Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (þrenging ákvæðis um hatursorðræðu)
Í frumvarpinu felst tillaga að rýmkun tjáningarfrelsis með því að gera kröfu um nánar tiltekinn grófleika eða alvarleika til þess að tjáning varði refsingu sem hatursorðræða.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-164/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. nóvember 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 543)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (16. ágúst 2019)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi þann 6. febrúar 2019 en var ekki útrætt á þinginu. Gerð er grein fyrir úrvinnslu úr samráði í greinargerð er fylgdi frumvarpinu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
- #1Margrét Steinarsdóttir
Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (þrenging ákvæðis um hatursorðræðu)
- #3Sigríður Jónsdóttir
Nefnd um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis Mál nr. S-1642018 Hatursorðræða Reykjavík 11.11.18 Efni: Athugasemdir við tillögur nefndarinnar er varða hatursorðræðu og ærumeiðingar. Umsögn mín er í viðhengi. K. kv. Sigríður Jónsdóttir
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.