Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-19/2019 · Forsætisráðuneytið

Sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins

Áform um frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands og frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.

Forsætisráðuneytið (vegna fyrirhugaðs frumvarps til laga um Seðlabanka Íslands) og fjármála- og efnahagsráðuneytið (vegna fyrirhugaðs frumvarps til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins) áforma að leggja fram frumvörp til laga til að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið í eina stofnun undir heitinu Seðlabanki Íslands. Hlutverk hinnar sameinuðu stofnunar mun, fyrir utan hina hefðbundnu seðlabankastarfsemi svo sem varðveislu gjaldeyrisvaraforða, útgáfu seðla og mynta og starfrækslu greiðslukerfa, skiptast í þrjár meginstoðir: a) peningastefnu, b) fjármálastöðugleika og c) fjármálaeftirlit.

S-19/2019· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 17. jan. 2019 – 1. feb. 2019· 2 umsagnir

Sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins

Áform um frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands og frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-19/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. febrúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 765)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. desember 2020)

Lög um Seðlabanka Íslands voru samþykkt á Alþingi í júlí 2019. Sjá hlekk á framhald málsins á Alþingi. Sjá einnig mál nr. 83/2019 í samráðsgátt.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-19/2019: Sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins · Alviti