Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu).
Í frumvarpsdrögunum er lagt til að innheimta opinberra gjalda, sem tollstjóri annast nú, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2019.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-153/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. október 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (29. október 2018)
Fjármála- og efnahagsráðuneytið þakkar góðar ábendingar. Brugðist er við þeim í sérstöku niðurstöðuskjali en ekki er talin ástæða til breytinga á frumvarpsdrögunum vegna þeirra.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Unnur Valborg Hilmarsdóttir
Hvammstanga, 18. október 2018 Umsögn ferðamálaráðs um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu). Mál nr. S-153/2018 Fjármálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi um breytingar á lögum um tekjuskatt sem lúta að því að færa innheimtu opinberra gjalda frá Tollstjóra til Ríkisskattstjóra. Ferðamálaráð fagnar framkominni tillögu ráðherra. Það er mat ráðsins að verði frumvarpið að lögum einfaldist kerfið til muna sem leiðir til þess að eftirlit verður skilvirkara. Breytingin er í takt við áherslur ráðsins í t… Lesa alla
Hvammstanga, 18. október 2018 Umsögn ferðamálaráðs um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu). Mál nr. S-153/2018 Fjármálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi um breytingar á lögum um tekjuskatt sem lúta að því að færa innheimtu opinberra gjalda frá Tollstjóra til Ríkisskattstjóra. Ferðamálaráð fagnar framkominni tillögu ráðherra. Það er mat ráðsins að verði frumvarpið að lögum einfaldist kerfið til muna sem leiðir til þess að eftirlit verður skilvirkara. Breytingin er í takt við áherslur ráðsins í tillögum þess til ráðherra ferðamála frá því í ágúst 2017 þar sem að beiðni ráðherra voru lagðar fram aðgerðir til að auka samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Leiðarstef í þeim tillögum var nauðsyn þess að einfalda hið flókna kerfi sem fyrirtæki í ferðaþjónustu búa við af hálfu hins opinbera og kemur niður á samkeppnishæfni greinarinnar. F. h. Ferðamálaráðs, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður.
- #2KPMG ehf.
Umsögn KPMG
- #5Sýslumannafélag Íslands
Varhugavert þykir með tilliti til vanhæfissjónarmiða að álagning og innheimta sé á sömu hendi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.