Drög að frumvarpi um gildistöku alþjóðasamnings um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði (Höfðaborgarsamningurinn) og bókunar um búnað loftfara.
Um er að ræða drög að nýrri heildarlöggjöf til innleiðingar á alþjóðasamningi um alþjóðleg tryggingarréttindi í hreyfanlegum búnaði (Höfðaborgarsamningur) og bókunar um búnað loftfara.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-224/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 21. nóvember 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 415)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (5. desember 2018)
Ein umsögn barst um frumvarpið í samráðsgátt en hún hafði ekki áhrif á efni frumvarpsins. Mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi 4. desember 2018 sjá hér á vef Alþingis https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=149&mnr=415
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)
- #1Bjarni Rúnar Ingvarsson
Lest milli Flugstöð Leifs Eiríkssonar og miðborgar Reykjavíkur (Fluglestin - fluglestin.is) er í þróun sem einkaframkvæmd og því verður að hafa lagaramma sem snýr á öllum hliðum lestarsamgangna. Þar af leiðandi verður einnig að taka með bókun sem varðar járnbrautir. Þá er óvíst hvort Borgarlínan verði uppfærð í léttlestarkerfi í náinni framtíð sem einnig þarf lagaramma um.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.