Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-153/2018 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu).

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að innheimta opinberra gjalda, sem tollstjóri annast nú, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2019.

Með tilfærslu á innheimtu opinberra gjalda frá tollstjóra til ríkisskattstjóra er stefnt að aukinni skilvirkni og hagkvæmni í skattframkvæmd. Mikil einföldun felst í því að hafa álagningu og innheimtu opinberra gjalda á einni hendi. Með því verður þjónusta við skattaðila og gjaldendur árangursríkari og betri sem aftur leiðir til enn betri innheimtuárangurs og tekjuöflunar hins opinbera. Unnt verður að samnýta tölvu- og upplýsingakerfi og bæta alla verkferla sem og árangur og skilvirkni í störfum skattyfirvalda.

S-153/2018· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. okt. 2018 – 19. okt. 2018· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu).

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að innheimta opinberra gjalda, sem tollstjóri annast nú, verði færð til ríkisskattstjóra frá og með 1. janúar 2019.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-153/2018)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. október 2018
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 302)
Niðurstöður samráðs (29. október 2018)

Fjármála- og efnahagsráðuneytið þakkar góðar ábendingar. Brugðist er við þeim í sérstöku niðurstöðuskjali en ekki er talin ástæða til breytinga á frumvarpsdrögunum vegna þeirra.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Unnur Valborg Hilmarsdóttir
    Hvammstanga, 18. október 2018 Umsögn ferðamálaráðs um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu). Mál nr. S-153/2018 Fjármálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi um breytingar á lögum um tekjuskatt sem lúta að því að færa innheimtu opinberra gjalda frá Tollstjóra til Ríkisskattstjóra. Ferðamálaráð fagnar framkominni tillögu ráðherra. Það er mat ráðsins að verði frumvarpið að lögum einfaldist kerfið til muna sem leiðir til þess að eftirlit verður skilvirkara. Breytingin er í takt við áherslur ráðsins í t… Lesa alla

    Hvammstanga, 18. október 2018 Umsögn ferðamálaráðs um drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu). Mál nr. S-153/2018 Fjármálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi um breytingar á lögum um tekjuskatt sem lúta að því að færa innheimtu opinberra gjalda frá Tollstjóra til Ríkisskattstjóra. Ferðamálaráð fagnar framkominni tillögu ráðherra. Það er mat ráðsins að verði frumvarpið að lögum einfaldist kerfið til muna sem leiðir til þess að eftirlit verður skilvirkara. Breytingin er í takt við áherslur ráðsins í tillögum þess til ráðherra ferðamála frá því í ágúst 2017 þar sem að beiðni ráðherra voru lagðar fram aðgerðir til að auka samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Leiðarstef í þeim tillögum var nauðsyn þess að einfalda hið flókna kerfi sem fyrirtæki í ferðaþjónustu búa við af hálfu hins opinbera og kemur niður á samkeppnishæfni greinarinnar. F. h. Ferðamálaráðs, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, formaður.

  • #2KPMG ehf.

    Umsögn KPMG

  • #5Sýslumannafélag Íslands

    Varhugavert þykir með tilliti til vanhæfissjónarmiða að álagning og innheimta sé á sömu hendi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-153/2018: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, og fleiri lögum (fyrirkomulag innheimtu). · Alviti