Áform um frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-154/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. október 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 442)
Niðurstöður samráðs (1. nóvember 2018)
Áform um frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup voru birt á samráðsgátt stjórnarráðsins þar sem gefinn var kostur á að skila inn umsögnum. Ein formleg umsögn barst frá Samtökum iðnaðarins inn á samráðsgáttina. Að samráðsfresti liðnum inn á gáttinni barst einnig umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til ráðuneytisins. Í báðum umsögnunum var tekið undir það mat að mikilvægt væri að gera tiltekin ákvæði í lögum um opinber innkaup markvissari einkum þannig að innkaupaferlið væri skýrt og skilvirkt í framkvæmd. Næsta skref er að gengið verður formlega frá frumvarpi vegna þeirra breytinga sem þörf er að gera á tilteknum ákvæðum í núgildandi lögum um opinber innkaup.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #2Samtök iðnaðarins
Góðan daginn Meðfylgjandi er umsögn Samtaka iðnaðarins um áform um frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup. Virðingarfyllst, Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur SI
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.