Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-163/2018 · Forsætisráðuneytið

Frumvarp til laga um bætur vegna ærumeiðinga

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný stofnlög um ærumeiðingar þar sem mælt verði fyrir um einkaréttarleg úrræði til að bregðast við ærumeiðingum.

Þann 16. mars 2018 skipaði forsætisráðherra nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis. Var nefndinni m.a. falið að vinna frekar afurðir stýrihóps sem skipaður var í kjölfar þingsályktunar nr. 23/138 um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Þá skyldi nefndin fara yfir fyrirliggjandi tillögur á þessu sviði, auk þess að meta hverjar aðrar lagabreytingar kunni að vera æskilegar. Gert var ráð fyrir því að nefndin skili einkum af sér í formi lagafrumvarpa og eftir atvikum annarra undirbúningsskjala lagasetningar. Var henni falið að skila af sér í tveimur skrefum. Þannig skyldi tilteknum þáttum lokið fyrir 1. október 2018 en öðrum fyrir 1. mars 2019. Þann 26. september 2018 skilaði nefndin af sér fyrri hluta vinnu sinnar. Meðal afurðanna er frumvarp til laga um bætur vegna ærumeiðinga. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný stofnlög um ærumeiðingar þar sem mælt verði fyrir um einkaréttarleg úrræði til að bregðast við ærumeiðingum. Gert er ráð fyrir að tvenns konar úrræðum verði beitt, miskabótum og bótum fyrir fjártjón. Við beitingu þeirra skuli höfð hliðsjón af sök, efni tjáningar og aðstæðum að öðru leyti. Samhliða er lagt til að felld verði úr gildi ákvæði almennra hegningarlaga um refsingar fyrir ærumeiðingar, ómerkingu ummæla og heimild til að dæma bætur fyrir kostnað af birtingu dóms. Sama gildir um vernd sem opinberir starfsmenn, erlend ríki, fánar þeirra og þjóðhöfðingjar hafa notið.

S-163/2018· Drög að frumvarpi til laga· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2018 – 12. nóv. 2018· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um bætur vegna ærumeiðinga

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný stofnlög um ærumeiðingar þar sem mælt verði fyrir um einkaréttarleg úrræði til að bregðast við ærumeiðingum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-163/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. nóvember 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 860)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. ágúst 2019)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi þann 26. apríl 2019 en var ekki rætt á þinginu. Í greinargerð er fylgdi frumvarpinu er gerð grein fyrir úrvinnslu úr samráðinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-163/2018: Frumvarp til laga um bætur vegna ærumeiðinga · Alviti