Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-9/2019 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil)

Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil).

Með breytingu á tekjuskattslögum nr. 90/2003 (breytingarlög nr. 112/2016) var ákvæði um ríki-fyrir-ríki skýrslur tekið upp í 91. gr. a. tekjuskattslaga. Efni ákvæðisins var byggt á leiðbeiningum OECD en þann 12. maí 2016 undirritaði Ísland samkomulag á vegum OECD um skipti á svokölluðum ríki-fyrir-ríki skýrslum um starfsemi fjölþjóðlegra fyrirtækjasamstæðna. Skýrslunum er ætlað að auðvelda skattyfirvöldum að ákvarða skatta fjölþjóðlegra fyrirtækjasamstæðna, m.a. með því að gera þeim kleift að greina milliverðlagningu innan samstæðna. Ákvæði um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslum byggja á mikilli samvinnu milli skattyfirvalda þvert á landamæri og því er mikilvægt að regluverk um skil sé samræmt. OECD hefur haft eftirlit með því að reglur þeirra ríkja sem undirritað samkomulag um skipti á ríki- fyrir- ríki skýrslum fullnægi þeim viðmiðum sem sett hafa verið. OECD hefur nú gert athugasemdir við íslensku reglurnar og telur að skerpa þurfi á ákveðnum atriðum, s.s. ákvæðum um fjárhæðarmörk og skilgreiningum hugtaka. Markmið þessa frumvarps er að bregðast við athugasemdum OECD með breytingum á núgildandi ákvæði tekjuskattslaga um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslum.

S-9/2019· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. jan. 2019 – 25. jan. 2019· 0 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil)

Áformað er að leggja fram á vorþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-9/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. janúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (150. þing, mál 970)
Niðurstöður samráðs (19. mars 2019)

Engar umsagnir bárust um áformin.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-9/2019: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003 (ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil) · Alviti