Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-229/2018 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs (stjórnvaldssektir o.fl.)

Lagt til að stjórnvöld hafi heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögum um holl­ustuhætti og mengunarvarnir og lögum um meðhöndlun úrgangs. Með frumvarpinu verða einnig gerðar ýmsar breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um frumvarp vegna breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í frumvarpinu er lag til að Umhverfisstofnun hafi heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem og lögum um meðhöndlun úrgangs. Frumvarpinu er ætlað að tryggja eins og frekast er unnt að ekki sé hægt að hagnast á því að fara ekki að umræddum lögum. Hins vegar þyki ekki rétt að öll brot varði viðurlögum sem ákveðin eru af dómstólum. Með því að taka upp stjórnvaldssektir er betur tryggt að lögum verði framfylgt. Í frumvarpinu er einnig lagt til að skil rekstraraðila á umhverfisupplýsingum um losun frá atvinnurekstrinum og hráefnanotkun verði einfölduð með því að samþætta skil á grænu bókhaldi og útstreymisbókhaldi. Lagt er til að rekstraraðilar geti skilað framangreindum upplýsingum til Umhverfisstofnunar með rafrænum hætti. Þá er lagt til að Umhverfisstofnun hafi heimild til að framlengja gildistíma starfsleyfis á meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu. Þörf getur verið á slíkri heimild t.d. ef óviðráðanlegar tafir verða í umsóknarferlinu og eldra starfsleyfi rennur út áður en unnt er að gefa út endurnýjað starfsleyfi. Þá er lögð til breyting á fyrirkomulagi við ráðningar framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits og starfsmanna þess. Í frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisnefndir á hverju eftirlitssvæði ráði framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits og setji honum starfslýsingu. Þá er lagt til það nýmæli að framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits ráði til starfa aðra starfsmenn heilbrigðiseftirlitsins í stað heilbrigðisnefndar áður. Jafnframt er lagt til að starfsheitið heilbrigðisfulltrúi verði lagt niður og ekki verði þörf á leyfi ráðherra til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi eða starfsmaður heilbrigðiseftirlits. Að lokum er lagt til að heilbrigðisnefnd geti ákveðið að fela framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits og starfsmönnum þess heimild til ákvarðanatöku í einstökum málaflokkum sem undir heilbrigðisnefnd heyrir og henni er ætlað að sinna samkvæmt lögunum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Auk annarra breytinga á lögum eru í frumvarpinu lagðar til nokkrar breytingar á orðalagi ákvæða laga um hollustuhætti og mengunarvarnir um þvingunarúrræði. Einnig er kveðið á um hámarksfjárhæð dagsekta og að þær falli ekki niður þrátt fyrir að málsaðili uppfylli skyldur sínar síðar.

S-229/2018· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. nóv. 2018 – 29. nóv. 2018· 11 umsagnir

Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs (stjórnvaldssektir o.fl.)

Lagt til að stjórnvöld hafi heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögum um holl­ustuhætti og mengunarvarnir og lögum um meðhöndlun úrgangs. Með frumvarpinu verða einnig gerðar ýmsar breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-229/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. nóvember 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 542)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (4. júlí 2019)

Frumvarpið var til umsagnar í samráðsgátt Stjórnarráðsins frá 13. nóvember 2018 til 29. nóvember 2018. Alls bárust 15 umsagnir um frumvarpið sem hafðar voru til hliðsjónar við lokafrágang frumvarpsins. Í greinargerð frumvarpsins var gerð grein fyrir helstu athugasemdum við frumvarpið og viðbrögð ráðuneytisins við þeim.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-229/2018: Frumvarp, hollustuhættir og mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs (stjórnvaldssektir o.fl.) · Alviti