Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007
Ferðamálaráðherra leggur til breytingar á lagaákvæðum sem varða heimagistingu og eftirlit með henni.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-170/2018)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. október 2018
- Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (149. þing, mál 784)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. apríl 2019)
Frumvarpsdrögin voru kynnt í samráðsgátt Stjórnarráðsins þann 17. október 2018 í samræmi við 2. mgr. 9. gr. samþykktar ríkisstjórnarinnar. Alls bárust tólf umsagnir. Umsagnaraðilar voru meðal annars Samband íslenskra sveitarfélaga, Sýslumannafélag Íslands, Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, sýslumaðurinn á Vestfjörðum og sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra. Einnig bárust umsagnir frá Samtökum fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu og Viðskiptaráði Íslands. Þá funduðu fulltrúar ráðuneytisins með dómsmálaráðuneytinu og umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eftir að samráðstíma lauk og við endanlegan frágang frumvarpsins. Almennt voru umsagnir mjög jákvæðar og tillögum um bætt eftirlit og skýrari ramma um gististarfsemi vel tekið. Þó bárust ábendingar frá umsagnaraðilum sem töldu ýmist gengið of langt eða skammt í breytingartillögum frumvarpsins.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
- #1Skúli Gautason
Ég tel að það þurfi að hafa ofurlítinn sveigjanleika eða vikmörk við beitingu þessara laga, þar sem þær aðstæður geta komið upp að bókanir breytast eftir að 90 daga hámarki er náð og fari þannig yfir hámarkið. Til samanburðar má minna á að við útdeilingu hraðasekta viðhefur lögreglan það verklag að draga 3% vikmörk frá mældum hraða þannig að á vegi þar sem hámarkshraði er 90 km/klst er ekki sektað fyrir brot þar sem menn eru mældir undir 94 km/klst. Dæmi um hvernig þetta getur komið til: Gestur A bókar gistingu í gegn um AirBnB á tilteknar dagsetningar. Þær gistinætur eru innan 90 daga mar… Lesa alla
Ég tel að það þurfi að hafa ofurlítinn sveigjanleika eða vikmörk við beitingu þessara laga, þar sem þær aðstæður geta komið upp að bókanir breytast eftir að 90 daga hámarki er náð og fari þannig yfir hámarkið. Til samanburðar má minna á að við útdeilingu hraðasekta viðhefur lögreglan það verklag að draga 3% vikmörk frá mældum hraða þannig að á vegi þar sem hámarkshraði er 90 km/klst er ekki sektað fyrir brot þar sem menn eru mældir undir 94 km/klst. Dæmi um hvernig þetta getur komið til: Gestur A bókar gistingu í gegn um AirBnB á tilteknar dagsetningar. Þær gistinætur eru innan 90 daga markanna. Eftir að þær hafa verið samþykktar og greiddar í gegnum AirBnB breytast ferðaplönin og gestur A biður um að dagsetningum sé breytt. Þær dagsetningar sem hann fer fram á rúmast ekki innan 90 daga markanna. Gestgjafinn á þá aðeins um tvennt að velja, að samþykkja breytinguna og fara þar með yfir 90 daga hámarkið eða synja um breytingu, en það er mjög illa séð hjá AirBnB, gestgjafinn er krafinn um skýringar, hann færist neðar á vinsældalistann eða hann jafnvel beittur sektum.
- #2Guðmundur Árni Ólafsson
Góðan daginn, Vegna frumvarps um lagabreytingar á heimagistingu þá langar mig til að benda á einn hlut sem ég tel að mismuni leigjendum. Samkvæmt tölum frá hagstofu þá telur leigumarkaðurinn allt að 35.000 heimili og fjölgaði heimilum á leigumarkaði um 71% á árunum 2005 - 2014. Rúmlega 8.500 leigusamningar voru þinglýstir á árinu 2016. Það er löngu vitað að það er almenn óánægja á leigumarkaði og við lok árs 2015 þá sögðust einungist 10.4 % leigjenda vera á leigumarkaði af því að þeir vilja vera þar, samanborið við 18.9% áratug á undan. Ég tel að þessi lagabreyting muni hafa en… Lesa alla
Góðan daginn, Vegna frumvarps um lagabreytingar á heimagistingu þá langar mig til að benda á einn hlut sem ég tel að mismuni leigjendum. Samkvæmt tölum frá hagstofu þá telur leigumarkaðurinn allt að 35.000 heimili og fjölgaði heimilum á leigumarkaði um 71% á árunum 2005 - 2014. Rúmlega 8.500 leigusamningar voru þinglýstir á árinu 2016. Það er löngu vitað að það er almenn óánægja á leigumarkaði og við lok árs 2015 þá sögðust einungist 10.4 % leigjenda vera á leigumarkaði af því að þeir vilja vera þar, samanborið við 18.9% áratug á undan. Ég tel að þessi lagabreyting muni hafa enn verri áhrif á leigumarkaðinn og að enn færri verði ánægðir með það að vera á leigumarkaði. Það skref að leyfa aðeins þinglýstum eigendum að selja heimagistingu á heimilum sínum er mismunun við þá sem eru á leigumarkaði og hafa í dag fullan rétt á að selja gistingu í heimilum sínum í 90 nætur eða þéna allt að 2 milljónir króna á almanaksári. (svo lengi sem að það brjóti ekki leigusamninga) Ég tel þau rök að sýslumaður hafi séð mörg atvik þar sem einstaklingur A færir lögheimili sitt í fasteign B og sólarhring seinna sé fasteign B skráð í heimagistingu á lögheimili A, ekki forsenda til að mismuna öllum þeim þúsundum heimila sem eru í leiguhúsnæði að vera með heimagistingu á sínum heimilum. virðingafyllst Guðmundur Árni
- #3Hermann Guðmundsson
Með breytingunni um að ,,skráning heimagistingar verði bundin við þinglýst eignarhald og lögheimili'' er verið að mismuna fólki á leigumarkaði. Tækifæri fólks á leigumarkaði til þess að afla sér smá aukinna tekna er því ekki til staðar á meðan eigendur fasteigna hafa einir tækifæri til þess. Ég tel að lögin sem eru nú þegar til staðar gæti jafnræðis milli fólks á leigumarkaði og eiganda fasteigna til útleigu í heimagistingu. Yrði þetta frumvarp að lögum er ljóst að um skýra mismunun væri að ræða.
- #4Samband íslenskra sveitarfélaga
Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, með síðari breytingum. Virðingarfyllst, f.h. sambandsins, Vigdís Häsler lögmaður
- #5Kristófer Oliversson
FHG - Fyrirtæki í hótel og gistiþjónustu Reykjavík, 22. október 2018 Varðar: Frv. til brt. á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 Samtök fyrirtæka í hótel- og gistiþjónustu (FHG) fagna tækifærinu til að fá að gera athugasemdir við frumvarpið á samráðsgáttinni. FHG telja þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu mikilvægt skref í rétta átt, en telja ástæðu til að ganga lengra varðandi suma þætti þess til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Tillögur frumvarpsins Meginefni frumvarpsins lúta annars vegar að því að skerpa á skráningu he… Lesa alla
FHG - Fyrirtæki í hótel og gistiþjónustu Reykjavík, 22. október 2018 Varðar: Frv. til brt. á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 Samtök fyrirtæka í hótel- og gistiþjónustu (FHG) fagna tækifærinu til að fá að gera athugasemdir við frumvarpið á samráðsgáttinni. FHG telja þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu mikilvægt skref í rétta átt, en telja ástæðu til að ganga lengra varðandi suma þætti þess til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Tillögur frumvarpsins Meginefni frumvarpsins lúta annars vegar að því að skerpa á skráningu heimagistingar og eftirliti sýslumanns með skilum á nýtingarhlutföllum í tengslum við heimagistingu og hins vegar að samræmdri málsmeðferð einstaklinga og fyrirtækja gagnvart brotum á lögunum sem varða sektum. A. Heimagisting i) Skráning Tillaga um breytingu á 3. gr. frumvarpsins gengur út á að tryggja að hvort sem verið sé að leigja þá eign sem lögheimili er skráð á eða "hina" fasteign viðkomandi sé þinglýst eignarhald beggja skilyrði fyrir skráningu leyfis. Eftir slíka breytingu mundu viðkomandi málsliðir 3. gr. laganna hljóða svo: “Heimagisting er gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings eða í einni annarri fasteign sem hann hefur til persónulegra nota. Þinglýst eignarhald er jafnframt skilyrði skráningar heimagistingar.” Í greinargerð frumvarpsdraganna kemur fram að markmið ákvæðisins sé að koma í veg fyrir "gervilögheimilisskráningar" til að fullnægja skilyrðum til útleigu í heimagistingu. FHG fagna þessari tillögu, sem miðar að því að færa framkvæmd heimagistingar meira í samræmi við anda lagabreytingarinnar frá 2016. FHG telja þó ástæðu til að ganga lengra. Þannig telja samtökin að reglan um 2 fasteignir og reglan um 90 daga útleigutíma vinna gegn megintilgangi laganna, að styðja deilihagkerfið með því að veita hinum almenna borgara kost á að leigja út eign sína til skemmri tíma. Þannig hefur reglan um heimild til að leigja út aðra fasteign dregið verulega úr framboði á eignum í útleigu til lengri tíma og hækkað leiguverð þar sem framboð hefur ekki mætt eftirspurn. Sums staðar á landsbyggðinni hefur þetta nánast snúist uppí öndverðu sína, þar sem allt laust húsnæði er frátekið fyrir skammtímaleigu, húsnæði sem annars gæti nýst aðkomufólki sem leitar starfa í bæjarfélaginu. Þá var m.a. bent á í greinargerð frumvarpsins sem varð að lögum nr. 67/2016 að með tveggja eigna reglunni sé m.a. verið að koma til móts við þá sem eiga sumarhús samhliða eigin húsnæði. Þar er horft fram hjá því að víða í frístundabyggðum er slík starfsemi að verða vaxandi vandamál. Loks er ástæða til að nefna það ónæði sem nágrannar verða fyrir, ekki síst að næturlagi vegna komu og brottfarar leigjenda í heimagistingu. Slíkt er fyrst og fremst vandamál í þeim eignum sem eru mikilli útleigu þar sem um aðra fasteign er að ræða. Að mati FHG er eðlilegt að afmarka skráningu heimagistingar samkvæmt lögunum við eina fasteign og að hámarks leigutímabil á ári miði við einn mánuð, sem er hefðbundið orlofstímabil vinnandi fólks. FHG leggja því til að 1. gr. frumvarpsins orðist svo: 2. og 3. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo: Heimagisting er gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings sem hann hefur til persónulegra nota og er í þinglýstri eigu hans. Fjöldi útleigðra daga í heimagistingu skal ekki fara yfir 30 daga á hverju almanaksári eða samanlagðar tekjur af leigu eignarinnar skulu ekki nema hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988. ii) Eftirlit Frumvarpsdrögin gera ráð fyrir sérstakri heimild til að leggja stjórnvaldssektir á þá aðila sem ekki skila upplýsingum um leigða daga og leigutekjur í heimagistingu á sínum vegum yfir árið. FHG telja það mikilvæga breytingu og til þess fallna að upplýsingar um heimagistingu skili sér betur en verið hefur. B. Samræmd málsmeðferð Frumvarpsdrögin gera tillögu um að málsmeðferð í tengslum við beitingu sekta vegna heimagistingar og annarra rekstrarleyfa til gistingar verði samræmd. Þannig verði í báðum tilvikum heimild til stjórnvaldssekta. FHG fagna því, enda einfalt og skilvirkt úrræði. Horft til framtíðar FHG telja skráningu og úthlutun leyfa vegna gistiþjónustu betur komna hjá Ferðamálastofu en sýslumönnum. Samkvæmt lögum um skipan ferðamála nr. 73/2005 þá er hlutverk Ferðamálastofu m.a. útgáfa leyfa og skráning á starfsemi á sviði ferðaþjónustu. Þannig er þegar komin sérhæfing við leyfisveitingar vegna ferðaþjónustu hjá stofnuninni og liggur best við að gistiþjónustan falli þar einnig undir. Í tengslum við slíka yfirfærslu yrði þá einnig tryggt að einfaldara verði en nú er að fletta upp aðilum innan ólíkra flokka gististaða. Einnig þyrfti að tryggja betur en nú er að birt séu úthlutuð númer leyfis, en í opinberri skrá á vefnum syslumenn.is er í dag hvergi að finna slík leyfisnúmer. Þá er æskilegt að huga að því að eftirliti með leyfisskyldri starfsemi verði breytt. FHG teldu skynsamlegt að fara sambærilega leið og gildir um t.d. ökutæki, þ.e. einkaaðilum væri falið að halda utanum slíkt eftirlit. Til að undirbyggja það mætti t.d. skylda leyfisaðila til að taka upp vottað gæðakerfi sem eftirlitsaðila bæri að fyljast með hvort væri til staðar. Einnig mætti sjá slíkt fyrirkomulag svipað og í tilviki Samgöngustofu, sem gefur út skoðunarhandbók ökutækja. Þannig gæfi Ferðamálastofa (ef leyfisveitingar færu þangað) út skoðunarhandbók gististaða. Loks velta FHG því upp hvort ástæða gæti verið til að skilja lögin í sundur, þ.e. hafa sérlög um gistiþjónustu, enda hún orðin stór atvinnugrein á Íslandi. Virðingarfyllst, Kristófer Oliversson formaður FHG
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.