Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-3/2019 · Heilbrigðisráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými)

Áformað er að leggja fram á vorþingi 2019 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, í því skyni að bæta við ákvæði sem heimilar rekstur og starfsemi neyslurýma að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

Áformað er að leggja fram á vorþingi 2019 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, í því skyni að bæta við ákvæði sem heimilar rekstur og starfsemi neyslurýma að uppfylltum tilteknum skilyrðum sem kveðið verður á um í reglugerð. Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem einstaklingar sem eru 18 ára og eldri geta neytt vímuefna um æð, undir handleiðslu heilbrigðisstarfsmanna, og þar sem gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna. Um nokkurra ára skeið hefur verið til umræðu hvort opna eigi neyslurými hér á landi, en slík rými hafa verið rekin í fjölmörgum löndum, meðal annars í Danmörku, og alls er talið að um 90 neyslurými séu rekin um heim allan. Byggjast neyslurými á hugmyndafræði skaðaminnkunar.

S-3/2019· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 8. jan. 2019 – 27. jan. 2019· 4 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými)

Áformað er að leggja fram á vorþingi 2019 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, í því skyni að bæta við ákvæði sem heimilar rekstur og starfsemi neyslurýma að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-3/2019)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. janúar 2019
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 711)
Niðurstöður samráðs (22. febrúar 2019)

Tekið var tillit til þeirra umsagna sem bárust við vinnslu frumvarpsins. Áætlað er að drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými) verði birt til umsagnar á Samráðsgáttinni seinni hluta febrúarmánaðar 2019.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-3/2019: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými) · Alviti