköpun í landinu, en nánast mætti ætla að stjórnvöld vilji leggja allt frumkvöðlastarf í einelti; einkum það sem stundað er utan akademíu og stórfyrirtækja. Hugvitsmenn, sem ákallaðir eru og dýrkaðir í hátíðarræðum stjórnmálamanna, eru lítilsvirtir á allan hátt og þeim gert ómögulegt að koma verkefnum sínum í not og verðmætasköpun fyrir land og þjóð. Hér tala ég af reynslu, því auk þess að hafa í áratug stundað eigið verkefni; þróun fyrstu og einu íslensku sjávarfallatækninnar, þá hef ég jafn lengi verði formaður Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna. Ég hef í skýrslum sett fram rökstudda gagnrýni á aðgerðir og aðgerðaleysi stjórnvalda í nýsköpunarmálum. Stjórnvöld tóku á sig tvenns konar skuldbindingar með aðild Íslands að Parísarsáttmálanum. Annarsvegar þær að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda innanlands en hinsvegar þær sem um getur m.a. í 10.gr sáttmálans; að styðja við tækniþróun sem stuðlar að markmiðum sáttmálans um orkuskipti og minni losun á heimsvísu. Fyrrnefnda atriðið hafa stjórnvöld ávarpað lítillega með aðgerðaáætlun sinni í loftslagsmálum, en hinu atriðinu hafa þau algerlega litið framhjá. Þannig var það fyrsta verk stjórnvalda eftir undirritun sáttmálans að breyta lögum um Orkusjóð á þann hátt að hann má ekki lengur veita styrki til þróunar nýrrar orkutækni, og hefur ekki gert það síðan. Í samtölum mínum við alþingismenn hefur iðulega verið bent á stofnun þjóðarsjóðs sem stuðningsúrræðis í þessum efnum. Þau fyrirheit eru svikin með þessum frumvarpsdrögum. Engin virk stefna er í raun ríkjandi nýsköpun á sviði tækni sem styður við Parísarsáttmálans. Engin virk stefna er heldur í málefnum frumkvöðla og hugvitsmanna, og hagsmunasamtökum þeirra er markvisst haldið frá allri stefnumótun á sviði nýsköpunar. Vissulega hlýtur það að teljast jákvætt, jafnt hjá ríkissjóði sem hverju öðru fyrirtæki, að eiga varasjóði til að mæta áföllum. Hinsvegar ber það vitni um lélegan rekstur fyrirtækis ef allar tekjur eru lagðar til hliðar í stað þess að hluti þeirra sé nýttur til að afla fyrirtækinu tekna og standa undir eðlilegum rekstri. Þjóðarsjóður verður væntanlega að mestu myndaður af arðgreiðslum þjóðarinnar af sínum orkuauðlindum. Það hlýtur að vera sanngirniskrafa að hluti þess arðs sé nýttur til þróunar nýrrar orkutækni; tækni sem mun nýtast framtíðarkynslóðum til að nýta sér nýjar hreinar orkuauðlindir; t.d. sjávarfallaorku; langstærstu, fyrirsjáanlegustu og hreinustu orkuauðlind Íslendinga. Ég skora því á ríkisstjórnina að standa við sín eigin fyrirheit í stjórnarsáttmálanum og nýta verulegan hluta þjóðarsjóðs til eflingar nýsköpun; ekki síst á sviði loftslagsmála og nýtingar nýrra hreinna orkuauðlinda. Valdimar Össurarson framkv.stjóri Valorku ehf og formaður Samt. frumkvöðla og hugvitsmanna

  • #2Erla Björgvinsdóttir
    Vísað er til máls nr. S-162/2018 í Samráðsgáttinni, þar sem kynnt eru til umsagnar drög að frumvarpi um Þjóðarsjóð. Landsvirkjun fagnar því að frumvarp um Þjóðarsjóð skuli vera komið fram til kynningar og lýsir ánægju sinni með að fá tækifæri til að skila inn umsögn um það. Fyrirtækið styður stofnun Þjóðarsjóðs og styður sem fyrr áform um að arðgreiðslur fyrirtækisins til eiganda síns, íslenska ríkisins, fari með þeim hætti í varúðarsjóð í eigu þjóðarinnar til að mæta umfangsmiklum ófyrirséðum efnahagslegum áföllum sem þjóðarbúið getur hugsanlega orðið fyrir í framtíðinni. Á undanförnum mi… Lesa alla

    Vísað er til máls nr. S-162/2018 í Samráðsgáttinni, þar sem kynnt eru til umsagnar drög að frumvarpi um Þjóðarsjóð. Landsvirkjun fagnar því að frumvarp um Þjóðarsjóð skuli vera komið fram til kynningar og lýsir ánægju sinni með að fá tækifæri til að skila inn umsögn um það. Fyrirtækið styður stofnun Þjóðarsjóðs og styður sem fyrr áform um að arðgreiðslur fyrirtækisins til eiganda síns, íslenska ríkisins, fari með þeim hætti í varúðarsjóð í eigu þjóðarinnar til að mæta umfangsmiklum ófyrirséðum efnahagslegum áföllum sem þjóðarbúið getur hugsanlega orðið fyrir í framtíðinni. Á undanförnum misserum hefur Landsvirkjun bent á að arðgreiðslugeta fyrirtækisins muni aukast á næstu árum. Fyrirtækið hefur lagt mikla áherslu á lækkun skulda síðastliðin ár með góðum árangri og eiginfjárhlutfallið hefur aldrei verið hærra í sögu þess. Fyrirtækið hefur nýlega lokið við byggingu á tveimur nýjum aflstöðvum, Þeistareykjastöð og Búrfellsstöð II, og Búðarhálsstöð var gangsett 2014. Þessar þrjár virkjanir hafa lagt grunn að styrkari og öruggari tekjustofnum fyrirtækisins. Jafnframt hafa nýir viðskiptavinir hafið rekstur og endursamið hefur verið við eldri viðskiptavini. Stoðir Landsvirkjunar hafa því verið að styrkjast og áætlanir gefa til kynna að rekstur haldi áfram að batna. Síðastliðin ár hefur fyrirtækið greitt eiganda sínum 1,5 milljarð króna árlega í arðgreiðslur. Með sterkari efnahag, minni framkvæmdum og tryggu sjóðstreymi eru nú forsendur til að auka arðgreiðslur. Miðað við núverandi áætlanir er stefnt er að því að arðgreiðslur geti hækkað í skrefum og náð á nokkrum árum upp í 10-20 milljarða króna á ári. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að eignir sjóðsins verði varðveittar og ávaxtaðar í erlendum gjaldmiðlum og í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um að kanna megi þann möguleika við arðgreiðslur að þær verði að hluta til í erlendri mynt. Uppgjörsmynt Landsvirkjunar er Bandaríkjadalur og eru tekjur fyrirtækisins að stærstum hluta í þeirri mynt. Það gæti því farið vel að arðgreiðslur Landsvirkjunar verði í Bandaríkjadal en ekki í íslenskum krónum eins og verið hefur hingað til. Ísland hefur fullgilt Parísarssamning Sameinuðu þjóðanna og skuldbundið sig til að leggja sitt af mörkum til að markmiðum samningsins um að takmarka áhrif loftslagbreytinga verði náð. Ísland er eitt af fáum löndum í heiminum sem vinna allt sitt rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og mun Þjóðarsjóður, meðal annars með arðgreiðslum Landsvirkjunar, því byggja á tekjum af endurnýjanlegum orkuauðlindum sem eru á forræði ríkisins. Í því geta falist mikil tækifæri. Að lokum vill Landsvirkjun ítreka stuðning sinn við stofnun Þjóðarsjóðs. Fyrirtækið er að sjálfsögðu reiðubúið til að veita upplýsingar og aðstoða stjórnvöld við frekari undirbúning málsins verði eftir því leitað.

  • #3Baldur Dýrfjörð

    Hjálögð er umsögn Samorku - samtaka orku- og veitufyrirtækja um mál nr. S-162/2018 um þjóðarsjóð. f.h. Samorku Baldur Dýrfjörð lögfræðingur

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Ferill málsins

Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.

  1. Þingskjal
  2. Umræða
    1. umræða
    23 ræður · 2 klst. 14 mín
  3. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  4. Atkvæðagreiðsla
    · yfirlýsing forseta/mál gengur
  5. Umsagnir
    Umsagnabeiðnir sendar, frestur til 31. janúar 2019
    1 beiðni um umsögn
  6. Þingskjal
  7. Þingskjal
  8. Þingskjal
  9. Þingskjal
  10. Þingskjal

Þingskjöl

6 skjöl

Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.

Þskj.TegundÚtbýttFlutningsmennSkjal
594Stjórnarfrumvarp5. des. 2018Bjarni BenediktssonLesaPDF
1576Nefndarálit21. maí 2019Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir +3LesaPDF
1577Breytingartillaga21. maí 2019Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir +3LesaPDF
1583Nefndarálit21. maí 2019Oddný G. Harðardóttir, Smári McCarthyLesaPDF
1596Nefndarálit23. maí 2019Þorsteinn VíglundssonLesaPDF
1675Nefndarálit31. maí 2019Sigmundur Davíð GunnlaugssonLesaPDF

Allar atkvæðagreiðslur

2 alls · 0 með atkvæðaskrá

Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.

  • yfirlýsing forseta/mál gengur12. desember 2018 kl. 20:15
    Frumvarp gengur til 2. umræðu
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
  • yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd12. desember 2018 kl. 20:15
    Frumvarp gengur til nefndar
    Engin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.

Hverjir tóku til máls

23 ræður · 2 klst. 14 mín
  • 1. umræða: 23 ræður · 11 ræðumenn · 2 klst. 14 mín
ÞingmaðurFlokkurRæðurRæðutími
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur954 mín
Óli Björn KárasonSjálfstæðisflokkur116 mín
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur115 mín
Bjarkey GunnarsdóttirUtan þingflokka112 mín
Guðjón S. BrjánssonSamfylkingin19 mín
Birgir ÞórarinssonMiðflokkurinn39 mín
Ólafur Þór GunnarssonUtan þingflokka18 mín
Ari Trausti GuðmundssonUtan þingflokka15 mín
Jón Steindór ValdimarssonViðreisn24 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirUtan þingflokka22 mín
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin11 mín

Umsagnir og erindi

15 erindi

Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.

Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 14. des. 2018, frestur 31. jan. 2019.

Hver sendiTegundBarstSkjal
Fjármála- og efnahagsráðuneytiðminnisblaðOpna PDF
Guðmundur Hörður GuðmundssonumsögnOpna PDF
Ásgeir Brynjar TorfasonumsögnOpna PDF
FjármálaráðumsögnOpna PDF
Samband íslenskra sveitarfélagaumsögnOpna PDF
Alþýðusamband ÍslandsumsögnOpna PDF
Seðlabanki ÍslandsumsögnOpna PDF
Viðskiptaráð ÍslandsumsögnOpna PDF
FjármálaeftirlitiðumsögnOpna PDF
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækjaumsögnOpna PDF
LandsvirkjunumsögnOpna PDF
Jökull Sólberg AuðunssonumsögnOpna PDF
Náttúruhamfaratrygging ÍslandsumsögnOpna PDF
RíkisendurskoðunumsögnOpna PDF
Frosti SigurjónssonumsögnOpna PDF

Tengd mál

Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.