Frumvarp til laga um ófrjósemisaðgerðir
Frumvarp til nýrra heildarlaga um ófrjósemisaðgerðir í stað ákvæðis gildandi laga nr. 25/1975 um ófrjósemisaðgerðir.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-225/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 27. nóvember 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. janúar 2019)
Ein umsögn barst og var hún frá Landssamtökunum Þroskahjálp sem lögðu áherslu á að í frumvarpinu yrðu tryggð þau réttindi sem fram koma í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Sérstök áhersla var lögð á að í frumvarpinu yrði tryggður réttur fatlaðra einstaklinga, og alveg sérstaklega einstaklinga með þroskahömlun eða skyldar raskanir, til að fá notið óskerts gerhæfis varðandi allt það sem fjallað væri um í frumvarpinu og fá örugglega þann stuðning sem þau þyrftu á að halda til að nýta gerhæfi sitt. Enn fremur að tryggt yrði að viðeigandi aðlögunar væri sérstaklega gætt við alla framkvæmd á umræddu sviði. Markmið og efni frumvarpsins er í samræmi við þessar áherslur Þroskahjálpar og var því ekki talin ástæða til að gera breytingar á því vegna umsagnarinnar. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi. Sjá - https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=435
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Þroskahjálp,landssamtök
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um ófrjósemisaðgerðir. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að mannéttindamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og fötluð börn. Samtökin vilja koma eftirfarandi á framfæri varðandi frumvarpið. Í 23. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur yfirskriftina Virðing fyrir heimili og fjölskyldu, er lögð sérstök áhersla á skyldur ríkja til að tryggja að fatlað fólk fái haldið frjósemi sinni til jafns við aðra. Þar segir: Aðildarríkin skulu gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir í þ… Lesa alla
Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um frumvarp til laga um ófrjósemisaðgerðir. Landssamtökin Þroskahjálp vinna að mannéttindamálum fatlaðs fólks, með sérstaka áherslu á fólk með þroskahömlun og fötluð börn. Samtökin vilja koma eftirfarandi á framfæri varðandi frumvarpið. Í 23. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur yfirskriftina Virðing fyrir heimili og fjölskyldu, er lögð sérstök áhersla á skyldur ríkja til að tryggja að fatlað fólk fái haldið frjósemi sinni til jafns við aðra. Þar segir: Aðildarríkin skulu gera árangursríkar og viðeigandi ráðstafanir í því skyni að uppræta mismunun gagnvart fötluðu fólki í öllum málum sem lúta að hjónabandi, fjölskyldu, foreldrahlutverki og samböndum, á sama hátt og gildir um aðra, til þess að tryggja megi: ... að fatlað fólk, þar með talin börn, fái haldið frjósemi sinni til jafns við aðra. Það er alls ekki að ástæðulausu að sérstaklega og skýrt er kveðið á um þennan rétt í þessum mikilvæga mannréttindasamningi. Ástæðan er einfaldlega sú að sagan og reynsla sýnir svo ekki verðru um villst að mikil hætta er á að fatlað fólk fái ekki notið þessa réttar og þurfi að þola margvísleg brot gegn honum og ofbeldi eða þvinganir á þessu sviði. 12. gr. samnings SÞ hefur yfirskriftina Réttarstaða til jafns við aðra. Þar er mælt fyrir um ýmsar skyldur sem á stórnvöldum hvíla til að tryggja að fatlað fólk, þ.m.t. fólk með þrokskahamlanir og/eða skyldar raskanir, fái notið gerhæfis til jafns við aðra og ráðstafanir sem stjórnvöld verða að gera til að tryggja það. 2. og 3. mgr. 12. gr. hljóða svo: Aðildarríkin skulu viðurkenna að fatlað fólk njóti gerhæfis til jafns við aðra á öllum sviðum lífsins. Aðildarríkin skulu gera viðeigandi ráðstafanir til þess að fatlað fólk fái þann stuðning sem það kann að þarfnast þegar það nýtir gerhæfi sitt. (Undirstr. Þroskahjálpar) Í 5. gr. samnings SÞ er kveðið á um jafnrétti og bann við mismunun á grundvelli fötlunar. Í 3. mgr. þeirrar greinar er kveðið á um skyldur ríkja til að tryggja að fötluðum einstaklingum standi viðeigandi aðlögun til boða. Þar segir: Aðildarríkin skulu, í því skyni að stuðla að jöfnuði og uppræta mismunun, gera allar viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að fötluðu fólki standi viðeigandi aðlögun til boða. Sé fötluðum einstaklingi ekki tryggð viðeigandi aðlögun þegar það á við telst vera um mismunun á grundvelli fötlunar að ræða. Slík mismunun brýtur gegn grundvallarreglu samningsins og er alvarlegt mannréttindabrot. Slík brot verða svo eðli máls samkvæmt enn alvarlegri þegar um er að ræða mjög mikislverð mannréttindi eins og um er fjallað í þessu frumvarpi. Með vísan til þess sem að framan er rakið leggja Landssamtökin Þroskahjálp eindregið til að í viðeigandi ákvæðum frumvarpsins sem og í greinargerð og athugsemdum með frumvarpinu verði sérstaklega áréttaðar skyldur stjórnvalda til að tryggja að fatlað fólk og alveg sérstaklega fólk með Þroskahömlun og/eða skyldar raskanir fái notið óskerts gerhæfis varðandi allt það sem um er fjallað í frumvarpinu og fái örugglega þann stuðning sem það þarf á að halda til að nýta gerhæfi sitt sem og að tryggt verði að viðeigandi aðlögunar sé sérstaklega gætt gagnvart því við alla framkvæmd á þessu sviði.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.