Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-236/2018 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (gildisdagsetningar, virðisaukaskattsskylda alþjóðaflugvalla o.fl.).

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (gildisdagsetningar, virðisaukaskattsskylda alþjóðaflugvalla o.fl.).

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar af ýmsum toga. Í fyrsta lagi lagðar til breytingar á lögunum er varða gildisdag vaxtabreytinga sem nauðsynlegt er að lagfæra. Slík álitamál koma einkum fram þegar álagningu er breytt á fleiri en einu uppgjörstímabili í senn á grundvelli leiðréttingarskýrslu sem oftast er skilað með skattframtali rekstraraðila þannig að skuld og inneign geta myndast við sömu skattbreytingu sem aftur veldur flóknum vaxtaútreikningi. Tillögurnar eru byggðar á skýrslu starfshóps um gildisdagsetningar í virðisaukaskatti sem skilað var til fjármála- og efnahagsráðherra í júní sl. Í öðru lagi er talið nauðsynlegt að skýra nánar skattskyldu hjá rekstraraðilum alþjóðaflugvalla á Íslandi til samræmis við það sem gildir í nágrannaríkjum okkar. Jafnframt þarf að taka af tvímæli um að tiltekin þjónusta sem veitt er slíkum förum og farþegum þeirra skuli teljast til veltu sem undanþegin er virðisaukaskatti. Í þriðja lagi er talin þörf á að lögfesta ný ákvæði um endurupptökuheimildir, endurákvarðanir og enduráætlanir á virðisaukaskatti eftir upphaflega ákvörðun virðisaukaskatts á hverju uppgjörstímabili til samræmis við gildandi löggjöf um tekjuskatt, sbr. lög nr. 90/2003. Í fjórða lagi er um að ræða leiðréttingu á heimild til færslu innskatts vegna öflunar fólksbifreiða til nota í ferðaþjónustu en í ljós hefur komið að þær heimildir sem bætt var við lögin og í reglugerð um innskatt, eftir að fólksflutningar urðu almennt virðisaukaskattsskyldir frá og með 1. janúar 2016, eru rýmri en áformað var. Í fimmta lagi er lagt til að kveðið verði nánar á um heimildir erlendra fyrirtækja til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna kaupa á þjónustu hér á landi í því skyni að koma í veg fyrir mögulega samkeppnisröskun gagnvart innlendum rekstraraðilum. Í sjötta lagi er um að ræða ýmsar minniháttar breytingar á lögunum eða viðbætur við lögin sem miða að auknum skýrleika og nánari skilgreiningu á tilteknum ákvæðum laganna. Í því sambandi eru m.a. lagðar til breytingar á lögunum er varða afskráningu skattaðila af virðisaukaskattsskrá og skyldu aðila sem felldur hefur verið af virðisaukaskattsskrá til skila á innheimtum skatti í ríkissjóð o.fl.

S-236/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. nóv. 2018 – 25. nóv. 2018· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (gildisdagsetningar, virðisaukaskattsskylda alþjóðaflugvalla o.fl.).

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (gildisdagsetningar, virðisaukaskattsskylda alþjóðaflugvalla o.fl.).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-236/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. nóvember 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 432)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Samtök ferðaþjónustunnar

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar við drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (gildisdagsetningar, virðisaukaskattsskylda alþjóðaflugvalla o.fl.). Virðingarfyllts F.h. Samtaka ferðajónustunnar Gunnar Valur Sveinsson

  • #2Karl Alvarsson

    Sjá meðfylgjandi umsögn Kv. Karl A.

  • #3Samtök ferðaþjónustunnar

    Ágæti viðtakandi, Vísað er í fyrri umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar frá 23.11.2018 en hér í viðhengi er viðbótarumsögn sem lýtur að virðisaukaskattskyldu alþjóðaflugvalla. Bestu kveðjur f.h Samtaka ferðaþjónustunnar Gunnar Valur Sveinsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-236/2018: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt (gildisdagsetningar, virðisaukaskattsskylda alþjóðaflugvalla o.fl.). · Alviti