Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-182/2018 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um sviðslistir

Í drögum frumvarpsins er lögð til rammalöggjöf um sviðlistastarfsemi, þar með talið Þjóðleikhúsið og Íslenska dansflokkinn, auk ákvæða um sviðslistaráð, sviðslistasjóð og kynningarmál.

Frumvarpsdrögin skiptast í fjóra kafla: Í fyrsta lagi er kveðið á um markmið laganna auk þess sem hugtakið sviðslistir er skilgreint. Í öðru lagi eru ákvæði um Þjóðleikhúsið. Lagðar eru til nokkrar breytingar frá gildandi leiklistarlögum á ákvæðum sem fjalla um Þjóðleikhúsið. Sem dæmi má nefna að óperur, söngleikir og listdanssýningar verða ekki áfram eitt af aðalhlutverkum leikhússins og um endurskipun þjóðleikhússtjóra fer að fyrirmynd ákvæða annarra laga á sviði lista. Í þriðja lagi er lagt til að Íslenski dansflokkurinn verði lögfestur í fyrsta sinn. Í fjórða lagi eru ákvæði um sviðslistaráð, sviðslistasjóð og kynningarmál.

S-182/2018· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 31. okt. 2018 – 27. nóv. 2018· 12 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um sviðslistir

Í drögum frumvarpsins er lögð til rammalöggjöf um sviðlistastarfsemi, þar með talið Þjóðleikhúsið og Íslenska dansflokkinn, auk ákvæða um sviðslistaráð, sviðslistasjóð og kynningarmál.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-182/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. nóvember 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 800)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (12. febrúar 2020)

Lög um sviðslistir voru samþykkt á Alþingi í desember 2019

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
  • #1Karen María Jónsdóttir
    Ég fagna þeim drögum að frumvarpi til laga um sviðslistir sem nú eru lögð fram. Fagna ég sérstaklega lögfestingu á starfsemi Íslenska dansflokksins sem löngu er orðin tímabær. Ég geri eina athugasemd er varðar 15. grein laganna. Í greininni er lagt til að Bandalag íslenskra listamanna tilnefni tvo af þremur fulltrúum í ráðið. Ekki er tilgreint í greinargerð með lögunum af hverju brugðið er frá þeirri megin reglu að Sviðslistasamband Íslands, tilnefni fulltrúa í Sviðslistaráð eins og önnur ráð sem tilgreind eru í drögunum að lögunum. Eðlilegast væri að Sviðslistasamband Íslands, sem eru… Lesa alla

    Ég fagna þeim drögum að frumvarpi til laga um sviðslistir sem nú eru lögð fram. Fagna ég sérstaklega lögfestingu á starfsemi Íslenska dansflokksins sem löngu er orðin tímabær. Ég geri eina athugasemd er varðar 15. grein laganna. Í greininni er lagt til að Bandalag íslenskra listamanna tilnefni tvo af þremur fulltrúum í ráðið. Ekki er tilgreint í greinargerð með lögunum af hverju brugðið er frá þeirri megin reglu að Sviðslistasamband Íslands, tilnefni fulltrúa í Sviðslistaráð eins og önnur ráð sem tilgreind eru í drögunum að lögunum. Eðlilegast væri að Sviðslistasamband Íslands, sem eru heildarsamtök sviðslista á Íslandi, skipuðu tvo af þremur fulltrúum í Sviðslistaráð, enda eru innan vébanda sambandsins fagfélög sem og deildir innan þeirra sem snerta á öllum þáttum sviðslistanna og einstökum hliðargreinum innan þeirra. Ekki er fagleg ástæða til þess að leita til fagfélaga BÍL til að mynda heildstætt ráð.

  • #2Bandalag íslenskra leikfélaga
    Bandalag íslenskra leikfélaga fagnar framkomnum drögum að frumvarpi til laga um sviðslistir og þakkar sérstaklega þann skilning sem þar kemur fram á mikilvægi starfsemi áhugamanna í leiklist. Okkur líst vel á að verða hluti af fyrirhugaðri kynningarmiðstöð sviðlista og vonum að samlegðaráhrifin verði jákvæð, jafnt faglega sem og rekstrar- og félagslega. Athugasemdir Bandalags íslenskra leikfélaga eru eftirtaldar: Við teljum vissa hættu á að nýr milliliður milli okkar og ráðuneytisins, sviðslistaráð sem við munum ekki eiga aðild að, taki af okkur ákveðið sjálfræði - sérstaklega þar sem… Lesa alla

    Bandalag íslenskra leikfélaga fagnar framkomnum drögum að frumvarpi til laga um sviðslistir og þakkar sérstaklega þann skilning sem þar kemur fram á mikilvægi starfsemi áhugamanna í leiklist. Okkur líst vel á að verða hluti af fyrirhugaðri kynningarmiðstöð sviðlista og vonum að samlegðaráhrifin verði jákvæð, jafnt faglega sem og rekstrar- og félagslega. Athugasemdir Bandalags íslenskra leikfélaga eru eftirtaldar: Við teljum vissa hættu á að nýr milliliður milli okkar og ráðuneytisins, sviðslistaráð sem við munum ekki eiga aðild að, taki af okkur ákveðið sjálfræði - sérstaklega þar sem áformað er að ákvarðanir þess verði endanlegar á stjórnsýslustigi og sæti ekki kæru til ráðherra. Drög að frumvarpi til til laga um sviðslistir 17. gr. Sviðslistasjóður Við teljum að úthlutun styrkja til aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga vegna verkefna þeirra sé best fyrirkomið með sama hætti og hingað til, þ.e. að stjórn þess geri tillögur að úthlutun úr deild áhugamanna sviðslistasjóðs eftir þeim reglum sem aðilar hafa komið sér saman um. Við höfnum alfarið afskiptum atvinnnumanna af því verkefni. Um einstakar greinar frumvarpsins Um 17 gr. bls 11: Í lok þriðju málsgreinar er talað um Félga íslenskra leikfélaga, vinsamlegast breytið því í Bandalag íslenskra leikfélaga. Í sömu málsgrein er tiltekið hvaða skipting eigi að vera milli deilda í sviðslistasjóði. Gæta þarf þess að að framlagið til áhugaleikfélaganna og skrifstofu Bandalags íslenskra leikfélaga lækki ekki við þessa breytingu heldur verði tryggt að það hækki árlega til samræmis við almennar hækkanir í landinu. Tryggt verði að framlög til skrifstofu Bandalagsins sem hingað til hafa verið greidd samkvæmt 3ja ára samningi í senn undanfarin 6 ár, séu tekin með inn í reiknireglur vegna sviðslistasjóðs – það kemur ekki skýrt fram í frumvarpinu og skýringum með því. Stjórn Badndalags íslenskra leikfélaga

  • #3Tómas Zoega
    Tel að fella eigi niður 5. gr. frumvarpsins í heild sinni. Sömuleiðis þær vísanir til þjóðleikhúsráðs, sem er að finna í 4. gr. og 8. gr. Þjóðleikhússtjórar bera skv. lögum fulla ábyrgð á öllum þáttum starfsemi og rekstrar Þjóðleikhússins og verða að fá svigrúm til að gegna hlutverki sínu með aðkomu þeirra aðila, sem þeir sjá ástæðu til að hafa sér til ráðuneytis hverju sinni. Sé hins vegar af einhverjum ástæðum talin nauðsyn á að viðhalda slíku ráði, þá ætti það að vera þriggja manna ráð, sem ráðherra skipaði og tryggt væri að þar væru hvorki þeir skipaðir, sem tengdust leiklistarstarfsemi… Lesa alla

    Tel að fella eigi niður 5. gr. frumvarpsins í heild sinni. Sömuleiðis þær vísanir til þjóðleikhúsráðs, sem er að finna í 4. gr. og 8. gr. Þjóðleikhússtjórar bera skv. lögum fulla ábyrgð á öllum þáttum starfsemi og rekstrar Þjóðleikhússins og verða að fá svigrúm til að gegna hlutverki sínu með aðkomu þeirra aðila, sem þeir sjá ástæðu til að hafa sér til ráðuneytis hverju sinni. Sé hins vegar af einhverjum ástæðum talin nauðsyn á að viðhalda slíku ráði, þá ætti það að vera þriggja manna ráð, sem ráðherra skipaði og tryggt væri að þar væru hvorki þeir skipaðir, sem tengdust leiklistarstarfsemi að atvinnu né hefðu tengsl við stéttarfélög eða aðra hagsmunaaðila, sem Þjóðleikhúsið þarf að eiga í samningum við. Þá mætti 2. setning 2. málsgreinar 5. gr. frumvarpsins falla niður. Þjóðleikhússtjórum, eins og öðrum forstöðumönnum ríkisfyrirtækja, verður að sýna fullt traust til að rækja þau störf sem sem þeir eru ráðnir til að gegna og bera fulla ábyrgð á gagnvart ráðherra.

  • #4Sviðslistasamband Íslands
    Ályktun Opinn fundur á vegum Sviðslistasambands Íslands, þann 12. nóvember 2018, hefur fjallað ítarlega um drög að frumvarpi til laga um sviðslistir og gerir alvarlegar athugasemdir við þau í grundvallaratriðum. Fundurinn lýsir furðu sinni á því að Mennta – og menningarmálaráðuneytið skuli ekki hafa átt samráð við fagfólk og hagsmunaaðila við gerð þeirra. Fundurinn hafnar þessum drögum einróma. Árni Kristjánsson, leikstjóri Ása Richardsdóttir, stjórnandi IceHot Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra leikara og forseti Sviðslistasam… Lesa alla

    Ályktun Opinn fundur á vegum Sviðslistasambands Íslands, þann 12. nóvember 2018, hefur fjallað ítarlega um drög að frumvarpi til laga um sviðslistir og gerir alvarlegar athugasemdir við þau í grundvallaratriðum. Fundurinn lýsir furðu sinni á því að Mennta – og menningarmálaráðuneytið skuli ekki hafa átt samráð við fagfólk og hagsmunaaðila við gerð þeirra. Fundurinn hafnar þessum drögum einróma. Árni Kristjánsson, leikstjóri Ása Richardsdóttir, stjórnandi IceHot Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra leikara og forseti Sviðslistasamb.Íslands Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna Hafliði Arngrímsson Hrafnhildur Theodórsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra leikara Irma Gunnarsdóttir, formaður Félags listdansara á Íslandi Ísabella Leifsdóttir, Aþýðuóperan Karl Ágúst Úlfsson, leikskáld Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu María Kristjánsdóttir, leikstjóri Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Orri Huginn Ágústsson, formaður Sjálfstæðra leikhúsa Ólöf Ingólfsdóttir, Dansverkstæðið Pálína Jónsdóttir, leikstjóri Páll Baldvin Baldvinsson, formaður Félags leikstjóra á Íslandi Ragnheiður Skúladóttir, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins Stefán Baldursson, fv. Þjóðleikhússtjóri Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Óperustjóri Vigdís Hrefna Pálsdóttir, formaður Leikarafélags Íslands Vignir Rafn Valþórsson, leikari og leikstjóri Þórunn Sigurðardóttir Sviðslistasamband Íslands, SSÍ, eru heildarsamtök sviðslista á Íslandi. Að baki því standa öll fagfélög þeirra starfsgreina er fást við sviðslistir ásamt sjálfstæðum leikhópum, bandalögum og stofnunum innan sviðslista á Íslandi.

  • #5Erling Jóhannesson

    Í meðfylgjandi skjali er umsögn Bandalags íslenskra listamanna

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-182/2018: Drög að frumvarpi til laga um sviðslistir · Alviti