Þjóðarsjóður
Hvar er málið statt?
Málið dagaði uppi: þinginu lauk án þess að það væri afgreitt.
- Lagt fram
- 1. umræða
- Í nefnd
- 2. umræða
- 3. umræða
- Dagaði uppi
Skráning Alþingis: „Ekki útrætt á 150. þingi. (Var í nefnd eftir 1. umræðu.)“
Í stuttu máli
Að treysta fjárhagslegan styrk ríkissjóðs til að mæta afleiðingum af meiri háttar ófyrirséðum áföllum sem þjóðarbúið verður fyrir.
Lagt fram af Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra (S), fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
- Lagt fram
- 15. október 2019
- Tegund
- Stjórnarmál
- Atkvæðagreiðslur með skrá
- 0
- Umræða í þingsal
- 39 ræður · 2 klst. 16 mín
Málið á mannamáli
Byggt á samantekt sem starfsfólk Alþingis skrifar með frumvarpinu. Orðalagið er þeirra; Alviti hefur aðeins skipt textanum í hluta.
Markmiðið
Að treysta fjárhagslegan styrk ríkissjóðs til að mæta afleiðingum af meiri háttar ófyrirséðum áföllum sem þjóðarbúið verður fyrir.
Hvað breytist
Lagt er til að komið verði á fót svokölluðum Þjóðarsjóði sem gert er ráð fyrir að yrði eins konar áfallavörn fyrir þjóðina þegar ríkissjóður verður fyrir fjárhagslegri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyrirséð áföll á þjóðarhag, annaðhvort vegna afkomubrests eða vegna kostnaðar við viðbragðsráðstafanir sem stjórnvöld hafa talið óhjákvæmilegt að grípa til í kjölfar áfalls eða til að varna því. Þjóðarsjóðurinn yrði eign íslenska ríkisins og lagt er til að sérstök stjórn verði sett yfir hann og fari með yfirstjórn hans. Gert er ráð fyrir að auknar tekjur ríkissjóðs á komandi árum af arðgreiðslum og auðlindaafnotagjöldum frá orkuvinnslufyrirtækjum verði nýttar til að fjármagna framlög í sjóðinn og að hann fjárfesti þá fjármuni eingöngu í erlendum verðbréfum samkvæmt fjárfestingarstefnu sem stjórn sjóðsins setur með samþykki ráðherra. Að auki er gert ráð fyrir að allar tekjur og hagnaður af fjármunaeign sjóðsins renni til hans. Ef til ófyrirséðs áfalls kemur, og að uppfylltum tilteknum skilyrðum og mati nefndar á fjárhagsáhrifum áfallsins, er lagt til að ráðherra geti gert tillögu um að Alþingi samþykki þingsályktun um að stjórn Þjóðarsjóðs úthluti til ríkissjóðs framlagi sem nemi allt að helmingi eigna sjóðsins vegna eins atburðar en veiti síðan lagaheimild í næstu fjárlögum. Gert er ráð fyrir að fyrirkomulagið á ráðstöfun úr Þjóðarsjóði feli í sér það skilyrði að fjárhagstjón ríkissjóðs nemi a.m.k. 5% af meðaltekjum síðustu þriggja rekstrarára.
Lög sem breytast
Um er að ræða ný lög en við gildistöku laganna verða breytingar á lögum um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.
Kostnaður fyrir ríkið
Gert er ráð fyrir að daglegur rekstur sjóðsins verði hóflegur að umfangi og að kostnaður vegna sjóðsins greiðist af tekjum hans eða eigin fé þannig að hann hafi ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Þar sem nokkur kostnaður getur myndast við rekstur áður en fyrstu greiðslur renna til sjóðsins er gert ráð fyrir að rekstrarfé sem sjóðurinn þarf á að halda fyrst í stað við undirbúning starfseminnar verði fjármagnað tímabundið úr ríkissjóði. Gert er ráð fyrir að á næstu misserum marki stjórnvöld eigenda- og arðgreiðslustefnu gagnvart orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkisins sem feli í sér auknar tekjur ríkissjóðs af nýtingu þeirra á orkuauðlindum, einkum frá Landsvirkjun. Þar sem þessar ákvarðanir liggja ekki fyrir strax er nokkur óvissa um hve miklar þessar nýju tekjur verða en á opinberum vettvangi hefur verið rætt um 10–20 milljarða kr. á ári. Til bráðabirgða er miðað við að tekjur ríkissjóðs aukist árlega um 10 milljarða kr. að lágmarki og að jafnháu framlagi verði veitt til Þjóðarsjóðs. Í þessu sambandi má benda á að þetta verða að teljast vera fremur óvenjulegar tekjur þar sem þær eru upprunnar í auðlindarentu sem óvíst er að verði viðvarandi um alla framtíð sökum þess að ýmislegt getur haft áhrif á þær, svo sem breytingar í orkubúskapnum, sviptingar á alþjóðlegum orkumörkuðum og tæknibreytingar, t.d. aukin hagnýting vind- eða sólarorku. Ef slíkar forsendur verða hagstæðari en nú er gert ráð fyrir gæti uppbygging sjóðsins orðið hraðari en á hinn bóginn hægari ef þær reynast óhagstæðari.
Meira úr samantektinni
Þjóðarauðssjóðir í öðrum löndum
Ástralía
Future Fund
Bandaríkin (Alaska)
Alaska Permanent Fund
Chile
Fondo de Estabilización Económica y Social
Fondo de Reserva de Pensiones
Noregur
Statens pensjonsfond utland (norska) (enska)
--Lög um norska þjóðarauðssjóðinn (lov om Statens pensjonsfond) LOV-2005-12-21-123.
--Reglur fjármálaráðherra um umboð Seðlabanka Noregs til að hafa umsjón með þjóðarauðssjóðnum (Mandat for forvaltning av Statens pensjonsfond utland) FOR-2010-11-08-1414.
--Skýrsla og tillögur nefndar um breytingar á lögum um seðlabanka Noregs (NOU 2017:13) (norska) (enska).
Nýja-Sjáland
New Zealand Superannuation Fund
Afstaða þingflokkanna
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkurfjármála- og efnahagsráðherra
Framsögumaður nefndar: Óli Björn Kárason
Engin atkvæðagreiðsla með skráðum atkvæðum hefur farið fram um málið; ákvarðanir hingað til voru teknar með yfirlýsingu forseta án þess að atkvæði einstakra þingmanna væru skráð.
„Greiddu atkvæði með/á móti“ vísar til skráðra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Alviti dregur ekki ályktanir um afstöðu þeirra sem ekki greiddu atkvæði.
Af hverju skiptir þetta máli?
Svið sem Alþingi flokkar málið undir. Smelltu til að sjá önnur mál á sama sviði.
- Nefndin sem fjallar um málið
- Efnahags- og viðskiptanefnd
- sendi 1 umsagnabeiðni · frestur 15. nóv. 2019
- Sendu inn umsögn eða erindi
- 11 aðilar
- Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, Seðlabanki Íslands, Alþýðusamband Íslands, Fjármálaeftirlitið, Landsvirkjun o.fl. · allar umsagnir
- Umræða í þingsal
- 2 klst. 16 mín · 39 ræður
- 9 þingmenn tóku til máls. Lengd umræðu mælir áhuga þingsins, ekki mikilvægi málsins.
- Kostnaður fyrir ríkissjóð
- Gert er ráð fyrir að daglegur rekstur sjóðsins verði hóflegur að umfangi og að kostnaður vegna sjóðsins greiðist af tekjum hans eða eigin fé þannig að hann hafi ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Þar sem nokkur kostnaður getur myndast við rekstur áður en fyrstu greiðslur renna til sjóðsins er gert ráð fyrir að rekstrarfé sem sjóðurinn þarf á að halda fyrst í stað við undirbúning starfseminnar verði fjármagnað tímabundið úr ríkissjóði. Gert er ráð fyrir að á næstu misserum marki stjórnvöld eigenda- og arðgreiðslustefnu gagnvart orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkisins sem feli í sér auknar tekjur ríkissjóðs af nýtingu þeirra á orkuauðlindum, einkum frá Landsvirkjun. Þar sem þessar ákvarðanir liggja ekki fyrir strax er nokkur óvissa um hve miklar þessar nýju tekjur verða en á opinberum vettvangi hefur verið rætt um 10–20 milljarða kr. á ári. Til bráðabirgða er miðað við að tekjur ríkissjóðs aukist árlega um 10 milljarða kr. að lágmarki og að jafnháu framlagi verði veitt til Þjóðarsjóðs. Í þessu sambandi má benda á að þetta verða að teljast vera fremur óvenjulegar tekjur þar sem þær eru upprunnar í auðlindarentu sem óvíst er að verði viðvarandi um alla framtíð sökum þess að ýmislegt getur haft áhrif á þær, svo sem breytingar í orkubúskapnum, sviptingar á alþjóðlegum orkumörkuðum og tæknibreytingar, t.d. aukin hagnýting vind- eða sólarorku. Ef slíkar forsendur verða hagstæðari en nú er gert ráð fyrir gæti uppbygging sjóðsins orðið hraðari en á hinn bóginn hægari ef þær reynast óhagstæðari.
- úr samantekt Alþingis
Orð og atkvæði
Hvað þingmenn sögðu um málið, við hliðina á því hvernig þeir greiddu atkvæði.
Ekki hafa verið greidd atkvæði um málið með nafnakalli enn, svo hér sést aðeins hvað þingmenn sögðu.
Bjarni BenediktssonSjálfstæðisflokkur2 ræður · 14 andsvör · 57 mín
Oddný G. HarðardóttirSamfylkingin1 ræða · 4 andsvör · 19 mín
Ólafur Þór GunnarssonÞingflokkur 231 ræða · 2 andsvör · 15 mín
Guðmundur Ingi KristinssonFlokkur fólksins1 ræða · 4 andsvör · 13 mín
Þorsteinn VíglundssonViðreisn1 ræða · 2 andsvör · 12 mín
Ólafur ÍsleifssonMiðflokkurinn1 ræða · 11 mín
Sýna 3 í viðbótFela
Willum Þór ÞórssonFramsóknarflokkur2 andsvör · 4 mín
Jón Þór ÓlafssonÞingflokkur 432 andsvör · 3 mín
Rósa Björk BrynjólfsdóttirUtan þingflokka2 andsvör · 2 mín
Tilvitnanir eru orðréttar úr ræðum á vef Alþingis, ekki samantekt. Þar sem þingmaður gerði grein fyrir atkvæði sínu við sjálfa atkvæðagreiðsluna er sú skýring sýnd, annars upphaf lengstu ræðu þingmannsins um málið. Ræðutextar berast frá Alþingi smám saman og tilvitnanir bætast við þegar þeir hafa verið sóttir.
Allt um málið
Öll gögn, ferill og tölur fyrir þau sem vilja skoða nánar.
Ferill málsins
Hvert skref sem Alþingi hefur skráð: þingskjöl, umræður, atkvæðagreiðslur og umsagnabeiðnir, í tímaröð.
- Þingskjal
- Umræða1. umræða39 ræður · 2 klst. 16 mín
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- Atkvæðagreiðsla· yfirlýsing forseta/mál gengur
- UmsagnirUmsagnabeiðnir sendar, frestur til 15. nóvember 20191 beiðni um umsögn
Þingskjöl
Frumvarpið sjálft, breytingartillögur, nefndarálit og önnur skjöl eins og Alþingi birtir þau.
Allar atkvæðagreiðslur
Líka ákvarðanir sem voru teknar með yfirlýsingu forseta; þær skilja ekki eftir sig atkvæði einstakra þingmanna.
- yfirlýsing forseta/mál gengur22. október 2019 kl. 17:41Frumvarp gengur til 2. umræðuEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
- yfirlýsing forseta/mál gengur→ efnahags- og viðskiptanefnd22. október 2019 kl. 17:41Frumvarp gengur til nefndarEngin atkvæðaskrá: ákvörðun tekin án rafrænnar atkvæðagreiðslu.
Hverjir tóku til máls
- 1. umræða: 39 ræður · 9 ræðumenn · 2 klst. 16 mín
| Þingmaður | Flokkur | Ræður | Ræðutími |
|---|---|---|---|
| Sjálfstæðisflokkur | 16 | 57 mín | |
| Samfylkingin | 5 | 19 mín | |
| Utan þingflokka | 3 | 15 mín | |
| Flokkur fólksins | 5 | 13 mín | |
| Viðreisn | 3 | 12 mín | |
| Miðflokkurinn | 1 | 11 mín | |
| Framsóknarflokkur | 2 | 4 mín | |
| Utan þingflokka | 2 | 3 mín | |
| Utan þingflokka | 2 | 2 mín |
Umsagnir og erindi
Nefndin kallar eftir áliti stofnana, samtaka og almennings. Hér eru þeir sem svöruðu.
Efnahags- og viðskiptanefnd sendi 1 umsagnabeiðni 25. okt. 2019, frestur 15. nóv. 2019.
| Hver sendi | Tegund | Barst | Skjal |
|---|---|---|---|
| Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja | umsögn | Opna PDF | |
| Seðlabanki Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Alþýðusamband Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Fjármálaeftirlitið | umsögn | Opna PDF | |
| Landsvirkjun | umsögn | Opna PDF | |
| Viðskiptaráð Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Samtök atvinnulífsins | umsögn | Opna PDF | |
| Náttúruhamfaratrygging Íslands | umsögn | Opna PDF | |
| Gylfi Magnússon | umsögn | Opna PDF | |
| Samband íslenskra sveitarfélaga | athugasemd | Opna PDF | |
| Hagfræðistofnun Háskóla Íslands | umsögn | Opna PDF |
Tengd mál
- Þjóðarsjóðurtengt
- Þjóðarsjóðurtengt
Heimild: Alþingi, ferill máls · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)